Vikan - 03.05.1979, Síða 19
myndu elskast. Hann kveið fyrir þeim
hluta. Hann langaði til að þetta yrði
reglulega gott en hann óttaðist að svo
yrði ekki. Hann var jafnvel hræddur um
að geta ekkert.
Geta. Orðið skelfdi hann. Eins og
flestir vina hans var honum ekkert um
mikið málskrúð gefið en fann samt oft að
fyrsta orðið sem honum datt i hug hafði
stundum aðra djúpstæðari merkingu. 1
rauninni var hann oft ergilegur út i allt
þetta óþarfa mas, það ruglaði hann i
ríminu, það ruglaði alla. Sum orð gátu
þýtt eitt fyrir þig og eitthvað allt annað
fyrir þann næsta. En aftur á móti fann
hann alltaf greinilega hvað aðrir
hugsuðu og hvernig þeim leið. Sér-
staklega ef það var einhver sem hann
unni eins og Deedee.
Það sem hann hafði áhyggjur af núna
var ekki það ævintýri sem hún hafði lent
í um sumarið — það hvarflaði aldrei að
honum að það hefði verið neitt alvarlegt
— eða þær áhyggjur sem það olli henni.
Hann skildi það, það gátu þau rætt. Nei,
það sem hann haföi mestar áhyggjur af
var sá óróleiki sem bjó innra með henni
og hafði orsakað það að henni lá svo á að
komast til New York. Ekki óróleikinn
sjálfur heldur það sem olli honum,
hin raunverulega orsök — sem honum
fannst og sem hann vissi að var hann
sjálfur. Ekki bara brenglað kynferði
hans heldur hvað það hafði gert henni.
Það var eyðimörkin sem alltaf hafði
verið á milli þeirra; hættusvæði sem
hann hafði alltaf hörfað frá eins og það
væri sprengjusvæði þar sem sprengja
gæti sprungið á hverju augnabliki. Þetta
hafði alltaf valdið honum áhyggjum, en
fyrst eftir að þau giftust hafði hann
reynt að leiða þetta hjá sér. Til hvers
væri líka að hafa orð á því? Oft má satt
kyrrt liggja. Og þannig var það líka með
ýmislegt sem veldur manni áhyggjum,
eins og til dæmis unglingabólur, að það
hverfur með aldrinum. Þannig hafði það
líka verið. Þangað til hún fór að verða
óróleg og hann áttaði sig á að orsökin
var ekki bara Oklahoma City. Þetta
vonleysi hennar var honum að kenna.
Hann hefði sjálfur átt að fara eftir
því ráði sem hann hafði gefið henni i
sambandi við Emmu: Tala út um
hlutina. En öll þessi bölvuðu orð! Hvert
eitt þeirra var eins og sprengja sem
gætí sprengt upp eyðimörkina hans og
hann með. Og þá myndi hann missa
hana. Og hann gat ekki ímyndað sér lífið
og tilveruna án hennar. Hann hefði átt
að segja henni frá þessu strax í byrjun.
Gegnum árin getur smá skeina orðið að
banvænu meini sem eyðileggur og
drepur tengslin milli tveggja persóna.
Að minnsta kosti hafði þetta orsakað
óróleika og örvæntingu hjá henni og
gæti enn eyðilagt samband þeirra. Það
hefði verið svo miklu auðveldara að segja
henni þetta fyrir tuttugu árum; hann
óskaði þess að sá tími væri kominn aft-
ur þegar hún sagði honum að hún væri
ófrísk.
Hann hefði getað svarið að Deedee
var einmitt núna þarna frammi í
biðsalnum að óska þess sama.
Hann langaði tíl að hrópa. Já! Hann
langaði til að útskýra þetta fyrir henni
og hughreysta hana. En um leið hljóp
Ethan upp í fangið á honum og útund-
an sér sá hann Janinu sem gleymdi nú
Shirley MacLaine og Anne Bancroft fá mikið lof fyrir leik sinn i kvikmynd-
inni. Hér fð þœr loks útrás niðurbældra tilfinninga, sem hafa smám saman
verið að eitra út frá sér.
algjörlega að haga sér eins og hún væri
fullorðin. Hún henti frá sér töskunni
tíl að hlaupa á móti móður sinni og
faðma hana að sér eins og hún væri
afturorðin litil stelpa.
En hvar var Emilía? Af hverju hafði
hún ekki komið? Hafði hann einhvern
veginn valdið henni vonbrigðum; hafði
einhver í flokknum sagt henni eitthvað
— nei, hættu nú, þetta var ekkert
annað en heimskuleg taugaveiklun. En
þegar hann leit á Deedee fann hann
einhvern veginn að það voru einhver
tengsl milli fjarveru Emiliu og kvíða-
svipsins á henni. Fjöldskylda hans var
klofin.
Honum tókst að segja halló við
Deedee og kyssa hana yfir höfuð
krakkanna sem héngu utan á jieim eins og
þau ætluðu með þvi að fyrirbyggja ið þau
færu aftur hvert í sína átlina. Meðan þau
biðu eftír farangrinum kyssti hann liana
aftur. Ennþá var þetta enginn
almennilegur koss en hann átti þó að
hughreysta hana ásamt augnaráðinu
sem hann sendi henni. En honum tókst
ekki að hughreysta hana og það sem
angraði hana hafði eitthvað með Emilíu
að gera því hún stamaði þegar hún var
að útskýra af hverju Emilía hefði ekki
komið. Framítökur Ethans voru heldur
ekki til þess fallnar að hjálpa upp á
sakirnar.
„Bíðið þið nú hæg,” sagði Wayne. Og
bláköld staóreynd
Þaó er bláköld staóreynd aó ullarteppin frá Álafossi eru einhverjar
hlýjustu og bestu væróarvoóirsem til eru á markaónum
.....'•?* ..
Tilvalin fermingargjöf
Fæst íótrúlega fjölbreyttu litaúrvali
íslensk gæóavara úr 100 % ull
^llafossbúöin
VESTURGÖTU 2 -
SIM113404
18. tbl. Vlkan 19