Vikan


Vikan - 28.02.1980, Blaðsíða 31

Vikan - 28.02.1980, Blaðsíða 31
Sönn frásögn Það var eins og skrokkurinn tæki síðustu dauðateygjumar. Svo hvarf hann í ólgandi hafið og eftir varð aðeins svart reykský. Kolumbus hefur nú legið i votri gröf sinni i rúmlega 40 ár i Atlantshafi á 38.2 gráðu norðlægrar breiddar og 65.35 gráðu vestlægrar lengdar. Hann sökk eftir að hafa hrakist um á hafinu í 4 mánuði og 5 daga. Kolumbus hóf ferð sina frá New York 15. ágúst. Um borð gengu 533 Banda- rikjamenn sem alla dreymdi um stór- kostlegasta sumarleyfi lífs sins á mesta lúxusskipi í heimi. Eigendurnir, Lloyd Bremerhaven, nefndu það „Drottningu hafsins”. Farþegamir létu sig engu skipta að Evrópubúar voru þegar farnir að tala um stríð. Áhöfnin, 600 manns, hafði heldur engar áhyggjur. Erich Aurich, sem nú er 67 ára gamall, rak hár- greiðslustofu um borð og hélt dagbók um þessa síðustu ferð Kolumbusar. Hann segir: — Við höfðum að vísu frétt að heiman að Þýskaland væri að búa sig undir strið. En við hugsuðum samt eins og farþegarnir: Þetta er áreiðanlega eitthvað orðum aukið. Svo við lögðum af stað. Fyrstu viðkomustaðir áttu að veraJamaica, Haitiog Puerto Rico. í dagbók Aurichs má lesa: Kolumbus, sem er 32.565 tonn, þýtur nú áfram með 22 hnúta hraða sem jafn- gildir rúmlega 40 kílómetrum á klukku- stund. Þetta er eitt hraðskreiðasta skip i heimi og sannarlega sannkallað undra- skip: 228 metrar á lengd en straumlinu- lagað eins og ung stúlka: Skrokkurinn er úr 15.000 tonnum af stáli og járni en liðugur eins og silungur. Skipstjóri þessa fljótandi lúxushótels er Wilhelm Dáhne. Tíu dögum eftir að Kolumbus leggur úr höfn i New York fer skipstjórann að gruna að ekki verði allt með felldu i ferð- inni. Aurich skrifar þá i dagbók sína: Dáhne hefur fengið skeyti frá Berlin sem segir að Kolumbus sé nú undir yfir- stjórn sjóhersins. Þvi fylgir skipun um að setja alla farþega þegar i land og sigla svo stystu leið til Haugasunds í Noregi. Loks er okkur ljóst að nú stendur stríð fyrir dyrum. Skipstjórinn hefur þó skipaðokkur að halda þessu leyndu fyrir farþegunum. Hann er hræddur um að þeir gripi annars til örþrifaráða. 31. ágúst 1939 leitar skipið hafnar á Áhöfnin vfirgefur hinn brennandi Kolumbus. ENDALOK KOLUM BUSAR Kolumbus var talið fegursta fley veraldar, stolt þýska flotans, þangað til það sökk á Atlantshafi 19. desember. Skipunin kom kl. 16.20: Sökkvið skipinu. Áhöfnin kveikti í því, opnaði alla ventla og forðaði sér í björgunarbáta. En þeir voru ekki einu sjónarvottarnir að eyðileggingu þessarar þýsku lúxusfleytu. Áhöfn ensks tundurspillis, sem hafði ætlað sér að ná henni á sitt vald, fylgdist líka með því er hið stolta gufuskip hvarf í hafið. Kúbu. Farþegarnir ganga ánægðir frá borði. En 24 klukkustundum síðar berast hin hryllilegu tíðindi: Frá og með deginum i dag, l.september 1939, á Þýskaiand í stríði. Þýskar hersveitir hafa ráðist inn í Pólland. Aurich segir: — Það var eins og djöfullinn hlypi í alla. Farþegarnir þustu æpandi um borð og pökkuðu saman farangri sínum. Tveimur tímum siðar var enginn eftir nema áhöfnin. Öll ljós voru slökkt um borð i drauma- skipinu og Dáhne skipstjóri sigldi þvi Ijóslausu út úr höfninni í Havanna aðfaranótt 2. september. — Næsta dag safnaði skipstjórinn okkur saman og hélt yfir okkur ræðu, segir Aurich. Hún var svona: — Þýskaland á í stríði og nú ríkja herlög hér um borð. Okkur hefur verið skipað að koma skipinu eins fljótt og unnt er til Þýskalands. En við getum búist við þvi að ensk herskip liggi alls staðar í leyni á leiðinni. Dáhne skipstjóra tókst þó með alls kyns brögðum að koma skipinu heilu og höldnu til Vera Cruz. Þar lagðist það við festar eina sjómílu frá höfninni. Þaðan sendi hann hvert skeytið af öðru til Berlínar, fullur örvæntingar: Það er úti- lokað að við komumst lengra. Á að reyna að selja skipið? Eina svarið sem barst frá sjóhernum var þetta: Annaðhvort komið þið til baka eða þið sökkviðskipinu. 14. desember yfirgaf Kolumbus þetta hæli sitt og Aurich lýsir siðustu dögum skipsins í dagbók sinni: — Skipið er dauðadæmt. Við æfum stöðugt hvernig við eigum að sökkva því og bjarga okkur frá borði. 19. desember: Við erum 360 kilómetra austan við Norfolk. Klukkan er 15.30 og við höfum komið auga á enskan tundurspilli. Dáhne skipstjóri spyr hvort allir séu tilbúnir til að sökkva skipinu og viðjátum því. Klukkan 16.00 tilkynnir skipstjóri tundurspillisins að hann sendi báta til að hertaka skipið. — Það tekst ykkur ekki, urrar Dáhne skipstjóri. Stuttu síðar gefur hann skipun um að sökkva skipinu. Við hellum bensíni í loftop og ganga og opnum fyrir flot- ventla. 16.20 kemur skipunin um að kveikja í skipinu og forða sér frá borði. Áhöfnin sjósetur björgunarbátana. Eldurinn breiðist út með ofsahraða. Skipið stendur i ljósum logum og reykur- inn magnast. Dáhne skipstjóri er síðastur til að yfirgefa hið glæsta lúxus- skip sem eldurinn mun brátt vinn loka- sigur sinn á. Átta mínútum síðar sekkur Kolumbus. Erich Aurich var bjargað ásamt öðrum úr áhöfninni um borð í bandariska tundurspillinn Tusculoosa. Er i land var komið var þeim komið fyrir i bandariskum fangbúðum sem striðsföngum. Þeir voru látnir lausir i júlí 1945. Þá hafði þessi síðasta sjóferð þeirra í rauninni tekið 5 ár og 7 mánuði. 9. tbl. Vikan 31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.