Vikan


Vikan - 28.02.1980, Page 16

Vikan - 28.02.1980, Page 16
Skíðaskólinn Undirbúningsstaða f. plóg í kyrrstöðu. Plógstaða, hælar sundur, hendurá hnjám. 1) Plógur úr beinu rennsli út á jafn- sléttu Hafi mönnum tekist sœmilega að ná plógstöð- unni i kyrrstöðu er nœsta skref að reyna sig á Plógurinn er afbragðs undirbúningsœfing fyrir svig, auk þess sem gagnlegt er að kunna hann, lendi menn i þungum, slæmum snjó eða þurfi að skíða niður brekku með byrði á bakinu. Nafnið er vel til fundið, þar sem skíðin minna mest á plóg, saman að framan en sundur að aftan, menn „plægja" niður brekkurnar i orðsins fyllstu merkingu. Byrjendum veitist oft erfitt að koma skiðunum í plógstöðuna, þar sem snjórinn veitir vissa mótstöðu, þegar ýta skal skíðunum í sundur. Sömuleiðis gengur mörgum erfiðlega að halda skiðunum i plógnum, þegar komið er á ferð, þar sem snjórinn ýtir þeim saman á meðan hælamir visa út. Einkum er hætt við að menn missi jafn- vægið og skíðin i kross, reki ytri kantana i snjóinn eða klessi hnjánum saman, svo þeir koma skíðunum ekki nógu vel í sundur en setja innri kantana of mikið niður o.s.frv. Til þess að vega upp á móti þessu jafnvægis- leysi, sem angrar verst og mest alla byrjendur, hefur mér gefist vel að láta þá styðja höndunum á lærvöðva rétt fyrir ofan hné og á hnén eins og sýnt er á fyrstu og annarri mynd. Takið eftir, að við þetts (að setja hendur þannig) gefa menn ósjálfrátt eftir í mjöðmum í æskilega stöðu og axlir koma fram í samræmi við það. Pá er auðvelt f þessari stöðu að ýta hnjánum fram og stjóma hreyfingum þeirra. Hvemig er auðveldast að koma skíðunum i sundur i plóg? Með þvi að létta augnablik á skíðunum, þ.e. fjaðra í mjöðmum og hnjám, og nota um leið kraftinn í fótunum til þess að þrýsfa hælunum i sundur. Við æfum okkur fyrst í kyrrstöðu og förum að ains og á fyrstu tveim myndunum: skiðin saman og hendur á lærvöðvum (1. mynd). Nú beygjum við hnó og mjaðmir (fjöðmm) snöggt, rennum höndunum um leið niður á hnén (til þess að haida jafnvæginu) og þrýstum hæfunum út (mynd 2). Athugið, að þið megið ekki haiia ykkur ófram, þótt hnén komi fram, hreyfingin er líkust því að sefjast háffa ieiðina niður á stól. Gætið þess að gefa ekki eftir í ökklum, þvi þá er hætt við að skíðin verði of flöt og ytri kantarnir skerist i snjóinn, sem hefur oft i för með sér tognun í hné eða ökkla. Hnón eiga að opnast við hœlhreyfinguna út en eiga samt að vísa örfítið inn, þannig að auðvelt sé að beita innri köntum skíðanna í snjóinn. Því harðari sem snjórinn er, þeim mun meira þarf að be'rta innri köntunum og hnjánum inn, en forðist að klessa hnjánum saman, þvi það hindrar hœl hreyfinguna út. :í % Plógæfingar: 16 Vikan 9- tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.