Vikan


Vikan - 14.12.1978, Page 50

Vikan - 14.12.1978, Page 50
„Rangt hjá þér. Ég kom eftir þakinu og fór inn um þakgluggann á baðhcr berginu. Ég var vanur að fara þá leið, þangað til við Rosie urðum það góðir vinir, að hún lét mig fá lykil. Eftir það kom ég venjulega inn um dyrnar, en fór út um þakgluggann. Gömul hús eins og þessi bjóða upp á margs konar þægindi.” Þau voru líka ágætlega byggð. Harriet vissi að það myndi enginn heyra til hennar, þótt hún kallaði á hjálp. Og Bryn Kester, nágranni hennar, sem bjó hinum megin við ganginn, var í Skotlandi. Henni kom í hug heimsókn Thors síðasta laugardagskvöld, sér- staklega, þegar hann kom aftur til að ná í hálsklútinn og hann hafði mjög vingjarnlega bent henni á ljósið, sem kom undan hurðinni hjá Bryn. „Ljósið I íbúðinni á móti,” sagði hún biturlega. „Það hefur þá verið þú líka, er það ekki?” „Ó, já,” svaraði Benson. „Það er líka þakgluggi hjá Kester. Einkar þægilegt. Ég gat ekki verið að vingast um of við hann, þú skilur. Hann hefði getað orðið1 til trafala.” „Hvar er Rosamond?” spurði Harriet og fann um leið snöggt til sársauka. „Farin,” sagði Benson. „Hún skildi eftir bréf til þín.” Hann tók upp pappírsblað, sem rifið hafði verið úr stílabók og brotið I fernt. „Harriet” var rissað utan á það., frá Eymundsm Já, í ár verður jólagjöfin frá Eymundsson, við bjóðum gjafavörur í glæsilegu úrvali. Ennfremur bjóðum við mikið úrval af jólakortum og jólaskrauti. BÓKAVERZLUN* SIGFUSAR EYMUNDSSONAR AUSTURSTRÆTI 18 REYKJAVÍK SÍMI: 13135 Hárlagningarvökvinn fyrir blástur: nifomi Inform í litlu, fjólubláu og grænu glösunum.fær hárið til að sitja alveg eins og þú vilt hafa það,- eðlilega og með lyftingu. Inform - fyrir dömur og herra. HALLDÓR JÓNSSON HF. SOVlkan SO. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.