Vikan - 12.04.1979, Blaðsíða 7
Vandamál Allendes
— Salvador Allende var
niðurdreginn á þessu flakki sínu
sem við eðlilegar aðstæður er
tilgangslaust. Allir vilja vera þar
sem þeir eiga heima, meðal vina
og kunningja.
— Flestir útlaganna reyna að
gera allt sem þeir geta til að
verða undirokuðum löndum
sínum að liði. Skrifa í blöð og
ræða við talsmenn ríkisstjórna í
því landi sem þeir eru staddir.
Gera allt sem þeir geta til að
breyta almenningsálitinu í
heiminum gegn herforingja-
stjórninni. Ég hef ekki talað við
íslenska ráðamenn um þetta,
enda hafa íslendingar engra
hagsmuna að gæta í Chile,
þannig að það myndi koma að
litlu gagni. En þetta er ástæðan
fyrir því að ég veitti heimilis-
blaðinu Vikunni viðtal, því ég er
sannfærður um að margir af
lesendum hennar hafa litla sem
enga hugmynd um hvernig
ástandið er í Chile. En það er
ólæsið og rnenntunarskorturinn
sem er og hefur alltaf verið aðal-
vandamál þjóða S-Ameríku.
góður leiðtogi og hliðhollur
fólkinu. Vandamál hans var ein-
faldlega það að hann hafði ekki
þau völd sem nauðsynleg eru til
að stjórna. Það eru nefnilega
þannig í Chile að þing- og
forsetakosningar fara ekki fram
samtímis. Þegar Allende var
naumlega kosinn forseti 1970 þá
var búið að kjósa þing sem var
hægrisinnað og því andsnúið
honum. Hann átti i sífelldum
örðugleikum við að koma
málum sínum fram og því fór
sem fór. Hann var drepinn i
forsetahöllinni af andstæðingum
sinum og þeir tóku völdin. Þá
hal’ði hann setið í valdastóli i 3
ár.
— Allur heimurinn veit, eða
ætti að vita, að mannréttindi eru
l'ótum troðin í Chile. Það eitt
ætti að vera næg ástæða fyrir
stuðningi heimsins við málstað
okkar. En málið er tvíeggjað.
Það kemur t.d. að litlu gagni þó
Carter Bandaríkjaforseti
gagnrýni ástandið í Chilc, á
meðan bandarísk stórfyrirtæki,
sern engu vilja breyta, starfa enn
í landi okkar. Carter hefur ekki
það mikil völd að hann skipi
stórfyrirtækjum fyrir. En sá
dagur rnun koma að réttlætiö fái
að njóta sín í Chile — það er
aðeins spurning um hvenær. Á
meðan bíðum við flótta-
mennirnir átekta og geturn ekki
annað en vonað að brátt
munurn við geta snúið aftur
heirn til ástvina og félaga. .
Aftur á móti skortir ekki huggu-
legheitin hjá þeim betur settu. Hér
sjást sumarhús þeirra, en þau
standa auð mestan hluta ársins.
15. tbl. Vikati 7