Vikan


Vikan - 28.02.1980, Page 30

Vikan - 28.02.1980, Page 30
Draumar Strákurinn frá síöasta sumri Kæri draumráðandi! Mig dreymdi dálítið skrítinn draum núna J'yrir skemmstu. Mér þótti sem ég vœri í bœ einum (ég bý ekki þar). Ég var heima hjá stráknum sem ég var með síðasta sumar. Við skulum kalla hann Z. En ég sá aldrei neinn þar nema mömmu hans. Einn morguninn rangla ég út og labba fram hjá skólanum þar, en þá voru þar bekkjar- Skop systkini mín og skólastjórinn. Þau kalla á mig og segja mér að koma I skólann en ég held áfram og læst ekki heyra til þeirra. Síðan fer ég upp í gamalt hverfi og hitti þar vinkonu mína, S. Ég segi S frá vandamálum mínum, að Z vilji ekkert við mig tala loksins þegar ég kem að heimsækja hann. Þá segir hún mér að hann sé kominn á fast með annarri. Þá varð ég öskureið og ætlaði sko aldeilis að tala við hann. En þegar ég kem heim til hans þá bíður hann þar eftir mér og býður mér í bíó með sér og þá vaknaði ég. Með von um birtingu. 5214-4450 Að einhverju leyti er þessi draumur ávöxtur hugsana í vökunni og því vafasamt að taka mikið mark á honum. Þó eru þarna merki um að þú getir átt von á að lenda í deilum í skólanum, sem leysast þó þegar frá líður, og að þér væri happa- drýgra að gæta hófs í framkomu við aðra. Það er fátt sem bendir til að þessi draumur sé tákn sambands þins við þennan vin þinn og engin ástæða til að taka drauminn bókstaflega á annan hvorn veginn hvað það varðar. Steinasnúran brotnaði Kæri draumráðandi! Þannig er að ég er gift og búin að vera það í 6 ár. Síðastliðna nótt dreymdi mig draum sem mér fmnst að ég þurfi að fá ráðinn. Draumurinn var svona: Mér fannst að steinasnúran, sem ég ber fyrir framan giftingarhringinn, brotnaði og einn steinninn datt úr (hún brotnaði rétt við steininn þannig að hann féll með brotinu). Égvar mjögsár yfir hringnum og fannst ég geta sjálfri mér um kennt þar sem ég hefði ekki hlýtt því að hlífa snúrunni. Með kæru þakklœti. 859 Það er ævinlega slæmur fyrir- boði að dreyma hring brotna af fingri sér og ef um giftingarhring er að ræða táknar það slæma tíma í hjónabandi. í þínu tilviki brotnar aðeins snúran en ekki hringurinn sjálfur og því er ósennilegt að draumur þessi sé fyrirboði skilnaðar ykkar hjóna, sem þú virðist óttast mest. Hins vegar má búast við einhverjum árekstrum og miður jákvæðum atvikum sem reyna á allan styrk ykkar beggja og þolinmæði. Þar getur brugðið til beggja vona en lyktirnar eru einungis undir samstarfsvilja ykkar hjónanna og einlægni komnar. Barn með bleika húfu Kæri draumráðandi. Viltu vera svo vænn að ráða þennan draum fyrir mig? Mig drevmdi að ég og vinkona mín værum óléttar. Við vorum á labbi úti og vorum að tala um hvor okkar ætti krakkann á undan. Þá kom í Ijós að ég átti að eiga þann 1. október en hún 3. október. Þá var hún ofsareið því hún vildi eiga á undan mér. Læknirinn sagði að ég myndi ganga með tvíbura. Svo var annað fóstrið tekið úr mér og látið inn I bleyju. Það átti að vera þar þangað til það væri orðið fullþroskað til að koma í heiminn. Svo eftir nokkra daga fór ég að gá að því. Þá var al/t I lagi með það. Ég öskra á vinkonu mína og segi að það sé kominn haus á barnið, það sé með bleika húfu og að það sé stelpa. Svo vaknaði ég. S.A. Gættu vel að framkomu þinni því með ógætilegum orðum og athöfnum gætirðu eyðilagt vináttu ykkar stallsystra. Ein- hverjar fyrirætlanir þínar takast vel og þér hættir á köflum til þess að miklast um of. Dagsetningarnar ættirðu að leggja vel á minnið því þær hafa einhverja merkingu sem draum- ráðanda er ekki vel ljós. Til þess þyrfti hann að vita meira um ykkur vinkonurnar en ekki er ósennilegt að þarna sé um bind- ingu ykkar við aðila af hinu gagnstæða kyni að ræða. Blóðblettir í rúmi Kæri draumráðandi. Viltu vera svo vænn að ráða þennan draum. Hann er þannig: , Ég vaknáði (í draumrtum) við það að ég stóð upp og sá að það voru litlir túrblettir á lakinu mínu eftir mig. Sama daginn hringir strákur og spyr um bróður minn. Þeir eru vinir. Ég sagði að hann vœri ekki heima en ég spurði hann hvort Z væri heima. En þá skellti hann bara á og þá vaknaði ég. (Heldur þú að þetta geti verið fyrir barni?) Ein skelfd. Það þarf ekki að vera að svo sé, en þó ekki útilokað með öllu. Miklu líklegra er að þarna ráði einhverju um hugsanir þínar i vökunni. Því er erfitt að segja hvort draumurinn boðar þér eitthvert sérstakt atvik, en þú mátt gæta þín á fljótfærnis- legum ákvörðunum og þarna er ákveðin bending til þín að fara varlegar í ástamálum heldur en þú hefurgert til þessa. 30 Vikan 9. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.