Vikan - 14.12.1978, Page 49
TÝNDA
HANDRITIÐ
enginn. Stúlkan hlaut að hafa farið út.
Harriet fann að hún reiddist, því stúlkan
hlaut að hafa skilið hurðina eftir ólæsta,
svo að hún kæmist inn aftur — sem
þýddi það, að hver sem var gat komist
inn.
Harriet reyndi að vinna, en
umkomulaust andlit Rosamond birtist
henni i sifellu.
Það gat verið að sambandið milli
hjónabandsmiðlunar frú Mander og
morðsins væri ekki til nema sem
ímyndaöur söguþráður í skáldsögu, en
hún efaðist um það. Það var ekki að
ástæðulausu, að Benson hafði verið að
leita að einhverju, Það sem hann leitaði
að, var sönnun einhvers, sem hann
þurfti aðeyðileggja.
Eftir að hafa hugsað sig um örlitla
stund, ákvað hún, að Með tilliti til
giftingar væri öruggari hjá póst-
þjónustunni heldur en á nokkrum
öðrum stað. Hún merkti því umslagið
sjálfri sér og sendi það í ibúðina, sem
hún hafði deilt með vinstúlku sinni áður
en hún flutti til Raven Gardens og
stakk því í póstkassa á leiðinni að bilnum
sínum. Þegar að því kæmi, að Laura
vinkona hennar endursendi það áfram
til hennar, gæti veriö að lögreglan væri
farin að rannsaka feril Thor Benson og
Rosamond gæti þá verið komin heil á
húfi til útlanda.
Harriet ók áhyggjufull af stað. Fyrst
Rosamond hafði vitað fyrirfram, að
Thor ætlaði að fremja innbrot, hvaða
augum myndu lögin lita á það, þegar
innbrotið endaði svo með morði? Og
hvað með hennar eigin fyrirætlanir um
að flýta sér heim til að vara Rosamond
við? Kannski gerði það hana lika
meðseka.
Þegar hún kom að húsi númer 17,
skildi hún bílinn eftir fyrir utan dyrnar
til þess að vera fljótari. Hún þaut upp
stigann og var fegin að finna, að
öryggislásinn var enn á, þegar hún stakk
lyklinum í skrána. „Rosamond, þetta er
bara ég,” kallaði hún.
Dyrnar opnuðust strax. En það var
ekki Rosamond, sem hélt um húninn,
heldur Thor Benson. Það glampaði á
Ijósleit augu hans bak við reyklituð
gleraugun. „Þú kemur snemma heim,”
sagði hann og brosti ánægður.
Harriet roðnaði af reiði um leið og
hún hrópaði: „Þú! Ég lét skipta um lás á
hurðinni, en hvernig gast þú samt
komist inn?” Svo svaraði hún sjálf
spurningunni og það var beiskja í rödd
hennar — „Rosamond hefur auðvitað
hleypt þérinn.”
Thor togaði hana inn fyrir, lokaði
hurðinni og læsti, um leiö og hann sagði:
\lmn okkar. Hann sómir
1. í eldhúsinu, stofunni,
)a uardinum.
Verðaöeins
Skólavörðustíg 23 — Sími 11372
PAPPIRSBLEIUR MEÐ
AFÓSTUM PLASTIKIIUXUM
Undramjúkt efni PAMPERS hvílir
næst hörundinu, en rakinn dreifist i
pnppírslög sem tnka miklu vætu.
Ytrabvrði er úr plasti. Rúm og ytri-
buxureru þviávallt þurr. PAMPERS
eru sem tilsniðnar fyrir barnið og
gefa mikið frelsi til hreyfinga.
Limbiind á hliðum gera ásetningu
einfalda.
c&merióka
f •. tbl. Vlkaa 4*