Vikan


Vikan - 20.03.1980, Qupperneq 20

Vikan - 20.03.1980, Qupperneq 20
Smásaga --------------\ FÉLAG ÍSLENZKRA HLJÓMLISTAR MANNA útvegar yður hljóðfœraleikara og hljómsveitir við hverskonar tœkifæri Vinsamlegast hringið í 20255 milli kl. 1 og 5 V____________ Carol gekk hægt upp gamia steinstíg- inn sem lá upp að húsdyrunum. Hún sneri sér við til þess að sjá Peter Mason, hún sá eftir því að hafa verið svo köld og vildi fullvissa hann um að allt væri í lagi. En hann gekk hægt á eftir henni, niður- lútur og með hendur i vösum ... Henni leið illa, henni fannst hún vera lítil og kvikindisleg. Það hafði í rauninni ekki verið nein ástæða fyrir hana að vera svo kuldaleg við hann. En atvikið í skóginum hafði komið henni úr jafn- vægi. Þó hafði það verið svo smá- vægilegt... „Þetta er einkennilegur skógur,” hafði hann sagt. Þau voru komin í rjóður og hann horfði upp i himininn. Sólin skein í gegnum votar greinarnar og teiknaði gljáandi mynstur á gróna jörðina. Hún sneri sér við og starði á hann. Hvað átti hann við með einkennilegur? Þetta var fallegur skógur! Hann var hluti af þvi landi sem faðir hennar var skógarvörður yfir og hún hafði þekkt þennan skóg allt sitt lif. Þetta var hennar eigin skógur og það var aðeins vegna þess að Peter var líka sérstakur sem hún hafði komið með hann hingað. „Hvað áttu við?” spurði hún. en hann rétti upp höndina til þess að fá hljóð. „Suss,”sagði hann. „Hlustaðu!" Hún hlustaði. „Ég heyrði ekki neitt," sagði hún undrandi. „Það er einmitt það,” sagði hann sigri hrósandi og gaf nú skýringu. „Það er ekki einn einasti fugl hér! 1 skógum sem þessum er vanalega mikill fuglasöngur en héma er ekkert að heyra! Finnst þér þaðekkiskrýtið?” „Mamma fór oft með mig hingað þegar ég var lítil,” svaraði hún stutt í spuna. „Þá var hér nóg af fuglum. Ég man þaðsvogreinilega.” Já, það höfðu einu sinni verið fuglar þarna. Hún mundi það vel. Það virtist ekki lengra síðan en í gær að hún og móðir hennar höfðu hlaupið um skóginn saman. Hún mundi hvernig hún hafði sparkað upp laufunum með litlum barnsfótum og móðir hennar kom hlaupandi á eftir henni, hlæjandi og lét sem hún hefði ekki við henni... Núna var þessi skógur einn af þeim stöðum þar sem minningin um móður hennar var enn skýr og þess vegna kom hún næstum aldrei með neinn hingað. Henni fannst vera svo fáir sem hún gæti deilt þessum minningum með. Og núna hafði Peter bent henni á að þessi skógur var alls ekki svo fullkominn ... Hún gekk þegjandi áfram og hann elti. Hann sveiflaði göngustaf sinum í kringum sig, hann vissi að hann hafði komið henni i uppnám en hann vissi ekki hvernig. Smásaga eftir Pamelu Speck 20 Vikan 12. tbl.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.