Vikan - 14.12.1978, Side 9
R
IMAR
því okkur hafði verið sagt að veturnir væru
engu siður kaldir þar en hér heima. Ég
notaði líka tímann til að lesa mér til um
Tyrkland, og mér virtist landið mikill
ævintýraheimur.
Við lögðum svo af stað til Tyrklands í
desemberbyrjun, en komum við í
aðalstöðvum FAO í Róm, þar sem
Hermann var settur inn í nýja starfið. Það
var fólgið í að byggja upp
hafrannsóknarstöðvar og kenna
innfæddum nauðsynleg vinnubrögð í því
sambandi.
Myndir úr Þúsund og
einni nótt
Og Tyrkland brást svo sannarlega ekki
vonum okkar. Við bjuggum í Istanbul, sem
hafði haldið uppruna sínum og lítið breyst
gegnum árin. Gömlu byggingarnar og
soldánshallirnar voru i raun og veru eins og
myndir úr Þúsund og einni nótt.
Við bjuggum fyrst á hóteli, en þar fengum
við stórt og fallegt herbergi. Mér eru dyrnar
sérlega minnisstæðar, hurðin var svo þykk,
að hún hlýtur að hafa verið skotheld! Það
var hreinasta ævintýri að sitja við gluggann
og horfa yfir borgina þar sem bæna-
hússtumana bar við himin. Þeir em jafn-
margvislegir og bænahúsin sjálf, sumir
frábærlega skrauílegir, aðrir íburðarminni
og fátæklegri. Almenningur er afar
fátækur, en þó að stéttaskipting sé mikil er
þeim ekki meinaður aðgangur að hinum
skrautlegu bænahúsum, heldur er þar
hverfaskipting sem ræður.
Múhameðstrúarmenn hlýða Kór-
aninum út í ystu æsar og biðjast fyrir
fimm sinnum á dag á tímabilinu frá sólar-
upprás til sólarlags. Bænahald þetta fer
fram á vissum tímum, hvar sem fólkið er
• statt. Allir kasta sér á hnén, leggja hendur á
jörðu, ennið á handarbökin og tilbiðja
Allah. Þetta er hin ágætasta líkamsæfing,
enda var Múhameð ákaflega heilsu-
samlegur spámaður.
Samkvæmt Kóraninum mega þeir ekki
drekka vín. Hins vegar stendur þar ekkert
um sterka drykki. Þeir drekka því anís-
brennivín, sem þeir nefna Rakí með mat, 1
Sprittpottar fró Tyrkiandi.
í þeim mó halda mat heitum fyrir 30 manns.
Akta á hatenHI shtu. A vaggnum fyrir ofan hangir nýjasta mynd hennar.