Vikan


Vikan - 28.02.1980, Page 49

Vikan - 28.02.1980, Page 49
3ja mánaða meðgöngutfmi Maður hefur stundum heyrt að þegar ástin grípur fólk vari hún að jafnaði i ca 3 mánuði, þ.e.a.s. sé hún ekki sú eina rétta. Til að byrja með hefur maður kannski nýiega komist yfir síðustu ástarsorg, en hefur á tilfinningunni að aldrei muni maður verða eins ástfanginn aftur og sem betur fer þvi að þetta var svo óskap- lega erfitt. Og hafi maður aldrei verið ástfanginn heldur maður að líklega sé maður sú manngerð sem aldrei verður ástfangin. Þess vegna er maður alveg óviðbúinn þegar hún skellur yfir mann. Þegar einhver verður skyndilega allt i lífi manns, sem sé eini karlmaðurinn I öllum heiminum. Maður hefur aldrei elskað annan svona heitt. Nú er maður alvöru- ástfanginn. Hinir — það var bara eitthvað sem maður imyndaði sér! Þetta skipti er það öðruvísi. Hann er svo fullkominn. hendur hans og augu, eða þá svipurinn í kringum munninn ... Aherslan er lögð á grænu augun •«9ir SOPHIA LOREN - 45 ára: Ég hef aldrei getað staðist lystugan sPaghettirétt og guði sé lof þá hefur hann aldrei valdið mér byngdarvandræðum. Til að halda mér gtannri opna ég hvern einasta morgun 8'uggana og leggst á gólfið og hjóla með fótunum I hálftíma. Það getur verið ansi erfitt en árangurinn lætur ekki á sér standa, fætur og læri halda áfram að Veta spengileg og stinn. Ég borða m:kið af grænmeti og salötum. Ég veit að karlmenn dást að grænu augunum mínum, þess vegna hugsa ég vel um þau. baða þau á hverju kvöldi upp úr veiku tei og smyr siðan augnlokin með Þunnu, feitu kremi. Á hverjum degi legg e8 minkolíumaska á andlit mitt og læt maskann vera á I 15 minútur. Húðin verður afslöppuð og fær fallegan blæ. Ég hgg aldrei I sólbaði, það eyðileggur húðina. Ég legg áherslu á að snyrta mig I ktingum augun til að leggja meiri ^herslu á fegurð þeirra. Við förum í langar gönguferðir (nokkuð sem aldrei er gert venjulega). Éinnst allir hlutir í kringum okkur svo miklu fegurri, fjöllin, blómin, trén og fólkið fær á sig annan blæ. Og alveg sama þó að hellirigni, áfram skal gengið. Það er bara svo rómantískt að vera úti I rigningu (skildi það bara ekki fyrrl. Söfn eru heimsótt (staður sem aldrei er stigið inn á undir venjulegum kringumstæðum) og i augum okkar fá sýningargripirnir sérstaka þýðingu: Við sjáum ástina I öllu. jafnvel abstraktmál- verkinu sem enginn skilur. Éyrsta sinn sem við borðum úti saman kemur I ljós að við höfum bara alveg sama smekk á mat. piparbuff og logandi pönnukökur. Éyrsta sinn í bió er ekki nokkur vafi, við verðum strax sammála um hvaða mynd við viljum sjá, og við borðum bæði popp. Eftir eins mánaðar sælu sendir hann mér blóm. Ég kaupi handa honum Ijóðabók og sendi með hraði. Bréfa- skriftir og smámiðar koma í hrönnum inn um bréfalúguna. Ég kaupi mér ný föt, dálítið djarfari er venjulega. Éæ mér nýja klippingu og kemst yfir hina ótrúlegustu hluti viðvikjandi þvi að halda mér hið besta til. Síminn logar, foreldrarnir kvarta undan simareikningum, ekki hlustað — það er hvort sem er vonlaust að lifa heilan dag án þess að tala nokkrum sinnum saman. Éimmta skiptið sem borðað er saman úti kallar hann á þjóninn að mér finnst nokkuð höstuglega (mér geðjast ekki að því). Gerði hann það lika I hin skiptin eða hvað? Tók ég ekki eftir þvi? Við erum búin að vera saman I tvo og hálfan mánuð. Næsta skipti sem farið er I göngutúr vill hann velja leiðina eins og venjulega. Það pirrar mig dálítið. Ég segi það ósköp vinalega, hlæ dálítið um leið. Hann hefur orð á því að peysan mín sé asnaleg á litinn og af hverju ég sé með svona klippt hár. Hafi maður prófað þetta fyrr veit maður að það er nú sem venjulegt ástarævintýri er komiðá leiðarenda. Dag nokkurn mætir hann ekki á stefnumótið okkar, segist hafa gleymt því. Ég fer I vont skap og segi ýmislegt sem betur væri gevmt. Það eru liðnir 3 mánuðir og ástin er ekki meir. Ég segi við sjálfa mig: Þetta voru 3 góðir mánuðir. Ég tek þá, legg þá I kassa, bind rautt band utan um kassann og geymi hann vandlega til minningar. Nei, ég elska áreiðanlega aldrei aftur. Skop Feita Fríða á efri hæðinni er að strjúka að heiman. ARIN- HLEÐSLA Gerum föst verðtilboð. Útvegum margar gerðir af eldsteini, skrautsteina og mislita múrsteina. MAGNUS A. OLAFSSON; sími 84736 i/f . 9. tbl. Vikan 49

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.