Vikan


Vikan - 19.05.1977, Blaðsíða 48

Vikan - 19.05.1977, Blaðsíða 48
MEÐ HÁLSFESTI í MUNNINUM Kæri draumráðandi! Mig langar aö biðja þig að ráða fyrir mig draum, sem mig dreymdi fyrirstuttu. Hann er svona: Ég var að fara á pósthúsið að ná í eitthvað, sem ég átti þar, en það var þannig, að þegar maður kom inn, þurfti að fara úr skónum. Ég fór úr skónum og var búin að vera dágóöa stund þarna inni. Þegar ég ætlaði að fara, var búið að taka skóna og setja aðra rauða klossa í staðinn, en ég sá, að þeir voru ekki eins og hinir. Þessir voru með svo stórri tá. Ég varð þetta litla vond og fór til símstöðvarstjórans og bað hann að reyna að finna skóna. Hann sagðist skyldi gera það, og með það fór ég út á sokkunum. Hér koma tveir ( viðbót, sem ég vil fá birtingu og ráðningu á. Þá kemur sá fyrri: Ég var að ganga framhjá húsi, og mér varð litið þar inn. Þar sá ég, að vinkona mín lá í rúmi á fæðingar- heimili. Hún stóð á fætur, labbaði inn í herbergi og kom eftir smástund út aftur með krakka. Þá sagði hjúkrunarkona, sem þarna var: ,,Blæddi mikið?" Þá svaraði Þ. ,,Já, þegar ég tók tappann úr." Mig langar að taka það fram, að það var svo bjart inni í herberginu. Hinn draumurinn var þannig, að ég kom inn í hús, sem ég og fleiri krakkar höfðum á leigu. Ég fór inn í eitt herbergið, og þar var fullt af krökkum. Einn strákurinn var eitthvað svo sár, að ég gaf mig á tal við hann og spurði, hvað væri aö, en svo vissi ég ekki fyrr en við vorum að kyssast. Þá fann ég, að hann var með hálsfesti uppi í sér. Hann lét hana upp í mig og sagöi, Mig dreymdi að ég mætti eiga hana. Svo lét hann mig hafa aðra, sem hann var með, og sagði, að ég mætti líka eiga hana, en hálsfestin, sem hann lét upp í mig, var nærri hrokkin ofan í mig, og ég fór til annars stráks, sem náði í háls- festina ofan í háls. Mig langar að taka það fram, aö þessar festar voru báðar meö krossi, en sú, sem hann gaf mér fyrst, var þannig, að Jesús var ekki negldur á krossinn, hann bara stóð á honum, en hinn krossinn var svo lítill, að ég sá hann varla. Jæja ég ætla aö hætta þessu, en ég grátbið þig að birta þessa drauma fyrir mig. Ég hef oft sent drauma, og þeir hafa allir lent í ruslakörfunni, ég vona bara, að það veröi ekki núna. Það er annað, sem mig langar að taka fram, að þessir strákar eru bræður í raunveruleikanum, og annar þeirra, sá sem náði í festina ofan í háls, er unnusti minn. Með fyrirfram þökk, Konný G. Þín bíður björt og góö framtíð. Þó er ekki ólíklegt, að þú veröir fyrir einhverju mótiæti innan árs, en unnusti þinn mun standa með þér og hjáipa þér að komast yfir erfiðleikana. Þú munt eignast nýja vini, sem eiga eftir að hafa mikil og góð áhrif á framtið þína. Vinkona þin á senniiega eftir að verða fyrir svikum, sem munu valda henni mjög mikium von- brigðum. FANGAMARK Á HRING Kæri draumráðandi! Viltu ráða úr þessum draumi fyrir mig. Mig dreymdi, að systir mín lofaði að kaupa eitthvað fyrir mig, og hún kom heim með stóran hring, sem hún haföi látið grafa í fangamark stráksins, sem ég er hrifin af. Ég var alltaf með hringinn, og mér var alltaf stítt með stráknum. Ég vona, að þú ráðir úr þessu fyrir mig. Stk. Þú munt eignast nýjan vin, sem þú munt eiga eftir að hafa mikið saman við að sælda í framtiðinni. Ekki er þó líklegt, að um annað en vináttu verði að ræða milli ykkar, en sennilegt er, aö þú eigir eftir að upplifa miklar hamingjustundir með piltinum, sem þú ert hrifin af. NAUÐLENDING FLUGVÉLAR Kæri draumráðandi! Mig dreymdi einkennilegan draum, sem mig langar mikið til að fá ráðningu á, og hann er svona. Ég var stödd niöur á Hlemmi, en umhverfið var öðruvísi, önnur hús, o.s.frv. en ég tók ekki eftir því í draumnum eða veitti því enga athygli. Þar var flugvél, sem hafði nauðlent, og fólkið var að brjótast út úr henni. Flugvélin var þannig staðsett, að farþegarnir urðu að velta sér út úr henni. Meðal farþeganna var þroskaheft fólk, og hugsaði ég með mér, að ég skyldi taka það að mér, því ég þekkti þetta fólk og vissi, hvernig ætti að meðhöndla það. Síöan smalaði ég þessu fólki saman, og enginn veitti því athygli. Síðan gekk til mín kona (þessi kona er oft með mér í draumum mínum, en hvað sem draumarnir er skýrir, man ég aldrei, hvernig hún lítur út, en hún er Ijós yfirlitum) og fór að segja mér frá litlum börnum, sem höföu fyrirfarið sér. Þá fylltist ég mikilli sorg og söknuði fyrir þessum saklausu sálum, sem þessi vondi heimur hafði leikið svo grátt, og ég féll saman og var óhuggandi og grét sáran. En I miðju táraflóðinu fannst mér eins og ég yrði aö líta upp, og fyrir framan mig var komið op, (það var ekki gluggi, en samt svipað í laginu) og fyrir framan mig var uppljómað jólatré, en ég fékk ekki að sjá það allt, heldur aðeins efstu greinarnar. Og frá þessu tré streymdi svo mikill helgidómur og friöur, að mér fór að líða einkenni- lega, og sá ég þá sjálfa mig fyrir, uppljómaða af hrifningu, en tárin streymdu ennþá niður kinnarnar eins og glitrandi silfurdropar af birtunni frá trénu. Er hægt að dreyma fallegri endi? Með fyrirfram þökk fyrir ráðn- inguna. Sigurbjörg G. Óskarsdóttir. Þessi draumur þinn er mjög sérstakur og boðar þér allt gott. Að sjá flugvél á jörðu niðri táknar, að þú hafir ekki notað hæfi/eika þina sem skyldi, og kemur það vel heim og saman við það, sem þú sagðir mér um starf þitt. Þín bíður allt það besta: Góð heilsa, ástsæ/d, hjartagæska, auðæfi og farsæ/d i hjónabandi. Sértu ógift, mun ekki líða á löngu, uns þú kvænist. Birtan frá trénu er eitt besta táknið I draumnum, ásamt tárunum. 48 VIKAN 20. TBL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.