Vikan


Vikan - 14.12.1978, Síða 22

Vikan - 14.12.1978, Síða 22
WILLY BREINHOLST INI-KRIMMINN Þýð. Jóhanna Þráinsdóttir. HARMLEIKUR VIÐ DJÖFLAGJÁ Það var alltaf heitt í þessum hluta Kaliforníu. Þétt hitaslæða lá yfir öllu og í gegnum hana sendi sólin brennandi geisla sína. Bak við fjöllin í austri birtust óveðursský á himninum. Brúnir akrar liðu hjá beggja vegna bílsins, eins og kryppluð ábreiða. Ralph mókti við stýrið og fylgdist sljólega með því hvernig bíllinn sniglaðist áfram á sjóðheitu malbikinu, framhjá tilbreytingarlausum röðum af akasiutrjám. Hann hafði ekið í sex klukkustundir og aðeins einu sinni numið staðar við bensínstöð til að fá sér vatn. Hann notaði það til að skola niður pillunum sínum. Hann hafði drukkið stift kvöldið áður. Annars var hann ekki vanur því að drekka of mikið. Ástæðan fyrir þessari drykkju var konan hans, hún Prímúla. Hann hafði lent í deilum við hana eins og venjulega. Hún hafði hrjáð hann í 17 löng ár. Og nú voru þau í sumarleyfi. Ætluðu að ferðast um Kaliforníu. Hann sat undir stýri frá morgni til kvölds, meðan Prímúla naut lífsins í hjólhýsinu með hauga af tísku- blöðum og konfektöskju. Konfekt og tískublöð var það eina, sem hún hafði áhuga á. Ekkert annað. Hann hataði hana, hafði alltaf hatað hana. Hún hafði eyðilagt líf hans. Hún var sínöldrandi og talaði aldrei öðruvísi við hann en í þessum lítilsvirðandi skipunartón sem hann þoldi ekki. En hann þorði ekki að gera uppreisn. Hún hafði hann alveg í vasanum, hann var ekki annað en litiifjörlegur, kúgaður eigin- maður, sem hlýddi öllum hennar duttlungum. Það tók að rigna. Regndroparnir buldu á hliðar- speglinum. Það fór hrollur um Ralph í opnum bílnum. Hann jók hraðann dálítið. Ætti hann að aka út fyrir veginn, nema staðar og leita skjóls undan regninu í hjólhýsinu hjá Prímúlu? Nei, þá var betra að verða gegnvotur. Þrumurnar létu ekki á sér standa og það glampaði á eldingarnar í skýjaþykkninu. Þrumuhvinurinn í fjöllunum minnti á garnagaul í galtómum maga. Ralph varð aftur hugsað til Prímúlu. Hún hafði ofsótt hann í 17 löng ár. Hann gat ekki hugsað sér að líða svona i 17 ár í viðbót. Hann gældi um stund við eftirlætishugarfóstrið sitt. Prímúla átti það til að ganga í svefni. Ef hún sofnaði nú einhvern daginn þarna í hjólhýsinu, opnaði dyrnar í svefni og stigi beint út í tómarúmið . . . meðan billinn þyti áfram á fullri ferð? Hann var 52 ára gamall. Hans biðu enn ýmis tækifæri í lífinu, ef hún... Hann jók enn hraðann. Svo snerist honum hugur og hann hægði aftur á bílnum. Nei, það var ekki rétt af honum að hugsa svona. Honum var nær að horfast í augu við þá staðreynd að hann mundi aldrei losna við hana. En þvílíkt hundalíf! Það dimmdi og nú rigndi ekki lengur. Ralph kveikti sér í vindlingi. Enn mátti greina eldingar yst í sjóndeildar- hringnum. Loftið var þrungið ilmi frá appelsínulundunum. Ralph ók áfram í klukkustund. Skyndilega kviknaði á litla, rauða ljósinu í mælaborðinu, en það þýddi að Prímúla hafði þrýst á hnappinn í hjólhýsinu og vildi tala við hann. Hann lagði bílnum við vegbrúnina. Svo steig hann út úr honum og opnaði dyrnar á stóra, hvítlakkaða hjólhýsinu. „Hvað viltu mér, vina mín,” spurði hann kvíðinn. „Hvað er langt til Pine City?” Um þaðbil 100 mílur.” „Hvar erum við núna?” „Við Djöflagjá.” „Ég nenni ekki að halda lengra i dag. Við náttum hér, og þú getur keypt mat á einhverjum veitingastaðnum við þjóðveginn.” „Ég verð þá að leggja bílnum á betri stað.” Ralph ók betur út af veginum. Svo steig hann aftur út úr bílnum og spennti hjólhýsið frá honum. Prímúla kallaði til hans og hann gekk að dyrunum. „Þetta er ómögulegur staður,” sagði hún gröm. „Sérðu ekki að hjólhýsið hallast? Ég bað ekki um að þú ækir okkur út i skurð. Ég sagði þér bara að aka svolítið betur út af veginum. Eru þessar fáu heilasellur sem þú átt eftir í 22 Vikan 50. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.