Vikan - 20.03.1980, Blaðsíða 15
Móðir Teresa biðst fyrir 1 flugvél á leið
til Þýskalands.
Milljarður
handa
móður
Teresu
Siðan móðir Teresa fékk friðar-
verðlaun Nóbels hefur fjársöfnun
handa henni og málstað hennar
stöðugt gengið betur hvar sem er í
heiminum. Aðeins í Vestur-Þýska-
landi safnaðist handa henni einn
milljarður á árinu 1979 sem er 25
milljónum meira en árið áður.
Ferdinand Kaemper, féhirðir og einn
af helstu aðstoðarmönnum móður
Teresu I Vestur-Þýskalandi, segir:
— Við höfum ekki undan lengur að
skrifa kvittanir.
Ástir samlyndra
hjóna
Italir hafa uppgötvað nýja hetju:
Rachele, ekkju Mussolinis, sem lést á
síðasta ári af hjartaslagi, 89 ára gömul.
Rachele Guidi hitti hinn verðandi
einræðisherra árið 1906 heima hjá
föður sínum en hún sá þá um heimilis-
reksturinn.Hún féllst loks á að giftast
Benito eftir að hann hafði hótað að
fremja sjálfsmorð ef hún hryggbryti
hann. Hún ól honum 5 börn og hélt
sig í eldhúsinu meðan „11 Duce"
hleypti öllu i bál og brand á Ítalíu og I
hluta af Afriku og Balkanskaga. Þegar
hann var skotinn ásamt ástmey sinni.
Clara Petacci. árið 1945 sneri Rachele
aftur til fæðingarþorps síns, Carpena
de Forli, komst á lág eftirlaun og
opnaði þar litla veitingastofu. Þegar
ókunnugir þekktu hana og spurðu: —
Sophia: Ævisaga hennar hefur vakið mikla athygli.
Sophia fær bókmenntaverðlaun
Sophia Loren hefur fengið mörg
verðlaun — en þau sem komu henni
skemmtilegast á óvart voru
Monmatreverðlaunin sem hún tók
nýlega á móti í París. Þvi þau fékk hún
ekki fyrir kvikmyndaleik heldur
Rachele: Gat ekki þolað...
skriftir. Hún fékk þau fyrir ævisögu
sína, Lifað og elskað. Og þarna lætur
hún gleði sína I Ijós með þvi að falla
um háls Peters Ustinovs sem fékk
sömu verðlaunin áriðáður.
Misjafn
tónlistarsmekkur
' Charlotte Rampling er þekkt fyrir
mörg og djörf hlutverk. eins og til
dæmis hina afbrigðilegu kynþokkadís I
Næturverðinum. Hins vegar er hún
mun minna þekkt í móðurhlutverki
sinu en hún á tvö böm, Emilie, 4 ára, og
David, 2 ára. En eitthvað er farið að
falla á hjónabandshamingjuna því
hún hyggst nú skilja við mann sinn,
franska tónskáldið Jean-Michel Jarre,
eftir rúmlega tveggja ára hjónaband.
Kunnugir segja að tólftónamúsikin
hans hafi verið farin að fara I taugarn-
aráhenni.
Paul Newman: Rétta myndin á klósett-
pappir Roberts Redfords.
Myndskreyttur
klósettpappír
Paul Newman varð fokvondur
þegar hann sá þessa mynd af sér. Því
vinir hans notuðu hana óspart til að
stríða honum:
— Bíddu bara þar til Robert
Redford sér þessa, sögðu þeir.
Og þetta er ekki að ástæðulausu.
Þessir tveir leikarar, sem voru áður
svo góðir vinir, eru nú erkifjendur.
Eftir að vinslit urðu á milli þeirra lét
Paul Newman sérhanna 1000 rúlluraf
klósettpappír. Á hverju einasta blaði
var mynd af Robert Redford og vildi
Newman þannig sýna fyrirlitningu
sina á þessum fornvini sinum.
En nú segja skæðar tungur að
Redford hafi einmitt fundið réttu
myndina til skreytingar á sinum eigin
klósettpappir.
i hlutverk en móðurhlutverkið.
Charlotte: Þekktari
... mann sinn, einræðisherrann.
Já, en er þetta ekki . . . .? hvarf hún
fussandi og sveiandi inn i eldhús.
— Hún þoldi Benito aldrei, segja
þeir sem best þekktu hana í þorpinu.