Vikan


Vikan - 20.03.1980, Qupperneq 23

Vikan - 20.03.1980, Qupperneq 23
Hún vissi ekki við hverju hún ætti að búast. Kannski brygði henni eða hún tryði henni ekki. En móðir hennar leit aðeins á hana, hún sá hvernig köld augun þiðnuðu og alvörusvipurinn mild- aðist. „Já, einmitt.” sagði hún loks þýðri röddu. „Það ert þú . . .” Svo flýtti hún sér að bæta við: „Hvernig liður pabba þínum?” Carol brosti óörugg. „Honum líður vel,”svaraði hún. „Svo hann hefur þá loksins sagt þér frá mér," sagði móðir hennar. Hún útskýrði fyrir henni hvers vegna hann hefði beðið svo lengi með það. Móðir hennar hlustaði þegjandi á hana. „Það var Edward likt,” sagði hún. Hún leit áköf á Carol. „Og náði það sinum tilgangi?” spurði hún. „Varstu ekki eins dómhörð?" „Það er ekki mitt að dæma,” sagði Carol. „Ég kom ekki hingað til þess að kveða upp dóm yfir þér.” Móðir hennar stóð upp og gekk að glugganum. Hún stóð þar þegjandi nokkra stund og horfði á umferðina fyrir neðan. Niðurinn þaðan heyrðist varla upp til þeirra. Svo sneri hún sér aftur að Carol. „Þér þykir þetta kannski einkennileg spurning," sagði hún, „en ég vona að þér finnist ég ekki óvingjarnleg. Hvers vegna komstu?” Carol leit upp. Til þess að heyra þig segja að þú sæir eftir þessu, sagði hún innra með sér, ég vildi að þú segðir mér að þú saknaðir okkar og að þú vildir að þú hefðir aldrei farið. Upphátt sagði hún: „Ég vonaði að við gætum orðið vinir.” Móðir hennar gekk aftur að skrif- borðinu og settist. „Ég er fegin að þú sagðir þetta,” sagði hún. „Ég hélt kannski að þú hefðir ein- hverjar vonir um að ég kæmi aftur og héldi áfram þar sem við hættum.” Hún leit á Carol og hristi höfuðið. „Það er of seint núna,” hélt hún áfram. „Við erum ekki lengur sama fólkið. Ef ég hefði komið aftur einu sinni, þegar ég vildi það, þegar ég saknaði ykkar beggja svo mikið. þá hefði það kannski gengið. En ég beið of lengi...” „Hvers vegna?” sagði Carol. „Hvers vegna komstu ekki aftur ef þig langaði? Þú veist hvað við elskuðum þig mikið!” Móðir hennar svaraði ekki strax heldur sat og starði á fínan viðinn fyrir framan sig. Þegar hún tók til máls talaði hún svo lágt að Carol heyrði varla hvað hún varaðsegja. „Það var stolt,” svaraði hún. „Ég hafði þegar framið eitt axarskaft með þvi að gifta mig svo ung. Ef við hefðum beðið hefði það kannski gengið. Ég var of stolt til þess að viðurkenna að ég hefði framið annað. Æ, ég var mjög ung og mjög vitlaus þá," sagði hún döpur. „En nú er ég eldri og mun vitrari. Nógu vitur til þess að vita að allt hefur breyst, við höfum breyst og það er of seint núna.” „Það er ekki orðið of seint að verða vinir,” sagði Carol. „Það er allt sem ég bið um. Bara tækifæri til þess að kynnast. Við elskuðum öll þrjú hvert annað einu sinni, við getum vissulega orðið vinir.” Móðir hennar ætlaði að fara að tala þegar suð heyrðist í taltæki á skrif- borðinu hennar. Hún stóð upp. „Þetta er líklega fundurinn sem átti að verða klukkan fjögur,” sagði hún með söknuði. „Ef ég heföi bara vitað að þú ætlaðir að koma.” Carol stóð fljótt á fætur. „Það er allt i lagi,” sagði hún. „Ég skil. Ég hefði átt að láta þig vita að ég væri að koma.” Móðir hennar tók i handlegg hennar. „Það er gaman að þú skyldir hafa komið,” sagði hún hljóðlega. „Og ég vildi gjarna kynnast þér, Carol, verða vinur þinn, eins og þú segir. Getur þú ekki verið hérna í borginni i kvöld og við getum borðað heima hjá mér?” „Jú, það vildi ég gjarna,” sagði Carol hlýlega. „En — má ég koma með vin minn með mér? Peter Mason, hann ók mér hingað. Hann er mjög viðkunnan- legur. Ég vil að þú hittir hann.” Móðir hennar brosti. „Það væri gaman!” sagði hún. „Hérna er heimilis- fangið.” Hún rétti Carol lítið hvítt kort. „Getur þú ekki komið snemma, Carol? Um klukkan sjö? Þá höfum við nógan tíma til þess að ræða saman.” Carol yfirgaf stóru bygginguna og gekk aðbil Peters. Þetta hafði verið stuttur endurfundur. Samtalið var stirt og andrúmsloftið þvingað. En hún vissi að það ætti eftir að breytast. I kvöld yrði það betra og næst þegar þær hittust og næst . . . Samband þeirra myndi aukast og verða að einhverju meira en vináttu. Með timanum myndi faðir hennar jafnvel verða með. Hún vissi aðsvogæti orðið þvi þegar hún sagði „ég er Carol” og móðir hennar leit upp frá skrif borðinu, þá sá hún nokkuð sem fékk hjarta hennar til að slá örar. Mynda- ramminn var að vísu svo lítill að hún hafði naumlega þekkt unga manninn og litlu stúlkuna sem föður hennar og hana. En við hlið myndarinnar stóð hár mjór vasi meðeinni gulri rós. ★ 12. tbl. Vikan 23
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.