Vikan


Vikan - 13.10.1977, Side 22

Vikan - 13.10.1977, Side 22
nauðsynlegt að sjá mig. Það vakti mér undrun. Nú skil ég, hve satt það er. Þú ert eetíð hér. Ég sé þig alls staðar, þú ert með mér i öllu, jafnvel hinu smœsta og hversdagsleg- asta....” Von Liszts óx: ,, Það greiðist úr skýjunum, þau hverfa.... Ég les aftur og aftur síðustuorðþín. Ég trúi aftur álifið, á þig, á guð... 0, hve síðasti kossinn þinn brennur enn heitt á vörum mínum”. Hann vildi, að Marie væri alveg viss um sig sjálfa, ef hún veldi að halda sambandi þeirra áfram. „Marie! Sá dagur, þegar þú af heilum huga og hjarta getur sagt: Franz, við skulum um aldur og ævi gleyma og fyrirgefa allt hið ófullkomnu í fortiðinni, við skulum vera hvort öðru allt. Þann dag (megi hann brátt koma) munum við vera langt frá öllum, iifa alein, elskast og deyja!” Gegnum Liszt hafði Marie kynnst rithöfundinum George Sand. Hún drakk isigbækur hennar, sem réðust gegn hinum hefðbundna hjúskap og hélt fram rétti frjálsra ásta. Það var einsogorðunumværi beint til Marie. Eftir margra vikna kvalræði og efasemdir tók hún ákvörðun sína. Hún ætlaði að yfirgefa eiginmann og börn. Héðan í frá ætlaði hún að Ufa opinberlega með þeim manni, sem hún elskaði. Það var réttara að slíta hjónabandinu en að lifa tvöföldu lífi og tapa sjálfsvirðingunni. Marie skrifaði Liszt og sagði honum frá ákvörðun sinni. Þeim kom saman um, að hann færi einn tU Sviss og hún kæmi á eftir honum. Kvöld eitt hélt hún veislu fyrir alla vinina í Paris. Gestirnir voru sam- mála um, að svona stórkostlegri veislu og fullkominni húsmóður hefðu þeir ekki lengi átt að fagna. Engan grunaði, að þetta væri Greifynjan og Frans Liszt kveðjuveisla hinnar heiðvirðu d’Agoult. Um miðnætti læddist hún óséð frá gestunum, skipti á veisluklæðunum og fór i dragt, yfirgaf húsið og steig innívagn.sembeið fyrir utan. Ferðin til Sviss var hafin. í París olli flótti Marie d’Agoult miklu uppnámi og var samræðuefni manna á meðal lengi á eftir. Ötrúlegastiorðrómurkomst á kreik. Vinsælust var sú tilgáta, að Liszt hefði flutt greifynjuna burtu með valdi. Þegsu- það svo vitnaðist, að Marie hefði af fúsum og frjálsum vilj a yfirgefið mann sinn tikað lifa í synd, voru menn afar ásakandi. Það var allt í lagi að eiga sér elskhuga, en að eyðileggja hjónaband og lifa opin- berlega i synd var forkastanlegt — slíkt hæfði ekki — síst af öllu aðalskonu! I tvo mánuði ferðuðust Liszt og Marie um Sviss. Þau bjuggu í smábæjum, þar sem enginn kann- aðist við þau. Þau gátu lifað ótrufluð ognotiðástarsinnar. Enpeningamir þurrn, ogþauurðu að leigja sér hús i útjaðriGenf, ogLiszt tók nemendur í tíma. Marie óttaðist sífellt að hitta kunnuga. Hún vissi mæta vel, hvað þeir hugsuðu um hana. En senn myndi fólk fá sönnun fyrirþví, að það var einstök ást, sem hafði fengið hana til að gleyma skyldum sínum. Liszt yrði ennþá meiri listamaður og það yrði ást hennar til hans að þakka. Liszt og Marie urðu að lifa spart. Það kvaldi Liszt, að Marie, sem var vön alsnægtum, væri neydd til að snúa hverjum eyri. Til að afla tekna fórhannílangarhljómleikaferðir. En vikumar án hennar vom erfiðar: , ,Ó, ég geri ekki annað en að hugsa um þig. Kæra blóm, því hefi ég yfirgefið þig? Þvi miður hefur þú látið mig fara? ó, við erum svo skynsöm! Ef þú nærir minnstu von um að hitta mig, þá láttu hana rætast! Þú munt finnamig — mjög einmana, svo afar einmana!” Marie heimsótti hann, og þau eyddu nokkmm hamingjuríkum dögum saman. Þegar hún var aftur heima í Genf, skrifaði hún: „Kærióviðjafnanlegi....Loftiðer hreint, himinninn fagur, jörðin ung, hjartamittfulltafþrá... ogmyndþin alls staðar, skiroggeislandi... Veistu hvers ég minnist best úr siðasta samtali okkar? Þú sagðir: Lifið með þérersvofagurtogljúft.... Orðin em tónlist, sem fylgir mér hverja stund, hverja minútu... 1835 ól Marie dóttur. Liszt var afar hamingjusamur. Til að Marie gæti náð sér vel eftir fæðinguna, ferðuðust þau undir dulnefni til Chamonix. George Sand var með í förinni og tveir aðrir vinir. Liszt skrifaði í gestabókina: „Tónlistar- heimspekingur, fæddur í Pamasse, kem frá Efanum á leiðitil Sannleikans. ’ ’ Uppi í fjöllunum vom vinimir fimm lausir úr viðjum vanans. Þau skemmtu sér hömlulaust og sném upp og niður öllu á hótelinu. Gest- gjafinn og hinir gestimir vom hræddir og hneykslaðir. Þeir héldu, að Liszt og félagar væm þorparar, sem fæm um til að ræna og skelfa fólk. Síðar skrifaði George Sand, að gestgjafinn hefði talið silfurskeið- arnar sínaroft á dag og ensku frúmar hefðu læðst framhjá dymm þeirra og vemdað sína nánustu af hræðslu við að verða fyrir árásum. 1837 fæddist þeim önnur dóttir. Skömmu síðar fór Liszt til Vínar til að halda hljómleika. Upphaflega var ráðgert, að hann yrði átta daga að heiman. Dagarnir urðu að vikum, og hann kom ekki. Marie var veik af þrá og örvæntingu. Með biturleika i hjarta fann hún, að samband þeirra varbreytt. Liszt átti auðveldara með að vera án hennar. Hún var honum ekki allt lengur. Hann skrifaði henni, að áheyrendur krefðust tíma hans og athygli. Hvað með hana? Meðan haníi var tignaður sem guð, varð hún að bíða í einsemd. Marie var óánægð og vonsvikin. En þegar Liszt snéri heim að mánuði liðnum, gleymdi húnöllu angri. Hún varhamingjusöm — þangað til hann fór af stað í nýja hljómleikaferð. Og það gerðist nú æ oftar. Þegar hann útskýrði það fyrir henni, að hann mætti ekki svíkja áheyrendur sína, ásakaði hún hann og sagði að hann væri að svíkja hana! Draumur Marie um frægð hans og frama sem stórbrotins listamanns var upp- fylltur. En hún hafði ekki tekið það með í reikninginn, að það fól í sér, að hann hafði minni tíma til að gefa henni. Það stoðaði lítið, þó að hann reyndi að sannfæra hana um, að ást hansværijafnheitogfyrr. Liszt varð vonsvikinn — og ergilegur — yfir tortryggni Marie. , ,Ég elska þig innilega — en ég get ekki sýnt það eins og þú óskar. Hvers vegna krefst þú þess, að ég fómi sál minni fyrir þig og búi ástina í fögur orð? Eftir að Marie og Liszt eignuðust sittþriðjabarn — son — flutti hún og bömin til Parisar. Liszt ól þá von í brjósti, að henni fyndist hún ekki eins einmanaþar. Fjölskylda hennar hafði veitt henni fyrirgefningu, og auk þess vom margir vina þeirra búsettir í París. Þeir mundu annast hana. Marie gat nú ekki lengur kvartað yfir einmanaleika. En nú sakaði hún hann um að vera sér ótrú. Hann var alltaf umsetinn fögmm konum, og það fór ekki hjá því, að mikið var slúðraðum hann. Marie trúði hverju orði, reifst og krafðist nákvæmra skýringa. Hann varð að gefa skýrslu um allt, sem hann sagði, gerði og hugsaði. Ástandið varð æ meira óþolandi fyrir Liszt. Hann aðvaraði hana: „Þörfin fyrir að ráða, jafnvel undiroka, er það ekki einn af mest áberandi eiginleikum þínum? I sex ár hafði Liszt verið Marie trúr. Ef til vill ráku stöðugar ásakanir hennar hann til að vera henni ótrúr. Að minnsta kosti hafði Marie ástæðu til afbrýðisemi frá árinu 1840. Liszt dáði fjölmargar konur. Nú höfðu þau fjarlægst svo mikið, að Marie fullyrti: ”Eitt sinn kostaði slúðrið mig bitur tár. En nú?! Ætti ég að vera glöð yfir því, eða örvingluð?” Hljómleikahald Liszt var nú orðið svo umfangsmikið, að hann var aðeins með Marie og bömunum sumarmánuðina þrjá ár hvert. Þau eyddu alltaf fríinu á eyjunni Nommenverth í Rín. Sumarið 1844 varþeirra síðasta saman. Ástæðuna fyrir endanlegum aðskilnaði þeirra er ekki vitað um. En Marie var full af hefndarhug, þegar hún snéri til Parísar. Undir dulnefninu Daniel Stem gaf hún út skáldsöguna „Nélida”. Þar er sagt frá ástarsam- bandi, þarsem manninumerlýst sem ómerkilegri persónu. öllum var ljóst, að Marie skrifaði um sig og Liszt. Bókin vakti eftirtekt, en fékk slæma dóma. Um leið og hún sverti Liszt í „Nélida”, skrifaði hún í dagbókina: „Ég elska hann miklu meira en ég voga að viðurkenna fyrir sjálfri mér. Þetta er eilíf ást. Fólk heldur að ég sé hætt að elska hann. Það er mikill misskilningur! Hann verður alltaf sá eini sanni....alltaf!” 22 VIKAN 41. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.