Vikan


Vikan - 14.12.1978, Page 35

Vikan - 14.12.1978, Page 35
,'IK/VN JV lEYTIENDAMAmOVttl nota þær að prófa þær rækilega áður, ganga um í þeim og beygja sig niður og til hliðar í hnjám og í mitti. Munið loks að athuga, hvort fóðrið er ekki tekið saman neðst til þess að hindra, að snjórinn komist upp eftir leggjunum. í öllum regnbogans litum Samfestingar eru minna í tísku nú en oft áður, og er það satt að segja ágætt, því að þeir eru alls ekki eins hentugir eða þægilegir. Til dæmis getur oft verið þægilegt að geta afklæðst jakkanum, en verið áfram í buxunum, bæði ef sólin vermir í brekkunum, eða ef sest er inn í skála til að fá sér snarl eða kasta mæðinni, að ekki sé minnst á aðalmálið, hvað konur snertir, nefnilega þegar þær þurfa að létta á sér. Það er ekkert grín að þurfa að fletta niður um sig öllum gallanum í því skyni. Með val á efni og litum er óþarfi að leiðbeina. Skíða- fatnaður fæst nú í öllum regnbogans litum, og það er sannarlega skrautlegt að litast um í skíðabrekkum á góðum degi. Þó er rétt að forðast efni, sem virðast mjög hál, það er engin þörf á að auka hraðann hjá þeim óheppna, þegar hann dettur i glæsilegustu beygjuhni sinni. Ýmsir fylgihlutir Nútíma skíðaklæðnaður er svo hlýr og góður, að engin nauðsyn er á miklum klæðnaði innan undir. Þó er blátt áfram sjálfsagt, að hver einasti skíða- iðkandi eigi hlýjan undirfatnað ’ úr ull, ef hann vill ekki láta aftra sér frá skíðaferðum, hversu kalt sem kann að vera. Rúllukragapeysu er einnig sjálfsagt að eiga, annaðhvort úr ull eða bómull, endilega ekki úr nælonefnum. Skíðamenn svitna oft óþyrmilega, og þeir verða að vera í fatnaði, sem hleypir svitanum í gegn, annars slær fljótt að þeim. Auðvitað þurfa allir skíðaiðkendur að eiga höfuðföt og hanska eða vettlinga, og það eru einmitt tilvaldar jólagjafir. Af slíku er mikið úrval í sport- vöruverslunum, og þótt viðkomandi eigi kannski húfu og hanska, þá getið þið verið viss um, að gjöfin nýtist, því af þessum aukahlutum er aldrei til nóg. Þeir týnast auðveldlega, og það þarf að eiga til skiptanna. Það er til dæmis mjög mikilvægt að gæta þess að verða ekki kalt á höndunum, en hanskar og vettlingar blotna fljótt, og því er nauðsynlegt að hafa alltaf með sér aukapör í skíðaferðina. Ýmislegt fleira er hægt að tína til, sokka, snjóstígvél (svokölluð moonboots), skíða- gleraugu, töskur undir skíðadótið og fleira. Þetta síðast- talda er að mínu mati bráðnauðsynlegt þeim, sem fara með rútum upp í skíðalöndin því það er ómögulegt að vera með alla þessa fylgihluti lausa, skó og hanska,húfur og trefla, gleraugu og áburð, að ógleymdu nestinu, sem allir verða að hafa með sér, ef þeir ætla að dveljast daglangt á fjöllum. Ég hringdi í nokkrar stærstu sportvöruverslanirnar til að gefa lesendum einhverja hugmynd um verð á skíðavörum. Samkvæmt þeirri athugun má fá skíðabúninga á börn og unglinga á 14-25 þúsund krónur, á dömur fyrir 28-40 þúsund krónur, og á herra fyrir 30-48 þúsund krónur. Mikið er til af alls konar húfum á allt frá 11 hundruð krónum, hanskar kosta frá 1850-7.500, lúffur frá kr. 2.550 og skíðagleraugu má fá á 870 kr., en algengasta verðið i kringum 5.000. Skíðastígvélin (moonboots) kosta frá 6.400- 11.000 eftir stærðum, og töskur undir skó og fleira skíðadót má fá fyrir 2-4.000 krónur. K.H. 50. tbl. Vikan 35

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.