Vikan


Vikan - 28.02.1980, Blaðsíða 38

Vikan - 28.02.1980, Blaðsíða 38
VIKAN og Félag húsgagna- og innanhussarkitekta: Þó að langt sé um liðið síðan forfeður okkar kveiktu langelda í húsum sinum sér til hita og gagns og viðhorf i orku málum hafi öll breyst, tel ég að opin eldstæði ættu að vera til staðar i öllurn einbýlis- og raðhúsum hér á landi. Þörfin fyrir slikt er að sjálfsögðu ekki jafn brýn og áður en það breytir engu um að kostirnir við það að hafa arna i hibýlum manna vega enn þungt. Fyrst má telja að fátt er meira afslapp- andi en að láta sér líða vel að kveldi við opinn eld i faðnti fjölskyldunnar. Þvi ætti arinn ætið að vera staðsettur þar sem öll fjölskyldan getur safnast saman. Annað ágæti arins er að hann er ágæt loftræsting. Loftið sækir í eldinn og því hreinsast andrúmsloft ibúðarinnar á skömmunt tíma — að þvi tilskyldu að gegnumtrekkur myndist. Stórir stólar með háu baki og eyrunt, sem fólk kannast við, voru einmitt með því lagi til að verja fólk sem sat við arin trekki. Slík getur ásókn loftsins i eldinn verið. Svo má ekki gleyma þvi að ágætt er að grilla mat i opnu eldstæði. Það er ekkert sem mælir frekar með því að arinn sé staðsettur innanhúss en utan. nema þá veðráttan. En það ætti að vera Ijóst að það er ekki hægt að tengja fleiri en einn arin við hvem reykháf. Afleiðing af því verður m.a. sú að íbúar Að láta sér líða vel að kvöldi dags við opinn eld í faðmi fiölskyldunnar Þessi arinn eftir Gunnar Einarsson er á heimili Kristins Albertssonar bakara- meistara í Reykjavík. Arínn á fyrst og síðast að vera einfaldur, nothæfur og notaður. VIKAN og Gunnar Einarsson húsgagna- og innanhússarkitekt Arinn hannaður af Gunnari Einarssyni á heimili þeirra Bergs Jónssonar og Margrétar Guðmundsdóttur að Kjalar- landi 11. Margrét kvað það athyglisvert hversu góð loftræsting fylgdi arninum. fjölbýlishúsa geta ekki veitt sér þann munað og þá ánægju sem honum fylgir. Ef íbúar I fjölbýlishúsi með 30 ibúðum ætluðu allir að fá sér arin þyrftu að vera 30 reykháfar á blokkinni — og það nær náttúrlega ekki neinni átt. Það sem helst ber að varast I sambandi við opin eldstæði er að fólk sé að fikta við að setja þau upp sjálft, því öllu máli skiptir að þau séu ré.tt uppbyggð frá grunni. Um staðsetning- una er það að segja að hún fer að öllu leyti eftir húsnæðinu sem um er að ræða í þaðog þaðskiptið. Mikið hefur borið á þvi að arnar i heimahúsum hafi verið yfirkeyrðir með skrauti og oft mætti halda að eigendurn- ir litu frekar á þá sem einhverja mublu en nytsaman hluta íbúðar. Oft á tiðum virðast þeir alls ekki vera notaðir og standa þá einfaldlega meðsvart gapandi ginið upp við vegg. Arinn á fyrst og siðast að vera einfaldur, nothæfur og notaður! Sem eldivið í arna ætti helst ekki að nota neitt nema birki eða brennilurka, vel þurra, því annars er hætta á sprengingum og neistaflugi. Mótatimbur og annað þvílíkt ætti aldrei að nota sem eldiviðíarna. Það færist óneitanlega í vöxt að fólk geri ráð fyrir opnum eldstæðum i hibýlum sínum — í það minnsta hef ég hannað yfir 200 slik á undanförnum árum og eftirspurnin eykst. í dag kostar arinn frá 250-400 þúsund krónur og ekki getur það talist mikið verð. miðað við heildarkostnað ibúðarhúsnæðis. htima hjá sér í Hvassaleiti 109. Sigmundsdóttir. Gunnar Einarsson Foreldrar hennar eru þau Grétar hannaói arininn. 38 Víkan 9. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.