Vikan


Vikan - 28.02.1980, Page 29

Vikan - 28.02.1980, Page 29
Erlent Atburðirnir í Kampútseu: FORSAGAN ER ALDAGÚMUL „Við erum umkringdir úlfum, víetnömskum og thailenskum úlfum.” Þetta er inntak málsháttar í Kampútseu nútimans og lýsir því, að ekki einungis eru íbúar landsins hrjáðir vegna styrjaldar og hungursneyðar innanlands heldur eru þeir einnig fórnar- lömb togstreitu milli nágrannarikjanna tveggja. Sú togstreita hefur staðið i alda- raðir. Kampútseumenn hafa ekki alltaf lotið svo iágt. Enn lifa í minningunni sögur frá tímum virðulegs keisaradæmis. 1 fimm aldir, allt frá árinu 800 e. Kr.. réðu Khmer-keisarar ríkjum í ríki sem náði yfir meirihluta þess landsvæðis þar sem nú eru suðurhluti Víetnams og Thailand nútímans. Kampútsea til forna var verslunarmiðstöð og tengdi lndland við Kina. Enn þann dag i dag má sjá rústir mustera viða úti á iands- byggðinni sem gefa til kynna veldi Khmer-keisaratímabilsins. En á fjórtándu og fimmtándu öld hófust innrásir nágrannanna. Thailend- inga frá vestri og Víetnama frá austri. Þeir lögðu undir sig stórar spildur af landi Kampútseumanna. Víetnamar lögðu undir sig Suðaustur-Kampútseu, þar á meðal fiskiþorpið Saigon og hinn frjósama Mekongárdal, á átjándu öld. Vopnaviðskiptin hafa staðið allt fram á þennan dag. Það er fyrir áhrif þessara aldalöngu deilna — alveg eins og innrás Vietnama og valdatafl stórveldanna í Suðaustur- Asíu að ský ófriðar og hungursneyðar hefur alltaf verið á himni yfir Kampútseu. Að sögn George Kahin, sérfræðings í málefnum Suðaustur-Asíu við Cornell háskóla I Bandaríkjunum, mótuðust samskipti Kampútseumanna við nágranna sína ekki fyrr en á síðari hluta 18. aldar og á þeirri nítjándu. Þá hófst skefjalaus samkeppni Thailendinga og Víetnama og Kampútseumenn lentu á milli i þeim átökum. Leppstjórnir thailenskra og víetnamskra innrásarherja voru við völd i landinu til skiptis. Til þess að stöðva þessa þróun féllust Kampútseumenn á nýlendustjórn Frakka árið 1863. Frökkum tókst að bægja frá utanaðkomandi áhrifum nágrannanna, en spennan var alltaf mikil. Upp úr 1940, þegar Japanir réðu Suðaustur-Asíu, létu Thailendingar til skarar skriða og hernámu norðvestur- héruð landsins, en urðu siðar að skila þeim. Að vekja þjóðina til sjálfsmeðvit- undar og að kynda undir þjóðernis- tilfinningu hennar hafa verið megin- takmörk allra ríkisstjórna í Kampútseu frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar. Kampútseumenn fengu sjálfstæði frá Frökkum árið 1953 og leiðtoginn, Norodom Sihanouk prins, kom fram á sjónarsviðið. Flann leiddi þjóðina fram á braut nútíma lifnaðarhátta, en er stjórn hans var sett af árið 1970 rak Lon Nol, sem þá tók við völdum, úr landi og lét myrða þúsundir Vietnama sem flutt höfðu til Kampútseu. Kommúnistastjórn Pol Pots komst til valda árið 1975, barði niður alla andstöðu innanlands, reyndi að þurrka út öll merki erlendra áhrifa og nútima- legra lifnaðarhátta og réðst gegn vietnömskum kommúnistum i austur- hluta landsins. Allt var þetta gert i nafni endurreisnar þjóðernistilfinningar landsmanna. En árangur þessara tilrauna, sem gerðar voru af mikilli hörku, varð lítill. Hins vegar er á það að lita að Thailendingar hafa haldið að sér höndum gagnvart Kampútseu undan- farinn áratug. Þetta hefur verið skýrt á þann hátt að Thailendingar óttist nú orðið Víetnama. Þeir eru efnahagslega betur á vegi staddir. en víetnamski herinn er mun öflugri en sá thailenski. Unya konan kom i flóttamannabúðir i í Thailandi frá Kampútseu. Hún | mundi ekki hvað hún hét sjálf — gat aðeins nefnt nafn barnsins sins — en þvi var hún búin að týna. Þetta er talin ástæðan fyrir þvi hversu lítið þeir hafa haft sig I frammi og eins að Kínverjar komu á stjórnmálasam- bandi við Thailendinga og stjórn Pol Potsárið 1975. En enn sem komið er virðist ekki vera séð fyrir endann á afskiptum Víetnama af stjórnmálum i Kampútseu. Frakkar skipuðu Víetnama i allar helstu stjórnarstöður i Kampútseu á stjórnarárum sinum og á þeim tíma voru fáir innlendir menn þjálfaðir í stjórnar- störfum. Þessi staðreynd, ásamt því að | efnahagur Vietnama var mun betri, ! hefur rennt stoðum undir þá skoðun j Vietnama, að þeir séu skör hærra settir en Kampútseumenn, segir Gareth ' Porter, annar sérfræðingur í málefnum j Suðaustur-Asíu og fyrrum háskóla- I prófessor. „Það var víetnömskum kommúnist- um þvi eðlilegt að líta á sig sem herraþjóð allra indó-kínverskra rikja, er flokkur þeirra var stofnaður árið 1930,” segir hann. Um 1965 ákváðu vietnamskir kommúnistar að styðja ekki baráttu kampútseskra kommúnista, vegna þess að stefna og afleiðing byltingar í Suðaustur-Asíu ætti og myndi ákvarðast I Víetnam. Þetta þótti kampútseskum kommúnistum vera merki þess að vietnamskir kommúnistar þættust yfir þá hafnir og að það skipti þá litlu hvernig mál æxluðust i Kampútseu. „Þetta sýnir enn betur hvernig þessar þjóðir líta hvor á aðra," segir Porter. „Miklu betur en einstaka atvik og ásakanir, eins og t.d. vera vietnamskra hermanna i Kampútseu i Vietnamstyrjöldinni." Það þarf þvi engan að undra, að j hersveitir Pol Pots áttu i sífelldum i bardögum við hersveitir víetnamskra ; kommúnista I austurhéruðum landsins ; þar til Vietnamar létu til skarar skríða j og gerðu innrás i landið í desember ; 1978. Það er hins vegar álit margra : sérfræðinga i málefnum þessa í heimshluta. að innrásin hafi ekki verið I gerð til þess að leggja landið undir sig. I heldur miklu fremur til þess að sýna fram á leiðtogahlutverk Víetnams meðal kommúnista i Suðaustur-Asíu um leið og staðan er skýrð gagnvart Kína, sem stutt hefur stjórn Pol Pots. Það hryggilegasta við þetta er þó, að á meðan slíkar deilur standa vofir hungurdauðinn yfir 2-3 milljónum Kampútseumanna, sem lent hafa á milli fornra fjandmanna. Alþjóða hjálparstofnanir hafa loks fengiðað láta til sín taka, en enn er ástandið ótryggt, svoekki sé meira sagt. HP. (Byggt á C.S. Monitor og Newsweek) 9. tbl. Vikan 29

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.