Vikan - 28.02.1980, Blaðsíða 12
Vikan kynnir
pað er því miöur satt og rétt að tískufatnaður karla hefur orðið afskiptur hér á þessum síðum, enda
tiskuverslanir með herrafatnað faerri og úrvalið ekki eins mikið. Þrátt fyrir breytingar i jafnréttisátt á
hinum ýmsu sviðum hefur lítið breyst hvaö snertir heföbundinn klseðaburð kynjanna. Karlmenn kjósa
ennþá dimma og oft á tiðum drungalega liti og eru mun seinni en kvenfólkið að tileinka sér ýmsar tísku-
nýjungar. Það er til dæmis ekki mikið vandamál fyrir konu að verða sér úti um skærrauðan eða fjólulitan
klæðnað, ef henni býður svo við að horfa, en karlmaður yrði að leita lengi eftir slíku i verslunum. Liklega
yrði svo leitin með öllu árangurslaus, ekki um annað að ræða en láta sauma á sig skrúðann og jafnvel að
flytja inn sjálfur efnið i klæðin.
En hvað um það. Við brugöum okkur að þessu sinni i Herrahúsið við Aðalstræti 4, sem hefur starfað
þar á sama staðnum síðan árið 1964. Þar er á boðstólum herrafatnaður á alla aldurshópa, allt frá
hversdagsfatnaði og upp í finustu kjólföt. Kjólfötin eru sigildur klæðnaður, talin upprunalega frá
Frakklandi á dögum Lúðviks 16, en smókingurinn er talsvert yngri að árum.
Hér á þessum Ijósmyndum Jims Smart gefur að líta hluta af vörum verslunarinnar en
sýningarmennirnir eru Snævar ívarsson og Alfred W. Gunnarsson. ^ai
IZ Vikan 9. tbl.
,6
HERRA
LEGIR
U R ■'Slens*- -
HERRAHÚSINU