Vikan


Vikan - 20.03.1980, Page 7

Vikan - 20.03.1980, Page 7
gera barninu ekki gagn og örva það ekki til áframhaldandi þroska. Mörg þroskaleikföng eru hönnuðfyrir ákveðinn aldur, t.d. 2-4 mánaða. 6-8 mánaða o.s.frv. Það er hægt að kynna sér hvaða leikföng hæfa barninu hverju sinni. Menn vita að sum leikföng hæfa ákveðnum aldri og önnur ekki af sálfræðilegum rannsóknum á börnum og þroska barna. Að verða vel eða illa gefinn Menn hafa deilt mikið um að hve miklu leyti erfðir eða umhverfi eigi þátt i að skapa manninn. Ekkert þrætuefni hefur veriðjafnvinsælt og umrætt innan sálfræðinnar og einmitt þáttur umhverfis og erfða i uppeldi. Þetta er mjög eðlilegt þttr sem málið er pólitiskt. Ef staðreyndin væri sú að allt væri erft og umhverfið skipti ekki máli þyrfti lítið að gera til að bæta uppvaxtarskilyrði barna, það myndi ekkert þýða hvort sem væri. En ef umhverfið hefði á hinn bóginn mikil áhrif þyrfti að gera miklu meiri kröfur til umhverfisins, og sú krafa gæti komið upp að samfélagið yrði að sjá börnum fyrir lífvænlegum þroska- skilyrðum. Margir, ef ekki allflestir sem hafa fjallað um erfðir og umhverfi, álita að maðurinn fæðist með ákveðna möguleika til þess að hafa samskipti við umhverfið. Það sé háð þessum samskiptum hve maðurinn nær langt á þróunarferli sínum. Að verða „vel" eða „illa" gefinn er því ekki einfalt mál. Allir fæðast hins vegar með óteljandi hæfileika til þess að ná þroska. En möguleikar manna til þess að nýta þessa hæfileika eru mismunandi. Sum börn fæðast inn i stéttir og fjöl- skyldur þar sent minni tök eru á þvi að veita þeim rikuleg þroskaskilyrði, en önnur fæðast inn í stéttir og fjölskyldur þar sem þessir möguleikar eru meiri. Samfélagið býr einnig mjög misjafnlega að börnum. t.d. hvað varðar dagvistun og vistun barna almennt utan heimilis. Hvort einstaklingur verður „vel" eða „illa" gefinn er því háð samfélagskerfi. heimilisumhverfi, hefð og ótal fleiru. Þessi atriði setja hins vcgar þroska einstaklingsins vissar skorður. Aðeins eru þær skorður misjafnlega þröngar. ★ 12. tbl. Vikan 7

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.