Vikan - 13.10.1977, Side 10
PÖSTIRIM
HVAÐ ER TIL RÁÐA?
Kæri Póstur!
Ég þakka þér allt gamalt og
gott. Nú er svo komið, að ég er í
vandræðum með að ákveða, hvort
ég eigi nú að fara í skóla eða ekki í
vetur, einmitt nú! Ég fór í skóla í
fyrra og fékk ekki nógu góða
kennslu, og úr því mætti ég ekki
það vel. Nú er ég að vinna, og
skólarnir eru í þann veginn að
byrja, og ég er ekki einu sinni búin
að láta innrita mig, hvað þá heldur
að ákveða í hvaða skóla ég ætti að
fara. Ég eyddi nú einum vetri til
einskis, því ég var ekki nógu
áhugasöm við námið. Ég tími varla
að vera að eyða öðrum vetri til
einskis, því það tel ég glappaskot
á hæsta stigi. Það hefur ávallt
borgað sig að fara strax í skóla, ef
maðurætlar á annað borð. Svo er
gott að hafa einhverja menntun!
Það eru gerðar svo miklar kröfur til
skólafólks nú til dags, að maður
stendur varla undir þeim, því
miður. Þótt fólkið sjálft segi við
mann: ,,Það er engin að pína þig
til að læra," þá finnst manni það
samt því þetta er svo kröfuhörð
öld. Já, t.d. út af góðri, þægilegri,
ékemmtilegri og launamikilli
vinnu, svo eitthvað sé nefnt. Þetta
er rétt. Svo bætir ekki úr skák,
þegar manni leiðist að læra. Mér
finnst sum fög mjög erfið. Ég
vona, að þú getir ráðlagt mér
eitthvað af viti, því þetta er algjör
klessa. Ég veit varla, hvað ég vil
læra. 3. bekkur er fyrsta skrefið í
rétta átt, og svo sér maður til, eða
er ekki svo? Og svo langar mig til
að biðja þig um að svara nokkrum
spurningum fyrir mig, þó þær séu
fúlar í þínum augum!
1. Hvað lestu úr þessari frægu,
smáletruðu skrift?
(þarftu stækkunargler Póstur
minn? Ég sleppi því að spyrja um
aldur, því þú mundir hvort sem er
dæma eftir skriftinni sjálfri.)
2. Hvað lestu úr Ijónsmerkinu,
félagslega, andlega og persónu-
lega? (Fyrir 17. 8.)
3. Hvaða merki á best við Ijónið
af hinu kyninu? En sama? Ég veit,
að Helga rusló hefur verið mjög
svöng um leið og mín bréf birtast.
Ég skrifaði þér nú þrjú bréf, og
þetta er nr. 4, og ég vil fá birtingu
á þessu bréfi, og því þarftu
endilega að gefa greyinu að
borða. Því að nú er nóg komið. Ég
er búin að vanda bréfið eftir bestu
getu. Og sýndu mér meiri
virðingu, þó að aðrir' geri það
ekki. Nú biðst ég afsökunar á
öllum villum í bréfinu. Skriftin min
er bæði lítil, Ijót og barnaleg, ég
VEIT það. Uhum. Ég vonast eftir
svari. Með fyrirfram þökk fyrir
birtinguna. Þú mátt stytta bréfið,
ef þér finnst það of langt.
Ein í vafa.
Þegar þetta svar birtist þér, eru
allir skólarnir komnir í fullan gang,
svo lltið get ég hjáipað þér í þínum
málum. fíeyndar er það líka þér að
kenna, þú skrifaðir bréfið ekki fyrr
en í ágúst/ok, og hjá Póstinum
beið heill staf/i af bréfum, sem átti
eftir að svara, auk þess, sem
bréfin birtast aldrei fyrr en í fyrsta
lagi 3-4 vikum eftir að Póstinum
berastþau. Hins vegar tel ég mjög
æskilegt, að fólk reyni að. mennt-
ast eins og því framast er ðhnt, en
hæpið er, að nokkur árangur
náist, ef þér finnst svona leiðinlegt
að læra. Þú gætirnú unnið í vetur
og hugsað þín má! í ró og næði og
tekið að minnsta kosti ákvörðun
um, HVAÐ þú vilt læra, og skellt
þér svo í skóla næsta vetur. —
Skriftin þín er reyndar ekkert
FRÆG eins og þú virðist álíta, en
úr henni má /esa mikla fljótfærni,
og líklegast tekur þú oft ákvarð-
anir að óhugsuðu má/i. (Já, það /á
viö, að ég þyrfti stækkunargler!
Svo hefur þú orðið 16 ára þann
17. ágúst sl....) Frumeinkenni
/yndiseinkunnar þeirra, sem eru
fæddir 17. 8., eru rótegur virðu-
leiki. Þú ert göfug, ósérhlífin,
einlæg og þrautseig, og þeim,
sem á annað borð ná að kynnast
þér, þykir vænt um þig, þó þú
virðist merki/eg með þig á yfir-
boröinu. Ég skil nú ekki alveg
þetta með hvaða merki á best við
Ijónið af hinu kyninu... en
sama?... Hins vegar á steingeitin
eða hrúturinn best við Ijónsstelp-
una, en samband hennar við
fiskastrák ætti einnig að geta
b/essast prýðilega. Ef þú hefur
skrifað Póstinum 3 bréf áður, og
ekkert þeirra hefur birst, þá er
ástæðan sennilega sú, að þú hefur
ekki sett nafn þitt og heimilisfang
undir bréfin... einfö/d skýring!
Svo var ágætt hjá þér að biðjast
afsökunar á öllum vil/unum, þvi
satt að segja var ég orðinn hálf
þreyttur á aö leiðrétta allar þessar
villur! Svo er skriftin þín alls ekki
lítilij Ijót og þarnaleg. Svona i
lokin: Næst þegar þú sendir inn
/ausnir á gátum, viltu þá vera svo
góð að klippa blaðsíðuna niður,
eins og sýnt er með teikningum,
því það fer svo gífurlegur tími í að
klippa niður þessi svör, og ef allir
gerðu eins og þú, þá mættum við
hreinlega ekki vera að þvíaö draga
úr lausnunum!
EIN FORVITIN UM HELGA PÉ
Halló Póstur!
Best að snúa sér strax að
efninu:
1 Geturðu birt mynd af Helga P.
í Ríó og konunni hans í Vikunni?
2 Er konan hans Helga búin að
eiga?
3 Ef svo er, hvort var það
drengur eða stúlka?
4 Hvað heitir konan hans
Helga?
5 Hvað eru þau gömul?
6 Hverjir syngja hvaða lög á Ríó
plötunni?
Hvað lestu úr skriftinni, hvað
heldurðu, að ég sé gömul, og
hvernig er stafsetningin? Með
fyrirfram þökk fyrir birtinguna, ef
ruslakarfan hún Helga er ekki
svöng.
Lóló.
Auðvitað átti þetta bréf eigin-
/ega að fara beint í körfuna, en
það birtist hér með til að þiö
lesendur Póstsins lærið eitt: Helgi
P. og aðrir góðir menn (og konur)
— mega eiga sitt einkalíf í friöi, og
hvorki mér né þér kemur við,
hvort konan hans er búin að eiga,
né nokkuð annað, sem varðar
hann og hans fjölsky/du. A. m. k.
væri mér mjög illa við, að mitt
einkallf birtist á prenti fyrir
almenningil! Útrætt máll — Þeir
Rfó félagar skipta söngnum a
p/ötunni mjög réttlátlega á mi/li
sín, og yrði alltof langt að fara að
telja hér upp, hver syngur hvaða
lag. Þú veröur bara að reyna að
þekkja raddir þeirra í sundur!
Skriftin ber vott um a/veg ótrúlega
forvitni um annarra hagi, þú ert
svona 13 ára, og stafsetningin er
léleg.
HJÁLP, HJÁLP, ÉG ÞARFNAST
HJÁLPAR
Hæ, yndislegi, skemmtilegi og
háttvirti Póstur!
Nú er ég í miklum vandræðum.
Geturðu nokkuð hjálpað mér? Þaö
er þannig, að ég er svo hrifin af
strák. Ég tala stundum við hann,
en hann horfir alltaf á mig, þegar
hann sér mig. Ekki segja: Hættu
bara að hugsa um hann. Viltu nú
leggja höfuðið í bleyti fyrir mig?
Segðu mér, hvað ég á að gera.
Jæja að lokum, þetta gamla:
Hvaða litur og happatala er fyrir
þá, sem eru fæddir 18. mars?
Hvað heldurðu, að ég sé gömul,
og hvað lestu úr skriftinni?
Ein að deyja úrást.
Já, svo sannarlega ertu í
nauðum stödd, og þarfnast hjálp-
ar! Haltu bara áfram að tala við
hann, láttu hann halda áfram að
horfa á þig, og svo hlýtur þetta
einhvern veginn að bjargast með
tímanum. Ég lagði höfuðið í bleyti
fyrir þig, en af hverju átti ég aö
gera það? Happalitur þeirra, sem
eru fæddir 18. mars, er blárautt og
happatölur eru 3 og 9. Þú ert
svona 14 ára, og skriftin bendir til,
að þú sért með afbrigðum
óþolinmóð og um leið ósjálfstæð.
— Heyrðu! Svo skrifarðu undir
bréfið: EINN að deyja úr ást...
Ertu ekki kvenmaður??
UNNUSTA EFTIR FJÖGUR
KVÖLD!
Komdu sæll ágæti Póstur!
Ég hef aldrei skrifað þér áður,
en núna ætla ég að leita ráða hjá
þér. Þannig er mál með vexti, að ^g
er ofboöslega hrifin af strák og
held, að hann sé eitthvað hrifinn
af mér, a.m.k. kallar hann mig
alltaf unnustu sína, eða segir það
við vini sína. Ég hef verið með
honum í fjögur kvöld, en einu
sinni hleypt honum upp á mig, og
ég hef þekkt hann í eitt ár. En nú
er þannig komið, að ég hef ekki
heyrt frá honum í lengri tíma,
hann hefur ekki einu sinni hringt í
mig. Ég hef frétt hjá vinum hans,
að hann sé alltaf á böllum. Hvað á
ég að gera? Segöu mér ekki að
gleyma honum, því það get ég
ekki. Og svo það venjulega: Hvað
lestu úr skriftinni og hvað
heldurðu að ég sé gömul? Hvernig
eiga tvíburi (stelpa) og meyjan
(strákur) saman? En tvíburi
(stelpa) og vogin (strákur)? Með
fyrirfram þökk fyrir birtinguna,
M.J.H.
Já, þaö væri synd að segja, að
hann sé ekki fljótur að verða sér
úti um unnustur þessi vinur þinn!
Unnusta eftir fjögur kvöld???
Tekur hann alltafsvona stórt upp í
sig? — Ég ætla ekki að segja þér
að gleyma honum, ég veit það er
erfitt, en hins vegar ætla ég að
ráðleggja þér að finna þér nýjan
og reyna að sætta þig við orðinn
hlut. Stráksi hefur greinilega ekki
10 VIKAN 41. TBL.