Vikan


Vikan - 28.02.1980, Blaðsíða 21

Vikan - 28.02.1980, Blaðsíða 21
hans væri ég að vissu leyti að villa á mér heimildir. En áður en ég gat opnað munninn hafði hún þrifið tóman diskinn og hraðaði sér i burtu. Ég lagði af stað gangandi og kom fljótt að vegvísi sem á stóð Priory Cross 2 1/2 míla. Þegar ég sá að skiltið benti í átt að bugðóttum vegi með yfirvöxnum trjákrónum hélt ekkert aftur af mér. Ég hafði ekki gengið lengi þegar ég heyrði bíldrunur fyrir aftan mig. Ég varð hálf ergileg, því ég hélt að ég væri laus við alla bílaumferð eftir að ég fór út af aðalveginum. Ég nam staðar og hlustaði. Billinn nálgaðist beygjuna fyrir aftan mig á ískyggilega miklum hraða, miðað við að enginn gangvegur var meðfram veginum. Ég vék eins langt til hliðar og mér var unnt og vonaði að þessi óði ökumaður slyppi framhjá mér. Rauður. opinn bill birtist. Ljóst hár stúlkunnar, sem keyrði, stóð aftur af henni þar sem hún geystist fram hjá, svo ekki munaði nema hársbreidd að hún snerti mig, og nam svo staðar i um fimmtíu metra fjarlægð. Ég skalf af hræðslu og reiði þegar ég lagði af stað i átt til hennar. „Halló," sagði stúlkan. „Fyrirgefðu. Meiddirðu þig nokkuð?" Stúlkan hallaði sér upp að bilhurðinni, ber handleggurinn hvildi efst á hurðinni.. Svipur hennar var allt að því bamslegur, en þó vottaði fyrir örlitilli áhyggjuhrukku milli augnanna. Hún var ákaflega lagleg, en það var ekki neitt af þessu sem varð þess valdandi að mér hvarf snögglega öll reiði. í þetta eina skipti sem ég hafði séð frænku mina hafði ég verið of ung til að taka eftir ættarsvip og þess háttar at- riðum. Ég mundi samt að hár hennar hafði verið á litinn eins og tunglsljósið, því þannig háralit höfðu líka móðir min og Sara frænka haft. Ég var ekki i neinum vafa um að stúlkan, sem næstum hafði ekið mig niður, var frænka mín, Vivien Marsh. Ég dró djúpt að mér andann og svaraði henni: „Það er allt I lagi með mig. En —” „Guði sé lof. Ó. ég get ekki hugsað mér að vera völd að dauða einhvers. Það gengur enginn þessa leið. Fólk fer hina leiðina gegnum Priory Cross. þvi það er miklu fljótlegra. Þess vegna átti ég ekki von á —” „Ég hef nú hingað til haldið að gætinn ökumaður yrði að eiga von á ýmsu framundan,” hreytti ég út úr mér. „Að minnsta kosti verður hann að gera sér Ijóst að það geta verið fleiri á veginum en hann.” Ég hefði getað bitið úr mér tunguna um leið og ég sagði þetta. Vivien fór að hágráta svo ég var eiginlega komin meira í varnarstöðu og allt að því að ég bæði hana afsökunar i stað þess að vera reið sjálf. Rödd mín hljómaði eins og grófasta karlmannsrödd. Ég hef alltaf haft frekar djúpa rödd en þegar ég fer hjá mér er hún ennþá verri. „Ég var búin að segja að það væri allt í lagi með mig,” sagði ég henni. „Mér finnst bara — já, ef þú gætir framvegis munað að stiga á bremsuna áður en þú kemur í beygjuna, þá væri það til mikilla bóta. Þú ættir nú fremur að gleðjast en gráta. þar sém þér tókst að sleppa við mig." Vivien leit upp og mér til mikillar furðu þá brosti hún til mín. „Ó. þú hefur alveg á réttu að standa. Hvert ertu að fara — til Priory Farm? Sestu inn, ég skal aka þér þangað.” Hún brosti glaðlega og það hvarflaði aftur að mér hvað svipur hennar væri eiginlega barnslegur. „Ég er I rauninni alveg á- gætis ökumaður, það segir pabbi alltaf. Þess vegna leyfir hann mér að aka einni." Ég hikaði. Mér fannst einkennilegt að hún skyldi segja þetta, miðað við að frænka min var jú orðin tuttugu og fjögurra ára. En hvað um það. „Ég er að fara til Priory Cross,” sagði ég og gekk yfir að hinni hlið bílsins og settist i far- þegasætið. Ég yrði að segja henni hver ég væri; þvi eitt var víst, ég gæti aldrei, hvernig sem allt færi. þóst ekki hafa þekkt Vivien. „Priory Cross? En þar er ekkert, nema einn eða tveir litlir bóndabæir.” „Og klausturrústirnar, er það ekki? Mér var sagt á kránni að það hefði einu sinni verið þarna klaustur." Hún hrukkaði ennið, steig á bensínið og þurrkaði tárin af andlitinu með hand- arbakinu. „Þangað fer enginn. Þessar rústir eru lika á okkar landareign.” Það birti yfir svip hennar um leið og við ókum af stað og hún sagði: „Pabbi fór til Warwick. En það skiptir nú auðvitað engu máli. Hvaðan kemur þú annars?" „London." „Áttu við að þú eigir heima þar?" í rödd hennar mátti greina bæði öfund og svo eitthvað sem ég ekki gat skilgreint. Ég var enn að reyna að hugsa upp einhverja heppilega aðferð til að kynna sjálfa mig þegar við ókum fram hjá hliðinu við Priory Farm og fram hjá nokkrum smáhúsum og beygðum svo út af vcginum i hina áttina. Frænka mín benti aftur fyrir sig. „Þetta er nú allt og sumt. Vegurinn liggur svo áfram út á aðalveginn til Lowcr Boulting, svo þú skilur kannski hvers vegna ég átti ekki von á að hitta neinn á leiðinni. Hún ók beint áfram smáspotta, en svo greindist vegurinn. Vivien benti til hliðar. „Það sem eftir er af klaustrinu er þarna. Það er alveg örstutt að ganga þangað frá húsinu.” Ég sá þá að gatan endaði á hringlaga plani með grasi allt um kring. Við ókum upp að fremur litlu sveitasetri. Vivien nam staðar fyrir framan Ingólfsstræti 2, simi 13271 MIKIÐ URVAL Allar nánari upplýsingar: PENNAVIÐGERÐIN 9. tbl. ViKan 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.