Vikan


Vikan - 19.05.1977, Side 38

Vikan - 19.05.1977, Side 38
Eyða! Eyða! Eyða! Flest dreymir okkur einhvem tíma um að verða skyndilega rík, vinna nokkrar milljónir í happdrætti, eða þó ekki væri nema nokkur hundruð þúsund í getraununum. Vivian og Keith Nicholson og börnin þeirra fjögur í Yorkshire á Englandi áttu vart málungi matar, þegar þau unnu rúmlega 150.000 pund í getraununum fyrir 15 árum, sem voru gífurleg auðæfi þá. Gagnstætt því, sem flestir ætla, færðu slík auðæfi þeim litla gæfu. í næstu blöðum segir Vivian sögu þeirra, sem er lygasögu líkust. Villtustu draumar urðu að veruleika Það er erfitt fyrir fólk að skilja, hvað það er að hafa aldrei haft neitt handa á milli í lífinu, og verða svo flugríkur á einu andartaki. Ég vissi, hvað fátækt var. Það var eðli mitt að vera fótæk, en ég hafði aldrei hugmynd um hvað auður var. Fólk segirviðmig: ,,Viv, hvernig GASTU eytt öllum þessum pening- um?” í sannleika sagt er það mjög auðvelt — þegar fólki finnst gaman að fallegum hlutum og hefur eins dýran smekk og ég. Áður en við hlutum vinninginn, bjuggum við Keith í bæjarblokk í Airdale í Yorkshire. Við greiddum 2 pund á viku í húsaleigu og börðumst við að fæða og klæða börnin okkar fjögur, af þeim 7 pundum, sem Keith vann sér inn á viku sem námuverkamaður. Mamma bjó í annarri bæjar- blokk, ekki langt frá heimili okkar, og hún sá um hádegisverð fyrir pabba og bræður mína, auk þess sem hún reyndi að taka frá mat handa okkur. Stundum varð ég svo örvæntingarfull, að ég braust inn á heimili foreldra minna um nætur til að stela mat úr búrinu þeirra. Ég sá alltaf til þess, að börnin fengju nóg að borða, og Keith fékk alltaf góðan málsverð, þegar hann kom úr námunni. Ég lét aldrei i ljósi, þó ég hefði ekki borðað í heilan dag, og hann hélt, að við kæmumst vel af á þeim peningum, sem hann vann sér inn. Stundum sat ég og lá við yfirliði og bað þess, að eitthvert þeirra skildi eitthvað af matnum sínum eftir á disknum. Auðvitað gerðu þau það aldrei, þau voru alltaf eins og litlir, svangir betlarar. Þegar þau höfðu lokið við að borða, notaði ég brauðbita til að ná upp smjörinu, sem var eftir á diskunum. Meðan á þessum erfiðu tímuiTi stóð, var ég vön að biðja mikið, og ég hugsaði mikið, og ég vissi, að það hlaut að bíða min annars konar lif, einhversstaðar, einhverntima. Það er skemmtileg tilhugsun, að þegar ég var litil stelpa, lét ég mig oft dreyma dagdrauma; ég sá sjálfa mig á stórum, stórum svörtum eða stórum, stórum hvitum bíl. Ég myndi aka um og horfa á verksmiðjurnar, sem ég ætti. Sjáið til, meira að segja þá vissi ég, að ég væri ekki bara hin venjulega Viv Asprey, og ég vissi, að eitthvað annað biði min en fátæktin og eymdin, sem rikti alls staðar í kringum mig; pabbi, sem drakk út atvinnuleysisstyrkinn, mamma veik af asma, sípúlandi til að halda liftórunni, og svo við börnin, sem undruðumst, hvernig lífið gæti verið svona rotið. En hvaða von hefur 10, 11 eða 14 ára krakki? Á þeim aldri eru viðhorfin dálítið sérstök. Ég hugsaði með mér, að dag einn myndu þeir reisa styttu af mér i miðri Castleford. Ég hugsaði alltaf með mér, að mér mundi hlotnast eitthvað, og ég bað þess, að ég fengi alla þá hluti, sem annað fólk hafði. Svo gerðist það allt í september — þegar ég var nýlega orðin 23 ára. Allt, sem mig hafði alltaf dreymt um — ég varð rík og fræg ó einum sólarhring. Við Keith vorum í Dorchester hótelinu i London, i veislunni, þar sem afhendingin fór fram. Ég var í fallegum svörtum klæðnaði og skóm, sem pössuðu við, með rándýrt gullúr, allt gjafir frá Littlewoods getraununum. Ég var meira að segja í glænýjum undirfötum, og ég var búin að lita hár mitt kampavínslitt. Ég hugsaði í sífellu: „Þetta er ekki ég.” Þetta var einkennileg, hræðslukennd til- finning.' Við vorum í stórum sal, fullum af Ijósmyndurum, blaðamönnum og fólki frá Littlewoods. Bruce Forsyth afhenti okkur ávísun að upphæð 152.319 pund. Ég skildi þetta varla — hvernig gat svona lítill bréfsnepill verið svona verð- mætur? Það hringsnerist allt í höfðinu á mér, og ég hálföskraði innra með mér af öllum þessum látum. Þá tók Bruce Forsyth utan um mig og sagði: „Sjáið alla þessa dýrð.” Það gerði útslagið! Ég fór að gráta. Þetta hafði allt gengið svo fljótt fyrir sig. Forráðamenn Littlewoods getraunanna höfðu skipulagt hverja minútu dagsins, og við Keith gátum ekki einu sinni talað saman. Það tekur tíma að skilja, að maður eigi 152.000 pund, þegar maður hefur vanist 7 pundum á viku. Við vorum fjóra daga i London, veittum fréttamönnum viðtöl og sátuiji veislur með forráðamönnum getraunanna. Ég hafði aldrei komið inn á hótel fyrr, og skyndilega bjuggum við á Grosvenor hótelinu, borðuðum fínar steikur og fórum út að skemmta okkur á Palladium og Pigalle á kvöldin. Við eyddum ekki eyri af okkar eigin peningum þessa fjóra daga. Meira að segja gjafirn- ar, sem ég keypti handa börnunum, komu frá Littlewoods. Fyrsta yfirsjón mín var liklega að kaupa leikföng handa börnunum hjá Harrods, í stað þess að kaupa föt á þau. Þau áttu aðeins einn fatnað hvert, sem ég var vön að þvo á kvöldin og láta þorna yfir nóttina, svo þau gætu notað þau aftur daginn eftir. En fatnaður kom mér aldrei í hug. Ég tók aðeins leikföng og sá fyrir mér andlit barnanna. Ég keypti dúkkur, járnbrautalestir, stóran bangsa og rugguhest. Þetta var eins og í ævintýri. Við fórum heim aftur með flugvél. Mamma og Geoff bróðir minn biðu okkar á flugvellinum, ásamt blaðamönnum. Jess systir min var heima hjá okkur og gætti 38 VIKAN 20. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.