Vikan - 19.05.1977, Page 20
HROLLVEKJANDINÝ FRAMHALDSSAGA
EFTIR SHEILU HOLLAND
Kölski
& Caroline
Caroline Hay er listfræðingur og er nú komin
til Haidansbury til þess að
meta ástand trémuna dómkirkjunnar þar. Hún kemur
þangað seint um kvöld, og fyrstu kynni hennar af
klausturgarðinum valda henni heilabrotum og óhugnaði.
Næsta dag bíður hennar annað umhugsunarefni
— fyrrverandi elskhugi, Nick Wyatt.
„Vel,” sagði hún, „það
er einmitt vegna starfsins, sem ég
er hér. Ég er að rannsaka nokkra af
munum dómkirkjunnar.”
Hann kinkaði stuttlega kolli.
„Hvar býrðu?”
„Hjá djáknanum.”
Nick virtist létta, og það birti yfir
svip hans. Hann hló þessum ljúfa
hlátri, sem hún mundi svo vel.
„Gamli góði prófasturinn og
kjáninn hann sonur hans.”
„Tony? Mér finnst hann á-
gætur.,,
„O jæja, það getur vel verið.
Annars er hann almennt álitinn
hálfgerður heimskingi.”
Hversu vel mundi hún ekki
þennan hroka hans. „Annars þekki
ég hann varla,” sagði hún. „Ég
kom ekki fyrr en i gærkvöldi. Ég fór
út í morgun bæði til að skoða
borgina og lika vegna þess, að ég
var glorhungruð.”
Hann leit sem snöggvast í átt til
búðarinnar og sagði síðan kæru-
leysislega: „Hvernig list þér á að
koma og fá þér kaffi í Pelíkan-
anum?”
Hún hikaði aðeins. Síðan sagði
hún álíka stift og hann: „Jú, því
ekki það.”
Þau gengu götuna á enda.
Nokkrar tröppur lágu upp að
glerdyrum, og bjölluhljómur heyrð-
ist, þegar þau gengu inn. Litla
veitingastofan var björt, með
köflóttum dúkum á borðum og
rauðu tigulsteinsgólfi. Þau settust
-niður við tveggja manna borð. og
fljótlega kom kaffið ásamt ilmandi
góðum bollum. Caroline starði á
þær, án þess að reyna að draga dul
á. hve hungruð hún var. Þegar hún
leit upp, sá hún að Nick horfði á
hana glettnislegur á svip.
Allt í einu var sem öll spenna
hyrfi milli þeirra. Það var eins og
reiðin og beiskjan vegna aðskilnað-
ar þeirra væri horfin og þau væru
byrjuð aftur, eins og í upphafi
sambands þeirra, full ástúðar og
skilnings og reiðubúin að gleðjast
saman yfir hverju smáatriði.
Caroline brosti. „Ég er glor-
hungruð.”
„Þú mátt eiga þær allar.”
Þegar hún var búin með þær,
hallaði hún sér aftur á bak og stundi
af vellíðan. „Nú líður mér betur.
Segðu mér Nick, hvar býrðu?”
„Fyrirofanbúðina. Þarerágætis
ibúð.”
Allt i einu kom henni dálitið í
hug. „Býrðu með Laurel?”
„Já.”
„Er hún.....alveg eins?”
„Svona hér um bil.”
Allt i einu var aftur orðin sama
spennan milli þeirra. Laurel var
systir Nicks, fimmtán árum eldri en
hann, og hún og Suzanne dóttir
hennar höfðu búið hjá Nick, síðan
hún missti manninn. Og Laurel
hafði verið mjög óvinveitt Caroline.
Hún var taugaveikluð og uppfull
af gremju og hræðslu við allt
mögulegt. Nick hafði alltaf fundist
hann bera ábyrgð á henni. Caroline
hafði virt Nick fyrir það og reynt af
öllum mætti að skilja, að óvinsemd
Laurel stafaði af ótta, — ótta við
það, að ef Nick giftist, myndi hún
verða að finna sér annað heimili og
verða sjálfstæð, en það gat hún ekki
hugsað sér.
Caroline hafði reynt eins og hún
gat að komast hjá árekstrum. En
það hafði ekkert þýtt. Hin illa dulda
óvinsemd Laurel hafði eyðilagt
hverja einustu heimsókn, og
Caroline vissi, að þegar hún var
ekki til staðar, reyndi Laurel eins og
hún gat að snúa Nick gegn henni.
Hún mætti augnaráði Nicks yfir
borðið. Það var sársauki í augnaráði
hans. Allt í einu minntist hún þess,
þegar hann eitt sinn, dálítið
drukkinn eftir samkvæmi, fór með
kvæði eftir Keats fyrir hana. La
belle Dame sans Merci. Fagra
miskunnarlausa konan. Skildi hann
muna eftir þvi líka?
„Ó, Caro,” sagði hann allt í einu
mjög lágt. „Hvers vegna í ósköp-
unum þurftir þú eiginlega að álpast
hingað?”
Djákninn baðst mikillega af-
sökunar. Hann kom fimm minútum
eftir að frú Wheeler bar fram
hádegisverðinn.
„Mér þykir fyrir þessu, en ég
varð fyrir töfum. Hann sendi
ráðskonunni milt, friðþægjandi
bros og sneri sér siðan að Caroline.
„Mikið finnst mér leiðinlegt,
hvernig morgunninn fór ungfrú
Hay. Ég vona, að þú hafir getað
fundið þér eitthvað til ánægju.?"
„Þetta var indælis morgunn,”
sagði Caroline. „Ég fékk mér
gönguferð um borgina, mér finnst
hún falleg.”
rp ONY starði fýlulega ofan í
súpudiskinn sinn. Hann hafði
verið einkar liflegur, þar til faðir
hans kom. Djákninn hafði sem
snöggvast litið til hans, og það
ekki verið ánægjulegt tillit.
Þetta var í fyrsta sinn, sem hún
sá þá saman. Tony virtist einhvern
veginn hálf barnalegur, þó hann
hlyti að vera að minnsta kosti
rúmlega tvítugur.
Aðalrétturinn var borinn á borð,
soðinn þorskur. falinn undir hvítri
kekkjóttri sósu. Caroline leit með
meðaumkun á djáknann. Hvernig
gat veslings maðurinn þrifist á sliku
matarræði.
Tony ýtti disknum sínum til
20 VIKAN 20. TBL.