Vikan


Vikan - 28.02.1980, Side 8

Vikan - 28.02.1980, Side 8
Viðtal Vikunnar „Sá geri út sem getur gert út. Sá selji fisk sem getur selt fisk. Sá afli sem getur veitt." Frjálsræði i þessum efnum er alltaf til bóta. Hér á landi er samtryggingin í félags- málabákninu öllu orðin svo mikil að ekki er hægt að hrófla við neinu. Það eru ekki bara sósialisku flokkarnir sem standa í þessu. þetta grefur sig inn í alla flokka og meira að segja Sjálfstæðis- flokkurinn er gegnsýrður af þessu. Eins og ég sagði áðan þá hef ég alltaf talað fyrir daufum eyrum, meira að segja í mínum eigin flokki. Þeir sem réðu stefnunni töldu þetta rangt og hlustuðu bara á sérfræðingana. — Var enginn i þinginu sem tók undir orð þin? — Nei, enginn! Flokksræðið er svo mikið og eftir þvi varð ég að dansa. samþykkja hverja vitleysuna á fætur annarri þó svo ég væri gersamlega á móti þeirn. Ég var t.d. i nefndinni sem hafði með nýju skattalögin að gera. Þau eru að mínum dómi meingölluð en samt var okkur sagt að við yrðum að samþykkja þetta. lögin yrðu hvort eð er skoðuð aftur áður en þau tækju gildi. Nú eru margir af þeim sem samþykktu þessi lög farnir frá og eftir sitja aðrir með þennan óskapnað og geta litið aðhafst. Ha? Með tímanum verður maður samdauna svona vinnubrögðum og að lokum finnst öllum þetta sjálfsagt. — Heldurðu að fólkið í landinu sé „Það ætti að loka öllum æðri menntastofnunum í svo sem 3 ár og athuga hvort ekki væri hægt að drepa mesta námsleiðann með því." Markaðskerfið á að gera það og hið opinbera á ekki að vera með nefið ofan i hvers manns koppi. Þá er ótalinn einn mesti galli sem er á þjóðfélagi okkar og er það verðlagseftir- litið sem verið hefur við lýði hér undan- fama áratugi, kostar skattborgarana stórfé og hefur ekki gert annað en að eyðileggja verðskyn alls þorra almennings. Það er ekkert verðskyn til í landinu lengur. Almenningur sem fer i búðir getur ekki, eða treystir sér ekki til að meta hvað verðið á að vera. Harm treystir því bara að hið opinbera sjái til þess að verðið sé rétt. Og það er búið að innræta fólki.það að verðið sem hið opinbera ákveði sé rétta verðið. Mesti greiði og mesta kjarabót sem hægt er að gera fólkinu i landinu er að afnema verðlagseftirlitið með öllu. Aftur á móti tel ég að styðja eigi við bakið á Neytendasamtökunum því þau eru heilbrigð. 1 þeim nágrannalöndum okkar þar sem kaupmáttur tímakaups er hvað mestur, þar er ekkert verðlagseftirlit. — En er ekki munur þarna á þar sem bóndinn fæst við skepnur. korn og þess háttar en kapitalistinn notar sér annað fólk? — Eg er að tala um heilbrigðan kapítalisma. ég er ekki að tala um ræningja sem stela öllu helvítis draslinu. Ég er að tala um kapitalisma þar sem fyrirtækin eru rekin með hagsýni. dugnaði og árvekni. öðruvísi skila þau ekki arði. Fyrirtæki verður að reka af sömu kostgæfni og bóndinn sýnir jörð sinni eigi hann aðeiga einhverja von um góða uppskeru. Það kalla ég heilbrigðan kapitalisma. Það er eins og sumt fólk haldi að |x'ir sem græði peninga séu einhverjir ræningjar. En sannleikurinn cr sá að það er fátt sem kemur þjóðfélaginu til meiri góða en til séu menn sem skapi fjármagn — græði peninga. Enda sýnir sagan okkur að það voru kaupsýslumannastéttirnar sem fluttu listir og mcnningu hér áður fyrr — það voru hinar ríku stéttir. í itölsku borgríkjunum voru það fésýslumennirn ir sem stóðu undir allri menningu og list- sköpun. — Þeir höfðu lika þræla. - Það þarf ekkert þrælahald til að reka fyrirtæki með gróða. við eruni ekki með neina þræla hérna. Vel rekið fyrir tæki getur lika borgað gott kaup og hin gömlu sannindi um að verkamaðurinn sé verðugur launa sinna eru enn i fullu gildi. En það er tómt mál að vera að tala um fyrirmyndarfyrirtæki hér á landi þar sem enginn má róta sér neitt fyrir opinberum nefndum og ráðum. Siðustu 10-20 árin hefur islenska þjóðfélaginu verið stjórnað af sérfræðingum en ekki stjórnmálamönnum. Efnahags- sérfræðingar hafa algerlega ráðið ferðinni og stefnunni og þó ég sem alþingismaður hafi haft einhverja sjálf- stæða skoðun þá hef ég orðið að dansa með. Og hver er svo árangurinn af öllu þeirra starfi? 1. Við erum með veikasta gjaldmiðil sem fyrirfinnst I frjálsu lýðræðis- þjóðfélagi. 2. Við erum með evrópumet i verðbólgu og þó víðar væri leitað. 3. Allir undirstöðuatvinnuvegir þjóðarinnar eru reknir á mjög ótraustum grunni þrátt fyrir góð viðskiptakjör að undanförnu, mér er til efs að við getum reiknað með þeim betri. 4. Kaupmáttur launa er hér miklu minni en þekkist hjá öðrum lýðfrjálsum þjóðum þrátt fyrir að þjóðarframleiðsla hér sé miklu nieiri en þekkist víðast hvar annars staðar. 5. Sparifjármyndun hér er miklu niinni en eðlilegt getur talist miðað við þjóðarframleiðslu. 6. Vaxta- og lánakjör og lánsfjár- skortur eru i slíku ófremdarástandi að við svo búið verður ekki unað eigi að geta þróast eðlilegt atvinnulíf hér á landi. Þetta er allur árangurinn af starfi efnahagssérfræðinganna. Hér er ekki við einstaklingana að sakast. Það er fyrir löngu kominn timi til að ieyfa fyrir- tækjum og einstaklingum að spreyta sig i atvinnulifinu án afskipta þess opinbera. A þessu hef ég hamrað i mörg ár en ekki fengið neinn hljómgrunn. Ef farið yrði að minum ráðum þá myndi það kalla á aukið frjálsræði og arðsemi hlutaðeig- andi reksturs auk þess sem það yki á ábyrgðartilfinningu hlutaðeigandi rekstraraðila. Nú er sifellt verið að hrópa á rekstrargrundvöll frá þvi opin- bera. Hvaða möguleika hefur hið opin- bera á því að tryggja fyrirtækjum rekstrargrundvöll? Ríkið hefur ekki annað til umráða en skattheimtufé og sú hít er ekki ótæmandi. Sá geri út sern getur gert út. Sá selji fisk sem getur selt fisk. Sá afli sem getur veitt. Ríkið á ekki að ákveða verð á fiski eða öðru. 8 Vikan 9> tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.