Vikan - 19.05.1977, Blaðsíða 12
„Aldreiað fresta til
i fegurðarsamkeppni, sem
ferðaskrifstofan Sunna stóö fyrir,
var á dögunum kjörin Ungfrú
Reykjavík. Þrjár stúlkur tóku þátt
í keppninni og síðan munu þær
keppa um titilinn Ungfrú island
22. maí næstkomandi, ásamt
stúlkum utan af landi. Hlutskörp-
ust í keppninni Ungfrú Reykjavík
varð Sigurlaug Halldórsdóttir, en
ásamt henni tóku þátt í keppninni
þær Anna Björk Eðvarösdóttir og
Guðbjörg Vilhjálmsdóttir. Vikan
leit inn á heimili Sigurlaugar og
ræddi lítilsháttar við hana um
keppnina og fleira, og síðan
svaraöi hún nokkrum misjafnlega
gáfulegum samviskuspurningum,
sem við lögðum fyrir hana.
Sigurlaug er fædd í Reykjavík
9.11.1959 og er því 17 ára að aldri.
Hún stundar nám við Menntaskól-
ann i Reykjavík og lýkur prófum úr
4. bekk þaöan í vor. Við spurðum
hana um tildrög þess, að hún fór í
þessa keppni.
— Upphafið var þannig, að
Heiðar Jónsson kom að máli við
mig í janúar síöastliðnum og bauð
mér að taka þátt í þessari keppni.
Og eftir að hafa hugsaö mig vel
um, ákvað ég að slá til.
— Hvernig fór keppnin sjálf
fram?
— Við vorum þrjár valdar af
sérstakri dómnefnd úr hópi 30-40
stúlkna. Við vorum síðan kynntar á
Sunnukvöldum, komum fram fjór-
um sinnum í allt, í mismunandi
fötum. Gestirnir á þessum kvöld-
um greiddu svo atkvæði, og síðan
voru þau talin saman að þessum
kvöldum loknum, og úrslitin
kunngerð. Ég fer svo til Japans
og tek þar þátt í keppninni Miss
International. Anna Björk keppir
hins vegar í Miss Europe, og
Guðbjörg í Miss Scandinavia.
— Hver eru aöaláhugamálin?
— Fyrst og fremst er það
dansinn, en ég hef lært dans frá
3ja ára aldri í dansskóla Her-
manns Ragnars Stefánssonar, og
vonast til að halda áfram. (Til
gaman* má geta þess, aö Sigur-
laug hefur haft sama dansherr-
ann, Ásmund Pál Ásmundsson frá
6 ára aldri). Svo les ég mjög mikiö,
en ég er lítið fyrir skáldsögur, les
mest eitthvaö i sambandi við
landafræði, líferni fólks í afskekkt-
um löndum og dýralíf. Svo hef ég
óskaplega gaman af að læra
tungumál og er mikið fyrir að
ferðast.
— Og þá er komið að ,,sam-
viskuspurningunum':
1. Ertu með eöa á móti
bjórnum?
— Ég er meö honum, ef hann
verður seldur í áfengisverslunun-
um, en algjörlega á móti því, að
hann verði seldur í matvöru-
verslunum.
2. En áfengum drykkjum yfir-
leitt?
— Ég er á móti þeim og bragða
þá ekki sjálf.
3. Reykirðu?
— Nei, það geri ég ekki.
4. Hvað er það versta, sem fyrir
þig gæti komið?
- Að missa fæturna eða verða
blind.
5. Hvar viidirðu heist eiga
heima?
— Á íslandi — en annars á
afskekktri eyju í Kyrrahafinu.
5. Hvaða rithöfundi hefurðu
mest dáiæti á?
— Það er enginn sérstakur í
uppáhaldi hjá mér, ég les mest af
fræðslubókum.
6. Hver er eftirlætis málarinn
þinn?
— Degas.
r
BORGARHUSGOGN
HREYFILSHUSINU VIÐ GRENSASVEG - SIMI8-59-44
Lítiö
inn,
það
Miklabraut
Borgarhusgogn
Litaver
Hreyfill
borgar
sig
Fellsmúli
URVAL AF: Húsgögnum, Ljósatœkjum, lömpum
og skrautmunum, sem prýða hvert heimili.
VELJIÐ ÍSLENZK HÚSGÖGN -
Biðjið um myndalista — Póstsendum
12 VIKAN 20. TBL.