Vikan


Vikan - 13.10.1977, Qupperneq 13

Vikan - 13.10.1977, Qupperneq 13
lœflngar búðum Francoise Vandermeersch, franska nunnan sem kommúnista- stjórnin í Víetnam fékk til að kom á fót endurhæfingarstöövum fyrir vændiskonur. haföi hún tekið þátt í alþjóðlegu hjálparstarfi í Víetnam eftir fall Saigon árið 1975. Því má bæta við að systir Francoise, eða Francoise Vandermeersch, eins og hún heitir fullu nafni, er mjög vel þekkt í sínu heimalandi, og nýlega kom út bók, þar sem hún segir frá lífi sínu og viöhorfum. En aftur til Víetnam. Árið 1965 lét stjórn Thieu þau boð út ganga, að stofnaðar yrðu „frístunda- búðir" í helstu setuliðsborgum Suður-Víetnam. Vændi, sem segja má, að hafi fram að því verið eins konar „heimavinna," varð að meiri háttar atvinnugrein og vænni tekjulind fyrir stjórnvöld. i ,,fr/stundabúðum" á dögum stríðsins. Félagsmálaráðuneytið sendi út skrifleg fyrirmæli, þar sem kveðið var á um uppbyggingu • og tilhögun „frístundabúðanna." Þar sagði meðal annars, að hverjum búðum skyldi skipta í tvö svæði: Svæði „vændis og unaðar" annars vegar og íbúðasvæði hins vegar. Undir íbúðasvæðið heyrðu m.a. íbúðir vændiskvenna, lækna- stofur, skrifstofa ráðsmanns og hin „hin andlega deild", þar sem stúlkurnar gátu tekið á móti kennslukonum og kirkjunnar þjón- um. í kaflanum um framkvæmd nefndra reglna kom m.a. fram, að viðskiptavinurinn átti að borga tvisvar. Fyrst greiddi hann að- gangseyri og síðan fyrir veitta ánægju. Framkvæmdastjóri búð- anna hélt aðgangseyrinum að undanskildu 20-30% gjaldi, sem rann til hins opinbera. Viðskipta- vinurinn greiddi síðan vændis- konunni með miða, sem hann keypti, og í lok hvers dags framvísaði stúlkan miðum sinum hjá gjaldkera, sem skipaður var af rikisstjórninni. Fjórðungur þess, sem kom í hlut stúlknanna, var lagður inn í sparisjóð sem framtiðar- og ellitrygging. Þessi skriflegu fyrirmæli voru send til yfirvalda í Saigon, Da Nang, Dalat, Hué, Bien Hoa, Kontum og Pleiku — staðanafna, sem heims- byggðin tengdi blóðugum vígvöll- um, en ekki umfangsmiklum hóruhúsarekstri. Þegar friður var saminn og Bandaríkjamenn héldu heimleiðis, var fótunum kippt undan þessum blómlega atvinnuvegi. „Frí- stundabúðirnar" voru lagðar nið- ur, og í staðinn er verið að koma á fót endurhæfingarbúðum fyrir stúlkur, sem höfðu farið beint úr foreldrahúsum í „frístundabúðirn- ar," menntunar- og starfsreynslu- lausar. Þær endurhæfingabúðir, sem þegar hefur verið komið upp, eru í nágrenni Saigon og rúma þær um 2000 stúlkur. f endurhæfingarbúðunum er litð á stúlkurnar sem fórnarlömb stríðsins rétt eins og særða og limlesta. Þær mæta ekki fyrir- litningu, og enginn gefur þeim óhýrt auga. Það er komið fram við þær með virðingu, enda er það talin vænlegasta leiðin til að efla styrk þeirra, sem misst hafa virðinguna fyrir sjálfum sér. Dagskráin í endurhæfingabúð- unum er mjög ströng: Stúlkurnar byrja daginn klukkan 5.30 með hálftíma leikfimi, sem er skylda. Síðan fá þær súpu, áður en vinnan hefst. Þær vinna bæði úti og inni, eftir árstíðum og við- fangsefnum. Þær vinna að garð- rækt, húsdýrarækt, flétta úr tágum, móta úr leir og sauma. Klukkan hálftólf er hádegismatur: Hrísgrjón, grænmeti, fiskur — og stundum svolítið kjöt. Með kjöt- meti eru þær betur settar en aðrir Vletnamar, sem ekki fá kjöt eða fisk nema þriöja hvern dag. — Síðdegis er tíminn notaður til bóklegs náms og félagslegrar fræðslu. Frístundabúðunum hefur verið líkt við „gullslegin fangelsi", en þótt dagskrá endurhæfingarbúð- anna minni að vissu leyti á dagskrá fangelsis, finnst stúlkun- um þær þó hafa fundið frelsið. Þarna standa þær saman, þær skipta sér í 10-15 manna hópa og kjósa fulltrúa til að taka þátt í stjórn búðanna. Þær eru virkir þátttakendur í því sem er að gerast, eru stoltar yfir framförun- um og tilbúnar að byrja nýtt líf. 41.TBL. VIKAN13

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.