Vikan - 14.12.1978, Blaðsíða 42
• • f
llnilurinn 2l.mar<* 20.;i|iríl N.mlirt 2l.;ipríl 2l.niai T\iburarnir 22.mai 21.júní
Meðfætt ímyndunarafl
þitt blómstrar um þessar
mundir. Óvæntir
atburðir gerast og fara
jafnvel framúr þinum
björtustu vonum, svo
nú er að grípa gæsina
meðan hún gefst.
Einhverjir erfiðleikar
steðja að, en þú stendur
þig með prýði. Skynsemi
þín segir þér að trúa
ekki öðrum fyrir
vandamálunt þinum og
það reynist rétt vera.
Athafnir þinar virðast
stjórnast af einstæðri
heppni. Þú gerir þér
ekki fulla grein fyrir
aðstæðum og ættir að
fara varlega í allar
mikilvægar ákvarðanir.
kn'hhiun 22. jimi J.Vjnlt
Hjálpsemi þin við aðra
veldur þér einhverjum
smáerfiðleikum, en samt
er engin ástæða til að
hafa af því miklar
áhyggjur, því þú niunt
hafa hag af því að
lokum.
I jonió 24. júli 24. tíiíÚM
Hafðu hentil á
neikvæðu hugarfari
þínu gagnvart þvi
óþekkta. Gerðu þér
grein fyrir að það geta
aðrir haft rétt fyrir sér
líka, og nýttu þau tæki-
færi. sem bjóðast.
Miklar kröfur eru gerðar
til þín, en þó ekki meiri
en svo að þú ættir að
ráða við þær. Haltu fast
við fyrri ákvarðanir og
skiptu ekki um skoðun á
síðustu stundu.
Lausntælgi gæti valdið
þér miklum erfiðleikum.
Veldu þér trúnaðarvini
af varkárni og gættu
þess, ef um breytingar
verður að ræða, að þær
séu til bóta.
NporOtlrckinn 24.okl. 23.nó\.
Taktu ekki að þér störf,
sem eru þér ósamboðin.
Einhver vinur þinn
reynir sífellt að fá þig til
að gera það, sem hann
vill helst losna við
sjálfur.
Hoi<ni;iAurinn 24.nó\. 2l.dcs.
Einmanaleikinn, sem
hefur ásótt þig
undanfarið virðist víðs
fjarri. Þér hefur loksins
lærst að félagsskapur er
nokkuð, sem maðurinn
verður að verða sér úti
um sjálfur.
Nlcinöcilin 22.dcs. 20. jan.
Valnshcrinn 2l.jan. I‘>.fchr.
I iskarnir 20.fchr. 20.mars
Ferðalöngun er alls
ráðandi í huga þér. Þig
dreymir um sól og
sumar en kemur ekki
auga á kosti vetrarins,
því fjarlægðin gerir
fjöllin blá í þínum
augum.
Tillitssemi er ekki þin
sterkasta hlið þessa
dagana. Reyndu að
setja þig í spor annarra
og gerðu þér gr5in fyrir
að það hafa fleiri en þú
meira en nóg að gera.
Líf þitt er að verða um
of vanabundið Breyttu
til og líttu framtíðina i
öðru Ijósi en áður. Þér
b'ýðst ógrynni
tækifæra og þú átt í
erfiðleikum með að
velja.
og Ijóst gullið hár, sem skein og
flaksaðist og var á engan máta líkt
hárinu hennar mömmu, sem var svart
og krullað eins og hans eigið.
„Sam, jólin eru bráðum komin,” sagði
frökenin. „Þú veist hvað jól eru, er það
ekki?”
Sam hristi höfuðið.
„Það er fæðingardagur Jesúbarnsins.
Þess vegna höldum við öll hátíð fyrir
hann og gefum hvert öðru gjafir.”
Hún tók þumalfingur Sanis varlega úr
munni hans.
„Hvaðergjafir?”
„Hvað, — gjafir eru eitthvað fallegt.
Eitthvað óvænt. Það fá allir gjöf.
Heyrðu," hún beygði sig nær honum,
„við getum skrifað jólasveininum og
sagt honum, hvað þig langar í!"
„Jólasveininum?”
„Já,” útskýrði frökenin. „Hann
kemur ríðandi í loftinu á aðfangadags-
kvöld, sleðinn hans er dreginn af sex
hreindýrum sem eru með silfurbjöllur á
hornunum. Hann á stóran poka fullan
af gjöfum handa öllum börnunt i
heiminum.”
Augu Sams lýstu vantrú. Frökenin
náði í pappirsblað og kúiupenna úr
42 Vikan SO.tbl.