Vikan


Vikan - 20.03.1980, Blaðsíða 18

Vikan - 20.03.1980, Blaðsíða 18
Viðtal Vikunnar Verslunin hefur ekki malaö mér neitt gull og ég held ég megi fullyrða að ég eyddi minna fé til auglýsinga fyrir prófkjörið en flestir aðrir. sem ævistarf heldur sitja líka æviráðnir menn i öllum ráðuneytum. Og því vill oft fara svo með breytingarnar eins og hjá gamalli húsmóður sem fer á námskeið til að hressa upp á matar- gerðina með nýjum uppskriftum. Þegar fram i sækir finnst henni miklu þægilegra að halda sér bara við þær gömlu. Konur og efnahags- mál — Hvað finnst þér um slagorðið: Fleiri konur á þing? Er það réttmætt? — Já, það er tvímælalaust réttmætt af því að það er einlæg sannfæring mín að við höfum svo miklu meira til málanna að leggja en við höfum hingað til gert. Hins vegar má ekki misskilja þetta slagorð þannig að kjósa eigi konu á þing eingöngu vegna kyns hennar. — Nú hafa konur á Alþingi helst lent i þeim málaflokkum sem snúa að einhvers konar mannúðarmálum. Finnst þér þetta eðlileg skipting? — Nei, alls ekki. Konur ættu að vera jafnvígar á hvaða málaflokk sem er, þar getur ekki verið neinn eðlislægur munur. Ef við t.d. litum á efnahagsmálin, sem hafa frá upphafi verið verksvið karlmannsins, væri synd að segja að árangurinn sé nein skrautfjöður i hatt þeirra. Mér finnst orðið meira en tíma- bært að konur láti eitthvað að sér kveða á þeim vettvangi. — Hefur þú einhverjar ákveðnar skoðanir á efnahagsmálunum? — Já, og þar er af mörgu að taka. Við gætuni t.d. minnst á óheyrilega háa óbeina skatta. Ef við tökum sem dæmi einn lítinn hlut sem bollapar þá fær ríkið í sinn hlut af þvi 80% í tolla. 30% i vörugjald og 22% í söluskatt. Auðvitað geri ég mér fulla grein fyrir að einhvers staðar verður að taka peninga til að standa undir nauðsynlegum útgjöldum eins og t.d. trygginga- heilbrigðis- og menntakerfi. En það má spara á svo mörgum öðrum sviðum. Hér er t.d. rekin ein vitlausasta landbúnaðarstefna sem um getur í víðri veröld og beinlinis Því miður virðist rík tilhneiging til að líta á þing- mennsku sem nokkurs konar œvilanga umbun fyrir vel unnin störf í þágu flokkanna. ýtt undir að allir helstu atvinnuvegir þjóðarinnar séu meira og minna háðir ölmusu, og fé ausið i alls kyns óarðbærar framkvæmdir. Þetta hefur neikvæð áhrif á rekstur fyrirtækja, forráðamönnum fer að finnast betligangan sjálfsögð og alveg óþarfi að láta fyrirtækin bera sig. Starfsmönnum rikisins hefur fjölgað óeðlilega án þess að þjónustan hafi í raun og veru aukist eða mikill afrakstur sjáist af starfi þeirra. Og við höfum varið stórfé til breytinga á skólakerfinu. sem hefur að minnsta kosti ekki skilað sér i betri árangri hjá nemendum heldur þvert á móti. Og svona mætti auðvitað lengi telja. Þróun efnahags- málanna er síst af öllu nein skraut- fjöður í hatt karlmannanna. — Hvers vegna telurðu að konur séu svo tregar til þátttöku i stjórnmálum? — Það er ekki hægt að benda á neina Fleiri konur á þing? 18 Vikan iz. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.