Vikan - 14.12.1978, Qupperneq 8
HINN
FURÐULEGI
EDGAR
CAYCE
En árið 1931 var nýjum félagsskap
komið á fót í þessu skyni. Einkum stóðu að
því menn sem heima áttu á Virginia Beach
og í nálægum héruðum. í þessu sambandi
þurftu Cayce-hjónin að fara til New York,
og þótt ótrúlegt megi virðast voru þau
tekin þar höndum! Þau voru ákærð fyrir að
spá fyrir fólki. Tildrög þess voru þau að
tvær lögreglukonur, klæddar venjulegum
borgaralegum fötum, höfðu komið til
Edgars þar sem hann bjó á hóteli ogþrábáðu
um hjálp. Hann hélt fund fyrir þær.
Þessu máli var vitanlega þegar vísað frá
dómi af dómara sem meira hafði til að bera
af almennu velsæmi en ofsækjendur Edgars.
Það mikilvægasta sem ávannst með
sjúkrahússtofnun Edgars Cayces eru
vafalaust hinar vandlega spjaldskráðu
skýrslur af fundum þeim, sem hann hélt
árum saman og árangri þeim sem
lækningarnar höfðu í för með sér. í
skýrslum þessum er getið margra tilfella,
þar sem Cayce í dái fór afturábak í tíma
gegnum lif fólks sem hann hafði hvorki
heyrt né séð og gat þá atriða úr lífi þess,
sem hann taldi að áhrif hefðu haft á
heilsuna. Þar gat hann nafna, staða og tíma
og í ýmsum tilfellum atvika sem talin voru
svo þýðingarlítil þegar þau gerðust, að þeir
sem í hlut áttu voru búnir að gleyma þeim.
— Ég tek aftur allar illkvittnislegu
athugasemdirnar um rakspírann,
sem þú gafst mér í afmælisgjöf
síðast.
Skýrslur þessar eru vafalaust eftirtektar-
verðustu skriflegu sönnunargögn í
heiminum um skyggni, sem nokkurs staðar
hefur verið safnað á einn stað.
Skal hér getið um eitt slíkt tilfelli.
Þetta fjallar um lyf sem Cayce krafðist
að notað væri, en enginn kannaðist við.
Kallaði hann það reykolíu. Sjúklingurinn
sem bjó í Louisville gat hvergi fengið lyf
með þessu nafni. Cayce fór þá aftur í
leiðslu og skýrði frá því í hvaða lyfjabúð
þetta fengist. En hann fékk innan skamms
símskeyti um það, að búðin hefði ekki þetta
lyf. Aftur fór Cayce í leiðslu. Nú sagði
hann sjúklingnum að biðja afgreiðslu-
manninn að gá að því á bak við önnur lyf á
vissri hillu í búðinni. Það var gert og þar
fundust þrjú glös af reykolíu og voru
miðarnir á þeim orðnir gulir af elli. En lyfið
hafði tilætluð áhrif.
Cayce-hjónin bjuggu nú áfram á
Virginia Beach við kröpp kjör. Þau voru
farin að láta á sjá fyrir aldurs sakir og ef til
vill ekki síður sökum hinnar sterku
andstöðu og andúðar, sem þau áttu að
mæta frá læknum. En þau veittui
börnum sínum gott uppeldi og báru sig vel
þrátt fyrir allt, sannfærð um það, að þau
hefðu varið hæfileikum Edgars vel. Eins og
mörgum öðrum fyrr og síðar var trúin
þeim styrkur i örðugleikum og andstreymi
lifsins.
Edgar Cayce lést í stríðslok 1945, sextíu
og sjö ára gamall. Hann var þá orðinn
útslitinn og örþreyttur eftir margra ára
óþreytandi mannúðarstörf fyrir meðbræð-
ur sína.
Hvað hann gerði og hvernig má lesa í
skýrslum hans í stofnuninni á Virginia
Beach í Virginia-fylki í Bandaríkjunum.
Með aðstoð hans hafa rúmlega tólf þúsund
manns náð aftur fullri heilsu með því að
fara að þeim ráðum sem hann lagði til og í
ýmsum tilfellum var um að ræða sjúkdóma
sem taldir voru ólæknandi með venju-
legum aðferðum læknavísindanna og
sjúklingar því sviptir allri batavon.
Þrátt fyrir þetta stórmerka skýrslusafn
Edgars Cayces sem allir eiga aðgang að til
rannsókna hafa hin hefðbundnu lækna-
vísindi ekki gefið því minnsta gaum. Eftir
að hafa hlegið að Cayce lifandi, láta þessir
lærðu menn eins og hann hafi aldrei verið
til, að honum látnum.
Hinar heimspekilegu hliðar á lífi og starfi
Edgars Cayces eru ræddar í ágætri bók eftir
Ginu Carminara, amprískan sálfræðing.
Bókin heitir á ensku Many Mansions, en
hlaut í íslenskri þýðingu minni nafnið Svo
sem maöurinn sáir.
Af öðrum bókum sem út hafa komið á
íslensku um Cayce má nefna Edgar Cayce
— undralœknirinn og sjáandinn eftir Elsie
Sechrist og Jesús Kristur í dálestrum
Edgars Cayces eftir Jeffrey Furst.
Endir
OLIKI
HE
Úti er dynjandi slagviðri. Við hristum
vetrarkrapann af gegnvotum skófatnaði í
anddyrinu, áður en við göngum inn í
hlýlega stofuna á Hagamel 28. Þarna er
margt fágætra muna hvaðanæva úr
heiminum, og okkur verður starsýnt á
málverkin, sem þekja veggina. Mörg sýna
greinileg áhrif frá framandi umhverfi, enda
máluð af húsmóðurinni, frú Öldu
Snæhólm, sem bjó á fjarlægum slóðum í
fjölda ára, þar á meðal Tyrklandi og Perú.
Tilgangurinn með heimsókn okkar er
einmitt sá að fá hana til að segja okkur
ofurlítið frá lífi sínu þar.
Alda stundaði nám í málaralist við
listaskóla í Róm og Líma, höfuðborg Perú,
og hefur haldið sýningar á verkum sínum
bæði hér heima og erlendis.
Hún var gift Hermanni Einarssyni,
fiskifræðingi, sem lést í bílslysi í Aden, á
jóladag fyrir 12 árum.
Árið 1958 bauðst manninum minum
staða í Tyrklandi á vegum FAO, en það er
sú stofnun Sameinuðu þjóðanna, sem veitir
aðstoð við þróunarlöndin. Þetta gerðist á
hafrannsóknarráðstefnu í Kaupmanna-
höfn, og við höfðum tæpan mánuð til
undirbúnings. Við fórum siðan heim til að
ganga frá málum okkar, leigja húsið og
senda nauðsynlegasta húsbúnað, rúmföt og
hlýjustu fötin okkar af stað til Tyrklands,
Höfnin f Istanbul.
8 Vikan 50. tbl.