Vikan - 28.02.1980, Page 3
Þá var ekki
diskað — heldur
dansað!
má segja að þetta sé mín leið í lífsbarátt-
unni, bætir hann við.
MIFA-tónbönd heitir fyrirtæki
Snorra og það flytur inn allt hráefni sem
þarf til kassettugerðar og býr til úr því
þá vöru sem beðið er um og er þá bæði
um að ræða óspilaðar kassettur og
áspilaðar. MIFA-tónbönd er verktaki
fyrir alla íslenska hljómplötuútgefendur
þannig að öll íslensk tónlist, sem til er á
kassettum. hefur fyrst orðið að fara
norður til Snorra áður en hún hefur
komist á markað. Einnig framleiðir
fyrirtækið kassettur fyrir tölvur.
Þá er ótalin sú nýjung fyrirtækisins að
framleiða kassettur með lesnum
ævintýrum eftir H. C. Andersen en sú
vara mun vera með betri kaupum fyrir
foreldra sem ekki nenna að lesa fyrir
börn sín á hverju kvöldi. Bara að ýta á
hnapp og allir verða ánægðir. Ævintýrin
eru lesin af Heiðdísi Norðfjörð leikkonu.
Helena Eyjólfsdóttir söngkona, sem
starfar hjá MIIFA-tónböndum, sést hér
með Snorra Hanssyni við tækið sem
flytur tónlist (eða ævintýri) af bandi yfir á
kassettur. Tækið getur spilað inn á 6
kassettur samtimis á 8 földum hraða og
fer inn á báðar hliðar samtímis.
Hvernig líst ykkur á þessa hljómsveit?
Því miður getum við ekki leyft ykkur að
heyra hljóðin, en þessir kumpánar léku
fyrir dansi á Hótel KF.A á Akureyri um
1950. Lengst til vinstri má sjá Jose Riba
með klarinettuna, þá Árna Ingimundar-
son við píanóið. sá með tenórsaxófóninn
er Óskar Ósberg og við trommurnar
situr Mikael Jónsson.
Allt frá þriðja áratugnum og fram á
þann sjötta blómstraði skemmtanalífið á
Akureyri. 1 Gúttó, þar sem Leikfélagið
hefur nú aðsetur sitt. var dansað. einnig
á Hótel Akureyri svo ekki sé minnst á
Hótel Norðurland þar sem nú er Hótel
Varðborg. Seinna komu svo staðir eins
og KEA og Alþýðuhúsiðog þar var ekki
minna dansað.
Flestir þessara staða voru opnir á
hverju kveldi yfir sumartimann. frá 9-
11.30. því þá kom fólkið að sunnan
gjarnan norður i sumarleyfum sinum i
stað þess að fara til sólarlanda og
skemmti sér ekki verr þó skemmra væri
farið. Yfir vetrarmánuðina var fx'i
aðeins opið um helgar. Þó langt sé um
liðið síðan hljómsveit þessi sló taktinn
fyrir norðanmenn og gesti þeirra að
sunnan. þá fer þvi viðsfjarri aðeingöngu
hafi verið leiknir gömlu dansarnir. Onei.
fólkið dansaði rúmbu, tangó og aðra s
ameríska dansa og svo var leikinn jass
þess á milli. I>egar fram i sótti bættust
svo blues og búgi-vúgi við. Ákafinn var
mikill, meira að segja svo að á timabili
var algengt að dansað væri milli 3 og 5 á
sunnudögum á KEA. Nú eru tímarnir
breyttir. Akureyri hefur ekki farið
varhluta af diskóæðinu og nú er svo
komið að sjálfur Sjallinn. einn frægastur
skemmtistaða á Íslandi, á nú i vök að
verjast fyrir tiltölulega nýjum skemmti
stað. H 100 (vegna þess að hann er til
húsa i Hafnarstræti 100) en sá staður cr
nánast bein eftirlíking af Óðali í Reykja
vik — alla vega hvað andrúmsloft
snertir. Þar er diskað en minna dansað.
— Ég er nú útvarpsvirki og var orðinn
leiður á sifelldum viðgerðum þannig að
ég sneri mér að þessu, segir Snorri
Hansson á Akureyri en hann rekur einu
kassettuverksmiðjuna á íslandi. — Það
9. tbl. Vikan 3