Vikan


Vikan - 20.03.1980, Qupperneq 22

Vikan - 20.03.1980, Qupperneq 22
Smásagan Carol fann hvernig hún fölnaði í framan. Hún taldi sig vita hvað hann ætlaði að segja henni. Það var eitthvað að honum . . . hann var veikur. Það var nokkuð sem hún hafði leitt hugann að stöku sinnum — að faðir hennar myndi einhvern daginn falla frá, eins og móðir hennar. En hún hafði ekki látið sér detta i hug að það myndi gerast svo fljótt. Hann var ekki einu sinni orðinn gamall. „Það er varðandi hana mömmu þína," sagði hann hægt. Carol starði á hann. Þú hefur alltaf haldið að — ég hef leyft þér að halda — við höfum alltaf talað um hana eins og hún væri látin." Carol sat grafkyrr. Það var eins og herbergið snerist hægt i kringum hana. Hafði hann sagt að móðir hennar væri ekki . . .? Hún opnaði munninn til þess að tala en það komu engin orð. Faðir hennar tók í hönd hennar og hélt i hana. „Mér þykir það leitt, Carol,” hélt hann rólega áfram. „Ég hef alltaf verið að hugsa um hvernig ég ætti að segja þér þetta.” Nú fékk hún loksins málið. „Mamma — á lifi?” Faðir hennar kinkaði kolli. „Já. Carol.svoer nú það." Carol sleppti hendi hans. Það — gat ekki verið . . . móðir hennar var látin, það voru mörg ár síðan hún dó! „En — en hvers vegna sagðir þú mér að hún væri dáin?” Faðir hennar yppti vandræðalega öxlum eins og hann ætti erfitt með að finna réttu orðin. „Það sagði þér enginn að hún væri dáin, Carol," sagði hann hægt. „Þegar hún fór og kom ekki aftur þá fórst þú að tala þannig um hana. Þú varst tæplega fimnt ára. Móðir einnar vinstúlku þinnar hafði látist og þú hélst að það sama hefði komið fyrir mömmu þina. Ég leyfði þér bara að halda það áfram. Það virtist auðveldast." „En — en hvers vegna fór hún?” spurði Carol. Þetta var of óraunverulegt til þess að hún gæti skilið þetta allt i einu vetfangi. Móðir hennar hafði.yfirgefið þau. Það gat ekki verið satt! Henni hafði þótt svo vænt um þau! Aðeins dauðinn hefði getað tekið hana. „Hvers vegna fór hún?" hélt hún áfram að spyrja. Hún varð að vita það. Hafði einhver annar verið með í spilinu? Einhver sem hún elskaði meira en jrau? „Hún var aðeins sautján ára þegar við giftumst,” sagði faðir hennar. „Það sögðu allir að við værum of ung. En við hlustuðum ekki á það. Við héldum fast við okkar og svo fæddist þú. Hún elskaði þig meira en nokkuð annað, Carol. Þú verður að trúa þvi,” sagði hann alvarlega. Carol kinkaði kolli. hún vissi að hann sagði satt. „Hún var svo ung," hélt faðir hennar áfrani. „ Svo full af fjöri og hamingju og metnaði. Landið hérna og skógarvarðar- bústaðurinn voru of lítil fyrir hana. Eftir smátíma vildi hún fara og vinna, afla sér einhvem veginn álits. Hún var eins og fiðrildi sem ber vængjunum á glugga- rúðu, æst i að sjá heiminn fyrir utan. Skilur þú það?” Carol hristi höfuðið hægt. Landið og húsið sem þau bjuggu i var allt hennar líf. Hún hafði aldrei óskað sér neins frekar. „Nei,” sagði hún blátt áfram. «„það get ég ekki skilið.” „Nei,” sagði faðir hennar blíðlega og leit á hana. „Til þess ertu of lik mér, Carol. En þú verður að skilja að mannfólkið er misjafnt. Sumir vilja fá annað út úr lífinu. Anna var ekki nógu þroskuð til að vita hvað hún vildi þegar við giftum okkur. Það var mér að kenna. Ég var eldri en hún og ég hefði átt að vita betur.” Edward Walters þagði og starði inn i tóman arininn. Carol sat einnig hljóð. hugsanir hennar voru á reiki. „Hvar er — hún núna. pabbi?” Hún reyndi að segja mamma eins og hún var vön en orðin festust í hálsi hennar. Faðir hennar nefndi borg sem var i innan við fimmtíu milna fjarlægð. Fimmtíu mílur, hugsaði Carol. 1 aðeins fimmtíu mílna fjarlægð og samt hefur hún aldrei komið aftur, ekki í eitt einasta skipti. „Vertu ekki bitur," sagði faðir hennar sem sá hvað hún hugsaði. „Þú elskaðir hana meðan þú hélst að hún væri látin. Hættu ekki aðelska hana núna." Hún þekkti einlægnina í rödd hans. Hún ætlaði að reyna hans vegna ef ekki — hennar. „Og hefur hún unnið sig i áliti?" spurði hún og reyndi að dylja kald- hæðnina i röddinni. Hann brosti. „Já, já — hún er ein- hvers konar framkvæmdastjóri í stóru fyrirtæki og er með skrifstofu á efstu hæð í skýjakljúf. Hún ferðast mikið, held ég. Það var alltaf óeirð i henni.” „Hefur þú séð hana, pabbi?” spurði hún. „Já,” sagði hann hægt. „Ég hef séð hana, en aðeins á götu. Hún likist Önnu minni ekki lengur. Fín föt. fáguð, hún var aldrei nein sveitastúlka." „En, pabbi — ég hélt alltaf að við hefðum verið svo hamingjusöm fjöl- skylda!" „Þú sást aðeins þá hlið sem við vildum að þú sæir. Carol. Þú varst svo ung en, jú, við vorum hamingjusöm, hamingjusamari en flestir aðrir — um tíma. En það hefði aldrei enst. Kannski var það rétt hjá henni að fara. Hún sagði aðsvo væri." „Hvers vegna hefur þú leynt mig þessu allan þennan tíma?" spurði hún. „Hvers vegna léstu mig trúa því sent rangt er, öll þessi ár? Hvers vegna hefur þú ekki sagt mér það fyrr en nú?" „Þú ert tuttugu og þriggja ára núna," svaraði faðir hennar. „Ég hafði ætlað mér að segja jtér þetta þegar þú værir orðin tuttugu og þriggja ára." Hún starði á hann. „Hvað kemur aldur minn þessu við?" „Móðir þin var tuttugu og þriggja ára þegar hún fór. Ég vildi að þú gerðir þér grein fyrir að hún var engu eldri en þú ert núna. Ég vonaði að þú yrðir þá kannski ekki eins dómhörð.” Hún horfði á hann. Aðeins faðir hennar hefði hugsað fyrir slíku. „Pabbi, ég ætla að fara upp í herbergið mitt,” sagði hún hljóðlega, „ég verð að hugsa málin.” Hún sneri sér við og gekk að dyrunum. „Hugsaðu ekki með gremju til móður þinnar,” sagði faðir hennar rólega. „Mundu að hún gaf þér ánægjulega bernsku.” Hún sneri sér að honum í dyrunum. „Hvað með þetta?” spurði hún og benti á myndina af móður sinni og blóma- vasann. „Hvers vegna gerir þú þetta?” „Vegna þess að ég elska hana,” sagði hann. „Og vegna þess að hún var svo hrifin af gulum blómum. Hún lét þau vanalega i vasa við myndir af fólki sem hún elskaði. þér, foreldrum sínum. Hún sagði að hún vildi sjá allt það sem hún elskaði sem mest saman.” Þau horfðu lengi hvort á annað. Síðan sneri Carol sér við og gekk upp. Daginn eftir hringdi Carol i Peter Mason og bað hann að hitta sig eftir vinnu. Um leið og hún kom inn i bílinn vissi hann að eitthvað hafði gerst. „Hvað er að. Carol?" spurði hann og umhyggjan leyndi sér ekki i andliti hans. „Mamma er á lífi,” sagði hún. Hann hnyklaði brýrnar en sagði ekki neitt. „Hún vinnur á skrifstofu ekki langt héðan,” hélt hún áfram. „Mig langar að hitta hana. Peter. Viltu aka mér þangað?” Hann svaraði henni ekki en ók á friðsælan stað þar sem hann stöðvaði bílinn og sneri sér að henni. „Jæja þá,” sagði hann, „byrjaðu nú á byrjuninni. Hún sagði honum alla söguna og lauk henni með orðum föður síns. Hann kinkaði kolli. „Þú veist að hann hefur rétt fyrir sér. Þú hefurelskað hana allt þitt líf. Þú getur ekki hætt að elska hana núna.” „Ég hef heldur ekki gert það þó að ég hafi um tima í gærkvöldi hatað hana,” játaði Carol. „En núna . . . núna veit ég aðeins að einhver sem ég elskaði og hélt að væri dáin er á lífi. Og mig langar til að hitta hana. Viltu fara með mig?” spurði hún aftur. Peter [ragði, hann var hugsi á svip. „Við hverju býstu við að hitta hana. Carol?” spurði hann. „Býstu við ánægjulegum endurfundum með tilheyrandi kossum og tárum? Þú veist að þannig verður það ekki. Þið eruð ókunnugar hvor annarri núna. Það kemur áreiðanlega upp hjá henni einhver sektarkennd og eftirsjá. Henni er kannski ekkert vel við að þú komir til hennar.” „Ég veit,” sagði Carol hægt. „Og ég býst ekki við neinum skáldlegum endur- fundum. En ég á rétt á að þekkja móður mina og börnin mín, þegar þau koma, eiga lika rétt á að þekkja hana. Og ég vona sannarlega að hana langi til þess að jrekkja okkur. Við erum ókunnugar hvor annarri, eins og þú segir. En einu sinni vorum við, ég, pabbi og hún .. . við vorum fólk sem elskaði hvert annað. Kannski komumst við að þvi að jrað er engin ást eftir. En við getum þó allavega orðið vinir.” Hún tók sér málhvíld. „Fólk sem hefur elskað hvort annað ætti alltaf að vera vinir, finnst joér það ekki?” spurði hún. „Ef það er það sem þú býst við — vinátta,” sagði Peter hljóðlega, „þá skal ég fara með þig. En biddu með það í nokkra daga. Þú getur skipt um skoðun.” Þegar Peter loksins ók henni til borgarinnar, j»r sem móðir hennar vann. gat Carol aðeins vorkennt þeirri konu sem hafði yfirgefið heiðarnar og sveitina til jtess að lifa í mannþrönginni. Við hljótum að vera gerólikar. Ætli við getum nokkurn tima orðið vinir? Hún þurfti að beita nokkurri hernaðarlist til þess að komast að skrif- stofu móður sinnar án jress að boð yrðu gerð á undan henni. En hún var sjálf móttökustúlka svo hún jrekkti alla klæki. „Frú Walters á von á mér.” sagði hún við önnum kafna móttökustúlkuna, „er ekki i lagi aðég fari bara beint upp?” Stúlkan kinkaði aðeins kolli og beindi allri athygli sinni að manni sem var að koma inn og leit út fyrir að vera eitthvað mikilvægur. Það var ekki erfitt fyrir hana að finna skrifstofuna sem hún var að leita að. Hún var á efstu hæð í þessari stóru byggingu, gangarnir voru lagðir þykkum teppum og jrarna voru vel klæddar stúlkur i borgarfötum á jrönum. Hún sá að nafn móður hennar var letrað á eina glerhurðina — Anna Walters. Hún bankaði og gekk inn þegar henni var svarað. Kona sat bak við gríðarstórt stífpússað skrifborð og Carol minntist orða föður síns: — „Hún líkist ekki Önnu minni lengur." Nei, hugsaði hún með sér, jressi fágaða kona leit ekki út eins og móðirin sem hafði hlaupið á eftir litlu barni í skógunum og sparkað laufum hlæjandi. Carol ræskti sig. „Ég heiti Carol,” sagði hún hljóðlega. 22 Vikan 12. tbl.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.