Vikan - 14.12.1978, Qupperneq 50
„Rangt hjá þér. Ég kom eftir þakinu og
fór inn um þakgluggann á baðhcr
berginu. Ég var vanur að fara þá leið,
þangað til við Rosie urðum það góðir
vinir, að hún lét mig fá lykil. Eftir það
kom ég venjulega inn um dyrnar, en fór
út um þakgluggann. Gömul hús eins og
þessi bjóða upp á margs konar þægindi.”
Þau voru líka ágætlega byggð.
Harriet vissi að það myndi enginn
heyra til hennar, þótt hún kallaði á
hjálp. Og Bryn Kester, nágranni hennar,
sem bjó hinum megin við ganginn, var
í Skotlandi. Henni kom í hug heimsókn
Thors síðasta laugardagskvöld, sér-
staklega, þegar hann kom aftur til að ná
í hálsklútinn og hann hafði mjög
vingjarnlega bent henni á ljósið, sem
kom undan hurðinni hjá Bryn.
„Ljósið I íbúðinni á móti,” sagði hún
biturlega. „Það hefur þá verið þú líka, er
það ekki?”
„Ó, já,” svaraði Benson. „Það er líka
þakgluggi hjá Kester. Einkar þægilegt.
Ég gat ekki verið að vingast um of við
hann, þú skilur. Hann hefði getað orðið1
til trafala.”
„Hvar er Rosamond?” spurði Harriet
og fann um leið snöggt til sársauka.
„Farin,” sagði Benson. „Hún skildi eftir
bréf til þín.” Hann tók upp pappírsblað,
sem rifið hafði verið úr stílabók og brotið I
fernt. „Harriet” var rissað utan á það.,
frá Eymundsm
Já, í ár verður jólagjöfin frá Eymundsson,
við bjóðum gjafavörur í glæsilegu úrvali.
Ennfremur bjóðum við mikið
úrval af jólakortum
og jólaskrauti.
BÓKAVERZLUN*
SIGFUSAR
EYMUNDSSONAR
AUSTURSTRÆTI 18 REYKJAVÍK SÍMI: 13135
Hárlagningarvökvinn
fyrir blástur:
nifomi
Inform í litlu, fjólubláu
og grænu glösunum.fær
hárið til að sitja alveg
eins og þú vilt hafa það,-
eðlilega og með lyftingu.
Inform - fyrir dömur
og herra.
HALLDÓR JÓNSSON HF.
SOVlkan SO. tbl.