Vikan - 28.02.1980, Page 37
hlaupa en gerviefni teygiast og
missa alla lögun. Yfirleitt eru föt
merkt þannig að þvi megi treysta
en þó kennir reynslan manni eitt
og annað í sambandi við þvott á
viðkvæmum efnum.
Tökum t.d. prjónapilsið og
peysuna úr lamaull, sem unga
stúlkan ber. i þvottaráðlegg-
ingum stóð: ,,Viðkvæmur
þvottur, 40 gráður." Þetta bendir
til þess að óhætt sé að þvo
flikurnar við þetta hitastig hvort
heldur er í vél eða höndunum.
Eigandinn valdi þvottavélina
sina og árangunnn sjáum við.
Þessa flík hefði aðeins átt að þvo
í höndunum. Það er ekkert vafa-
mál, að flestan ullarfatnað fáum
við fallegri ef við leggjum það á
okkur að þvo í höndunum — þrátt
fyrir það að merking á flíkinni
segi að óhætt sé að þvo í þvotta-
vél. Á mörgum — ef ekki öllum
nýrri þvottavélum er sérstakt
þvottakerfi fyrir ullarfatnað.
Notið það ekki t.d. fyrir föt úr
lamaull eða angóra.
Þegar þið þvoið ullarfatnað á
að blanda þvottaefninu saman
við volgt vatnið og leysa það vel
upp. Þvoiðflíkina strax, látið
hana aldrei liggja lengi í
vatninu. Skolið vel, vindið ekki
heldur kreistið vatnið úr i frotté-
handklæði eða setjið flíkina smá-
stund í þvottavinduna. Þurrkið
aldrei í miklum hita — alls ekki
úti í sólskini — og látið flíkina
helst liggja á sléttum fleti.
,,Dry clean only, 100%
viscose." Þetta merki sjáum við
oft á blússum eða flíkum úr
viscose. En það þýðir að ekki
megi þvo flíkina, aðeins setja í
hreinsun. En það er ógáfulegt að
kaupa blússur sem setia á í
hreinsun og raunin er alls ekki sú
að ekki megi þvo viscose. Það er
framleiðandinn sem er að
tryggia sig gegn skaðabóta-
kröfum ef eigandi fatnaðarins
færi ekki rétt að ráði sinu við
þvott. Það eru mjög mismunandi
gæði þeirra efna sem boðið er
upp é úr viscose. Þetta er
tískuefni og þó það sé vand-
meðfarið og þurfi að strauia
Birt í samráði við Neytendasamtökin.
Þýð.: S.H. Úr Rftd och Rön.
virðist það ekki draga úr
vinsældum.
Reynslan hefur sýnt að best
er aö þvo efni úr viscose í 30-40°
heitu vatni, slétta flíkina vel,
þegar hún er hengd upp (þó má
ekki nota kraftana, efnið er
viðkvæmt þegar þaðer blautt) og
siðan strauja flíkina raka.
Veljiö ekki fatnað úr viscose ef
þið viljiö fatnað sem þarf lítið að
hafa fyrir.
Skoflið alltaf saumana ó þeim
fatnaði sem þið ætlið að kaupa. Illa
kastaðir saumar eða naumt
saumfar má sorglega oft sjá á
annars snotrum fatnaði. í fyrsta
þvotti rifnar og gliðnar flfkin ó
saumunum, ef ekki hefur verið
nægilega vel frá gengifl f upphafi.
Gerifl akfrei svona þegar þvegifl er f höndunum. Látið fötin ekki liggja ( bleyti. Þvottaefnið getur
skemmt fötin. Lftifl á flauelsbuxurnar t.h. Flekkirnir eru eftir þvottaduft sem hellt var yfir þær f
vaskinum og sfflan lágu þær ( bleyti nokkurn tfma.
Þau þvottaefni, sem eru á markaðinum, eru ekki til þess ætluð að leggja f bleyti f. Því miður vantar
þó varnaðartexta þar um á flestar umbúflir þvottaefnis sem hár er tiltækt.
Ef þið ætiifl að þvo f höndunum leysið þið fyrst þvottaefnið upp og þvoið svo fötin strax og skolið
vandlega.
9. tbl. Víkan 37