Vikan


Vikan - 28.02.1980, Page 24

Vikan - 28.02.1980, Page 24
Smásaga HELGISPJÖLL Smásaga eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson Þcir brutust þrir inn í kirkjuna. Sá fjórði, Láki, var svo ótrúlega heppinn um þetta leyti að eiga kærustu, sem hann heimsótti, ef hann átti fri. Það var bara verst, hvað þeir fengu sjaldan fri. Skólabyggingin gekk alveg ótrúlega hægt og Runólfur, verkstjórinn. var vist alveg að flippa á akkorðinu. En þeim var sama og vildu gjarna láta hann finna fyrir mistökunum, fíflið. Kannski voru 1 þei’ bvi fegnastir að fá að hætta. ’ ,ð var frábært veður þetta kvöld og iö hel'ði ckki verið þriðjudagur, hefði v ,ð i besta lagi. Ln það var nú einu I si briðjudagur og helvítið hann 1 R ;.tur vissi hvað hann söng, þegar han., H þá vinna allar helgar. engaf svo íi i eitt .völd i miðri viku. l>eir voru samt ák.ei tii i þvi að láta það ekki á sig fá. þvi bruggið var loksins tilbúið. Viddi náði i dálitla lögg af því, áður en |teir , hættu að vinna, og það var alveg i dúndurgott. Láki lét sig meira að segja I hafa það að fá sér bragð og hélt að kærustunni þætti það ekki verra. Svo var hann auðvitað rokinn. uni leið og þeir hættu að vinna. Þegar þeir voru bara þrir eftir, sóttu þeir bruggið. stálu jeppanum og keyrðu út úr þorpinu. Á leiðinni sungu þeir „Det var brennivin í flasken" og voru kampakátir. Hrólfur var viðstýrið. „Það er örugglega skógræktargirðing ekki langt héðan." sagði Viddi og hann hafði rétt fyrir sér. l>eir höfðu varla ekið nema tvo eða þrjá kílómetra. þegar umrædd girðing kom i Ijós. Hrólfur sveigði út af veginum við fyrsta tækifæri og stöðvaði jeppann viðgirðinguna. „Er þetta ekki ágætt?" spurði hann. Hinir samþvkktu og ruku út. Brandur tók brúsann með sér. Þeir vippuðu sér yftr girðinguna og hltipu ærslafengnir inn á milli rytjulegra birkitrjánna. Það var ennþá dálitið sólskin. „l>etta er prima pleis," sagði Brandur og lagði frá sér brúsann. „Er ekki fint að vera hér?" Þetta var skjólgóður staður, svo [x’ir samþykktu. Það skipti lika ntestu máli. Auk þess borgaði sig ekkert að álpast lengra. Myndskreyting: Gestur Guðmundsson „Djöfull erum við töff, strákar,” sagði Viddi og hló. „Nú skal maður sko láta það renna." „Þú crt strax orðinn pissfullur. helvítis ormurinn,” veinaði Hrólfur og frussaði. Honum leið iskyggilega vel. „Að lifið sé skjálfandi . .” byrjaði Brandur og þeir tóku undir fullum hálsi. Hann var snillingur, Brandur. gaulari af guðs náð, eiginlega sígaulari. þvi hann þagnaði svosjaldan. „Það vantar ekkert nema píurnar. litlu sætu piurnar.” sagði Hrólfur og brosti. „Kannski við hittum Rauðhettu á leið til ömmu sinnar i skóginum." Þeir hlógu allir. „Við getum ráðist inn i búluna á eftir og tékkaðá þeint þar,"sagði Viddi. „Það er ekkert vit í öðru." „Syngiði strákar! Reynið að nota raddbandaræflana!" Brandur var kominn út í miðju á Himins bláum boga og stefndi að öllum likindum Áfram veginn. að þvi loknu. Þeir svolgruðu stórum. kyrjuðu þetta i 24 Vikan 9. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.