Vikan


Vikan - 20.03.1980, Blaðsíða 36

Vikan - 20.03.1980, Blaðsíða 36
Það er mikil list að krydda matinn rétt — ekki of mikið, ekki of lítið. Þið getið eyðilagt frébært hráefni með þvi að sulla saman kryddtegundum sem ekkert erindi eiga í matinn. Það ber einnig að hafa í huga að betra er að bæta við ef of litið bragð er af réttinum. Sums staðar má sjá i fallegu eldhúsunum okkar skrautlegar raðir af kryddkrukkum uppi é vegg, ekki ósialdan yfir elda- vélinni og þá þar sem mikla birtu ber á. Þetta er afleitt. Ef krydd er geymt þar sem er bjart og heitt missir það fyrr bragð. Best er að geyma krydd á dimmum svölum stað. En ef þú vilt ekki fórna kryddhillunni þinni ætti að vera auðvelt að finna henni stað þar sem ekki er of bjart eða hún nærri hita. Geymiö krydd ekki í gegnsæju gleri. Best að nota dökkt gler með þéttu loki. Það eykur líkurnar á þvi að kryddið haldist ferskt. Munaðarvara í gamla daga var krydd mjög verðmætt. Og krydd er enn þann dag I dag dýrt. Verð é kílói af algengustu kryddtegundum okkar er um 100 þús. krónur. Þeir sem eru kröfuharðir um gæði neyðast oft til að henda hálffullum krukkum og kaupa nýjar. Kryddiö er orðið of gamalt áður en við klárum úr krukkunni. Krydd er kjarni fæðunnar Karrí, paprikuduft, cayennepipar, basilikum, kjörvel... Áður fyrr var þessar tegundir aðeins að finna í elshússkápunum hjá þeim sem höfðu sérstaklega mikinn áhuga á matargerð, en nú til dags er þær að finna í næstum hverju eldhúsi. En hvernig notum við krydd? Er það e.t.v. aðeins til skrauts í fallegum krúsum á hillu uppi á vegg, eða er það notað eins og hugsað er, til að setja krydd í tilveruna. Miðstöð kryddverslunar fyrir Norður-Evrópu er i Hamborg. Kaupmenn gera þar sin kaup og flytja varninginn heim. Síðan er það malað, sett á glös og flutt í verslanirnar og endar að siðustu heima i eldhúsi hjá okkur, neyt- endum. Krydd hefur ekki ótak- markað geymsluþol. Og við getum ekki aflað neinna upplýsinga um hve kryddið er gamalt þegar við fáum það í hendur. Ekki er heldur að finna á umbúðum neinar upplýsingar um hve lengi við getum notað það. Of stórar umbúðir Kryddglösin eru yfirleitt óþarf- lega stór. En auðvitað myndi það þýða hærra verð ef ilétin væru minni. Krydd, sem kemur hér í búðir og merkt íslenskri verksmiðju, er aðeins merkt með nafni verksmiðjunnar og heiti kryddsins sem í bauknum er. Þetta er bagalegt og ekki ólíklegt að viðskiptavinir sneiði frekar hjá þessum krukkum. Það þyrfti að prenta é miðann hvaða not megi helst hafa af viðkomandi kryddi og jafnvel geta um pökkunardag og þyngd. Vonandi stendur þetta til bóta. Á krydd- ílátum frá erlendum aðilum getum við lesið hvernig viðkomandi krydd er notað og einnig er yfirleitt þyngd innihalds gefin upþ. Malið sjálf Það er mál fróðra manna að 36 Vikan 12 tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.