Vikan


Vikan - 13.10.1977, Side 43

Vikan - 13.10.1977, Side 43
Genoa í síöustu viku í vitna viðurvist,” sagði hún við lækninn. „Lestu þetta.” „Viltu gjöra svo vel að lesa þetta upphátt, Cesare,” sagði markgreif- inn. . Tessaro ræskti sig. „Játning Filomenu Malaspinu, síðar þekkt sem Tebaldi: Þegar ég var ung stúlka, vann ég við þjónustustörf í kastalanum í Eoccaleone. Ég varð ástfangin af eldri syni markgreifans Oreste Malaspina. Lengi vel reyndi hann að fá mig sem lagskonu sína, en ég neitaði. Þá bað hann mig að hlaupast á brott með sér. Við vissum bæði að fjölskylda hans myndi aldrei sam- þykkja giftingu okkar, svo ég samþykkti að hlaupast á brott með honum. Þetta gerðum við. Við flúðum til Róm og þar giftum við okkur. Frá Róm fórum við til Naples, þar sem við stofnuðum heimili. Ég var ákaflega hamingjusöm, en að nokkrum vikum liðnum gerðist Oreste mjög þver og stifur. Hann ók bara í burtu og kom oft ekki heim í nokkra daga. Ég reyndi að álasa honum ekki, en venjulega endaði þetta samt með rifrildi. Svo komst ég að því, að ég átti von á barni. Ég vonaði að þessi tíðindi yrðu til þess að eiginmaður minn róaðist. En í þess stað varð hann æfareiður. Hann sór að hann myndi strax fara og aldrei koma aftur. Þegar ég minnti hann á, að við værum gift, sagði hann mér að athöfnin hefði verið fölsuð, sett á svið af vinum hans. Það hefði verið leikið á mig, saklausa sveitastúlk- una. Hann skellti á eftir sér og ók á burtu. Klukkutima seinna kom lögreglan. Oreste hafði lent í slysi og lá meðvitundarlaus á spítala.” „Hún hringdi til min,” sagði markgreifinn annarlegri röddu. Hún var góð stúlka og það fyrsta, sem hún hugsaði um, var fjölskylda Oreste. Við fórum til Naples, Vittorio og ég. Oreste komst aldrei til meðvitundar. Hann lá þarna í fjóra mánuði, áður en yfir lauk. Haltu áfram, Cesare.” „Þegar markgreifinn kom sagði ég honum ekki frá þessari fölsuðu giftingarathöfn. Ég skammaðist mín svo. Ég vissi að allir heima myndu hlæja að mér, fyrir að vera svo einföld, að halda að einhver af Malaspinaættinni myndi giftast sveitastúlku. Oreste hafði bara viljað likama minn, og aðeins stuttan tíma. Svo ég sagði ekkert við markgreifann annað en að ég gengi með barn Oreste. Beppo Tebaldi vann um þetta leyti á bílaverkstæði í Naples. Hann var fús að giftast mér. Markgreifinn var mjög örlátur við okkur. Við vorum áfram í Naples, þangað til °í SKUGGA %/ÓNSINS Oreste dó, þó fórum við til Roccaleone. öll þessi ár, hefur aldrei annað hvarflað að mér, en að Oreste hafi leikið illilega á mig. Þangað til fyrir þrem vikum. Ég var í stuttu leyfi hjá Matteo í Róm. Dag nokkum, þegar ég var úti að ganga, ávarpaði gamall prestur mig. Hann sagði, að ég hefði breyst lítið síðan ó brúð- kaupsdaginn, og þá þekkti ég aftur prestinn, sem hafði gefið okkur saman. Þá fyrst komst ég að því, að hann var fullgildur prestur og að athöfnin hefði verið í alla staði lögleg, eins og ég hafði fyrst haldið....” Tessaro þagnaði. „Ja, héma,” hrópaði hann upp yfir sig. „Hérna er ég með yfirlýsingu frá prestinum,” sagði Carla, „og hér er líka giftingarvottorðið. Filomena fékk þetta hvort tveggja í Róm, áður en hún fór þaðan. Sennilega hefur Oreste ætlað að segja henni, að hann hafi bara skrökvað þessu að henni til þess að særa hana, þegar hann kæmi úr ökuferðinni, en hann kom auðvitað aldrei aftur. Þegar Filomena kom til mín, var hún í mjög erfiðri aðstöðu. Hún giftist Beppo, áður en Oreste dó, svo sú gifting var ólögleg. Hún varð að ákveða, hvort hún vildi halda áfram að búa með honum. Þau hefðu þá orðið að giftast aftur.” Framhald í næsta blaði. !||||#|lll t viKuseljabílinn? Þá auglýstu hann hér í smáauglýsingum Dag- blaðsins og fáðu öll nauðsynleg eyðublöð (þ.á.m. afsalseyðublað) ókeypis i afgreiðslu Dag- blaðsins að Þverholti 2. Þar færð þú einnig skriflegar leiðbeiningar um hvers gæta þarf við frágang sölugagná. Þverholti 2 sími 2 70 22 J Smáauglýsingar WMBimm Bílaviðskipti i 41.TBL. VIKAN43

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.