Vikan


Vikan - 14.12.1978, Síða 62

Vikan - 14.12.1978, Síða 62
PÓSTORIM Námskeið fyrir málhalta Kæri Póstur! Ég vil byrja á því að þakka þér fyrir allt gott. Þó ég sé ekki áskrifandi sé ég Vikuna svona stundum og mér finnst hún ansi góð. En auðvitað mætti hún vera betri, eins og allt annað. Vandamál mitt er að ég er með málgalla, eða réttar sagt, ég „stama” eins ogþað er kallað. Og mig langar til að biðja þig að gefa mér gott ráð til að laga þetta. Eru til námskeið fyrir málhalt fólk? Ég vona að þú finnir gott ráð eða góðar upplýsingar fyrir mig, því mér flnnst alveg ferlega leiðinlegt að tala svona bjána- lega þegar allir, sem ég umgengst, tala eðlilega. Ég vona að Helga sé södd og hafi enga lyst á þessu bréfi. Sporðdreki Satt að segja hefur fólk, sem átt hefur við sama vandamál og þú að stríða, átt í fá hús að venda. Samkvæmt upplýsingum Friðriks Rúnars Guðmunds- sonar talkennara á Heilsu- verndarstöð Reykjavíkur mun nú verða nokkur bót á. Á síðasta þingi voru samþykkt lög um Tal- meina- og heyrnarstöð, sem sinna á öllum, sem eiga í slíkum eða skyldum erfiðleikum án tillits til búsetu þeirra á landinu. Unnið er markvisst að stofn- setningu slíkrar stöðvar og standa vonir til að hún geti hafið störf á næsta ári. Þú getur fylgst með þessu í blöðum og einnig haft samband við Friðrik eða aðra talkennara á Heilsu- verndarstöðinni strax í byrjun næsta árs og fengið nánari upplýsingar. Að lokum . . . þakka þér hlý orð um Vikuna. Þetta er bara alls ekkert hlægilegt Elsku Póstur! Nú er svo komið að ég má til með að leita ráða hjá þér. Áður fyrr hló ég oft og hugsaði með mér: Mikið á fólk bágt, sem skrifar svona bréf t.d. feiminn, freknótt, frek, feitur, mjó, brjáluð og ég tala nú ekki um ástfangna, en þannig er því nú óvartfarið með mig núna, og mér þykir þetta bara alls ekkert hlægilegt ó, nei, þvert á móti hálfasnalegt. Jæja, það er kannski best að koma sér að efninu. Það er þannig að fyrir fjórum mánuðum kynntist ég strák, sem ég hef aldrei getað hætt að hugsa um. Ég hef ekki verið með honum, en um helgar er ég oftast nær að rúnta með honum og fullt af öðrum krökkum, eða þá að við löbbum I bænum. Vandamálið er það að ég þori aldrei að tala við hann, nema ég sé búin að drekka fyrst og sé vel I því. Og hann talar aldrei við mig að fyrra bragði, nema hann sé fullur og samt einhvern veginn erum við alltaf hálffeimin við hvort annað. Og ef við erum edrú eldroðnum við bara og stömum, en það hefur aðeins komið fyrir einu sinni. En það allra versta er að ég vil ekki drekka. Alltaf um helgar, ef ég fer niður I bæ með þeim ásetningi að detta ekki í það og bara vera köld, fer það alltaf út um þúfur. Þegar ég sé hann verð ég svo feimin að ef mér er boðið vín þá þigg ég það, með það fyrir augum að þá þori ég að tala við hann. Svona gengur þetta fyrir sig, annað eða bæði full, og ég, sem vil ekki drekka. Hvað á ég að gera? Ég get ekki gleymt honum. Ég get hætt að drekka, en þá þori ég ekki að tala við hann og ég vil vera þar sem hann er. Ogfólk talar — það er alltaf verið að spyrja mig, hvort ég sé hrifln af honum. Og ég segi alltaf nei, þar sem ég þori ekki að viður- kenna það. Þá vorkenna allir honum, þvíþað halda allir því fram að hann sé hriflnn af mér. Ég get ekki trúað þvíþó ég haldi stundum að þetta sé rétt, því ef ég minnist á aðra stráka verður hann svolítið skrítinn á svipinn og setur alltaf út á strákræfllinn: „Þetta er ræflll, hann er halló, ” eða bara eitthvað, sem honum dettur I hug. Hvernig á ég að krækja I hann, elsku Póstur. Ég treysti því að þú gefir mér góð ráð, sem duga en ekki eitthvað gagnslaust. Og ég vona að Helga sé það södd að henni verði óglatt, því það er ekki hollt að borða yflr sig. Þess vegna er best að sleppa þessu bréfi, því ef hún æti það myndi hún lenda I ástarsorg og það er ekki gott fyrir taugarnar. Bœ, bæ. Ein, sem ekki leggur það í vana sinn að borða bréf. Þetta er auma ástandið! Það er varla þorandi að gefa þér eitthvert þrælgott ráð til að krækja í hann, ef þið getið ekki talað saman nema drukkin. Gæti jafnvel orðið til þess að þið færuð að drekka daglega. Nei, svona án alls gríns, hættu strax að drekka, hvort sem þú átt von á því að hitta hann eða ekki, því samband hreinlega getur ekki þróast eðlilega nema fólk sé nokkurn veginn með réttu ráði. Auk þess ertu alltof ung til að drekka, á þínum aldri verður það alls ekki neinum til góðs og þú verður svo sannarlega ekkert skemmtilegri eða meira spennandi í hans augum. Af bréfi þínu að dæma þarft þú ekkert á hjálp Póstsins að halda til að ná í strákinn, en ættir að endurskoða vínneyslu þína vandlega. Snobbaðir foreldrar Kæri Póstur! Ég er fimmtán og hálfs árs og er einkabarn. Að sjálf- sögðu á ég foreldra, sem vilja mér allt hið besta, en það er bara ekki nóg. Okkur kemur yfirleitt vel saman, en ef framtíð mín berst í tal ætlar allt vitlaust að verða. Þau eru nefnilega að drepast úr snobbi og vilja endilega senda mig I Hamrahlíðarskólann og síðan I háskóla, eða senda mig utan til þess að læra tungumál. Mig langar hins vegar bara að verða sjúkraliði og það mega þau alls ekki heyra nefnt. Mér finnst, að ef þau hafa svona rosalegan áhuga á háskólanámi eða tungumálum geti þau bara lært það sjálf. Þau hafa bæði bara gamalt gagnfræðapróf en hefur gengið ágætlega I lífinu, þrátt fyrir það. Það virðist vera alveg sama, hvað ég reyni að tala við þau, þau neita að hlusta og eru svo I vondu skapi lengi á eftir. Finnst þér það eitthvað koma þeim við hvað égætla að verða?Ættiégað reynaaðfiytja að heiman? Það er bókstaflega ekki hægt að þola þessa þræl- snobbuðu foreldra mína mikið lengur. Svaraðu mér strax, ef þú getur. Binna. Þú nefnir í bréfi þinu að þú sért viss um að foreldrar þínir vilji þér allt hið besta og þar hefur þú örugglega rétt fyrir þér. Pósturinn á erfitt með að trúa því að þið getið ekki komist að niðurstöðu um þetta mál ef þið gætið þess að ræða þetta í rólegheitum og af skilningi á sjónarmiðum hvor annars. Það þarf ekki að vera snobb, sem veldur því að foreldrar þínir vilja að þú farir frekar í menntaskóla. Þú ert mjög ung ennþá og hafir þú stúdentspróf er talsvert auðveldara síðar að velja námsleið, því þá standa þér fleiri dyr opnar. Þá hefur þú líka náð þeim aldri, að mun sennilegra er að þú gerir þér grein fyrir því, hvað þú vilt gera í framtíðinni. Viljir þú þá eindregið verða sjúkraliði er sú leið ennþá greið og það nám ætti að veitast þér létt. Stúdentspróf er nú varla orðið annað en gagn- fræðapróf var hér áður og því getur þú varla miðað þig nokkuð við menntun foreldra þinna. Og eitthvað hefur þeim ef til vill fundist vanta á sína menntun, fyrst þau sækja það svo fast að þú farir í langskólanám. Láttu þér ekki til hugar koma að flytja að heiman, það yrði þér örugglega ekki til góðs. Reyndu að komast að samkomulagi, foreldrar þínir neyða þig örugglega ekki til neins, sem þú vilt ekki sjálf. 62 Vikan 50. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.