Vikan


Vikan - 14.12.1978, Side 51

Vikan - 14.12.1978, Side 51
TÝNDA HANDRITIÐ Hann henti blaðinu til hennar og það datt við fætur hennar. Harriet beygði sig niður til að ná í það. Hún hafði of miklar áhyggjur af öryggi stúlkunnar til að vera að gera veður út af þessari auð- mýkingu. Thor horfði á hana, hann hætti að brosa og í staðinn varð svipur hans fýlulegur. „Ég get ekki fundið Með tilliti til giftingar,” las Harriet, „en ég er búin að skrifa hana alla aftur eins vel og ég gat. Ég kom til þess að hitta Thor. Við hefðum getað farið saman til lög- reglunnar, en hann vill það ekki. Ég er að fara aftur. Ég hef ekki hitt Thor, en við töluðum saman í síma. Hann segir að þetta sé allt mér að kenna. Sennilega er það alveg rétt. Mér þykir þetta leitt — Rosamond.” Harriet leit upp frá bréfinu og spurði: „Hvarer sagan?” Thor benti i átt að eldhúsinu, og hún fór þangað og gægðist innfyrir, vör um sig, og án þess eiginlega að líta af honum. 1 vaskinum lágu siðustu tætlumar af sögunni, sem hann hafði augsýnilega rifið og brennt. Meirihluti þessarar» sönnunar hafði skolast niður. Benson hló æðislega. Hlátur hans gerði Harriet svo reiða, að hún gleymdi allri varúð og gekk beint til hans og sagði: „Ég hef fréttir að færa þér. Það er búið að finna frumritið af þessari sögu.” „Ég trúi þér ekki,” sagði hann reiðilega. „Það er nú samt staðreynd. Meðeig- andi minn fór með það heim með sér til þess að lesa það. Nú er ég líka búin að lesa það.” Benson virtist ekki gera sér grein fyrir að tveir aðilar þekktu nú söguna um glæpaferil hans. Hann vildi ná i hand- ritið, svo hann gæti eyðilagt það, eins og hann hafði eyðilagt seinni söguna, sem Rosamond hafði skrifað upp eins ná- kvæmlega og hún gat. 1 huga sér gat Harriet séð fyrir sér stúlkuna, sem skrifaði játningu sína í formi smásögu, og hún hataði manninn, sem stóð fyrir framan hana. „Hvar er handritið?” spurði Thor. „Það er þar, sem þú getur engan veginn náð í það,” svaraði Harriet og reyndi af öllum kröftum að skella honum um koll og hlaupa niður. Harriet komst út að dyrunum, en þá gaf Thor henni vel úti látið högg með krepptum hnefanum, svo hún hentist á skrifborðið og braut kínverska lampann. Höggið gerði Harriet ruglaða og hún hristi höfuðið. „Hvar er það?” endurtók Benson og þreif hana á fætur og henti henni í stól. Hann opnaði skjalatöskuna og leitaði í henni, en henti henni svo frá sér öskureiður. Svo glotti hann og tók upp eitt handritið og horfði á hana meðan hann kveikti á eldspýtu. Framh. í næsta blaði. rogeRsGallet PARI S HEIMSÞEKKTA R ILMSÁPUR Sérhæfð framleiðsla í áratugi. Ótrúlega mjókt löður ogfrábœrar ilmtegundir. Gjafapakkningar og stakar sápur.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.