Vikan


Vikan - 20.03.1980, Page 39

Vikan - 20.03.1980, Page 39
Þýski stjörnuspekingurinn Herbert A. Löhlein segir þér hvaö þetta ár ber í skauti sér. Krabbinn 22.6. - 22.7. Þér gengur allt þokkalega í haginn á sama hátt og síðustu mánuðir hins liðna árs voru þér hagstæðir. Ýmislegt verður þó til að valda þér gremju í april og frá miðjum júlí og fram í ágúst og í því eiga snarasta þáttinn „ástkærir” nágrannar þínir og aðrir sem öfunda þig. Eins og oftast áður er mars besti mánuðurinn þinn. Á þessu ári verður maí líka sérstaklega ánægjulegt tímabil í lífi þínu. Það verður margt til að koma þér á óvart í þessum mánuðum — einnig hvað ástina snertir. Og krabbinn bregður út af vana sínum og skríður út úr skelinni. í stað þess að vera sá sem aðrir geta alltaf treyst á til að hlusta á vandamál þeirra býst hann nú sjálfur til athafna. Þegar á heildina er litið er árið mjög ákvætt, það býður upp á ýmsa viðurkenningu, velgengni í starfi og skemmtileg ferðalög. Á stundum grípur þig alveg óviðráðanleg löngun til eyðslusemi sem krabbinn er annars ekki svo hrifinn af. Á næstu mánuðum muntu koma mörgum á óvart með ákafa þínum, tiltölulegri bjan- sýni og vongleði. Þú ert haldinn alveg sér- stakri starfsgleði í maí og fram í byrjun júlí. Margir krabbar hyggja nú á hús- byggingar, íbúðarkaup eða einhver önnur ráð til að tryggja afkomu sína. Þeir sem fæddir eru í krabbamerkinu 22. - 30. júní eiga sérlegu láni að fagna i slíkum málum á tímabilinu mars - júlí. Hinir ættu að bíða þolinmóðir fram í ágúst, september eða okt- óber. Þér hefur alltaf þótt gaman að ferðast og á þessu ári eyðir krabbinn, eins og svo oft áður, fríinu sínu við sjávarsíðuna, á bökkum fallegra vatna eða í nágrenni stór- fljóta. En aðeins þeim kröbbum sem fæddir eru á timabilinu 12. júlí - 21. júli tekst þó að koma öllum á óvart með algjörlega nýjum áhugamálum. Láttu engan telja þig af nýjum hugmyndum. Reyndu heldur að njóta þeirra til hins ýtrasta því í október fer tækifærunum til slíks að fækka. Þá snýst lukkuhjólið við og þú dregur þig aftur inn í skelina. En þú getur þó huggað þig við minninguna um óvenju gott ár. Ljónið 23. 7. - 23. 8. Það er varla hægt að segja að gæfan hafi brosað neitt sérstaklega við ljónunum á liðnu ári. En 1980 snýst blaðið við og ekkert skyggir á sólina í þessu stjörnu- merki. En þau ljón sem fæddust við óhag- stæða stjörnustöðu hvað ást og hjónaband snertir geta búist við að standa frammi fyrir miklum reikningsskilum, deilum og jafnvel skilnaði. Þetta á fyrst og fremst við þau Ijón sem fædd eru á tímabilinu 14. - 21. ágúst. Þau eru þó ekkert að gráta kulnaðar ástir. Karlmenn fæddir á þessu tímabili mega búast við miklum stakkaskiptum á aðstöðu sinni yfirleitt og þá sérstaklega i starfi. Hjá öðrum gengur á ýmsu og þeir komast oft upp á kant við umheiminn. Reyndu að bregðast skynsamlega við þessu og allt fer vel að lokum. Þú mátt búast við erfiðleikum í maí eða nóvember. En helstu einkenni ljónsins vinna þó hægt og sígandi á 1980. Þeim fylgir aukinn kraftur, frelsisþrá og sjálfsöryggi. Á hinn bóginn krefjast þau viðurkenningar, athygli og stjórnsemi. Þú tryggir þér góðan árangur með að gera engu minni kröfur til sjálfs þíns en umhverfisins. Þér er heppilegra að stuðla fremur að sátt og samlyndi en úlfúð. Heppilegasti mánuður til sumarleyfis er vafalaust ágúst. Vonandi ertu þegar búinn að bóka þig í drauma- ferðina eða hnattferðina í þessum mánuði. Það er ekki þín sterka hlið að feta hinn gullna meðalveg í samskiptum þínum við fólk. En sértu fædd á tímabilinu 13.-15. ágúst ráðlegg ég þér eindregið að sýna fyllstu aðgætni frá júníbyrjun til septemberloka. Annars lendirðu í óþarfa leiðindum. Þó að árið 1980 sé kannski ekki allra besta árið í lífi þínu heppnast þó allt vel ef þú sýnir kænsku og aðgæslu. Og í október fer það sem þú hefur lagt að þér við vinnu þína að bera arð. Það er fyrsti vísirinn að óvenju hagstæðu ári: 1981. Margir munu öfunda ljónið af velgengni þess það árið. Jómfrúin 24.8. - 23. 9. Auðvitað væri best ef allar jómfrúr kynnu á lásinn á leynihólfi hamingjunnar þetta árið. En jafnvel þó svo sé ekki þurfa þær ekki að kvarta. Mörg jómfrúin mun samt sem áður ausa úr sjóðum hjarta síns þetta árið og þær eru tvímælalaust á meðal þeirra sem geta hrósað happi. Lánið leikur sérlega við þig á tímabilinu janúar til októ- berloka. Það nær hápunkti sínum í maí og það er heppilegasti mánuðurinn til ferðalaga eða sumarleyfis. Hvað ástamálin snertir máttu búast við ýmsu óvæntu í júli og september. En það væri líka synd að segja að þú hafir sloppið við þá erfiðleika sem slíkum málum geta fylgt að undanförnu. En nú tekur að birta til. Þér mun líka ganga betur i starfi og við að ráða fram úr fjármálunum. En jómfrúin má aldrei búast við að fá neitt ókeypis upp í hendurnar. Hún þarf töluvert að hafa fyrir hlutunum. Hún þarf að leggja sérstaklega hart að sér við vinnu. Samt bendir flest til þess að 1980 verði velgengnisár. Þú munt brjóta heilann töluvert um húsbyggingar eða íbúðaskipti. Þetta er líka heppilegur tími til að gera ráðstafanir til að láta gamla drauma rætast. Jómfrúr sem fæddar eru á tímabilinu 24. ágúst - 11. september geta reiknað með miklum stuðningi. Á þessu ári kemur tímabil þar sem þú þarft að einbeita þér að því sem skiptir raun- verulegu máli í lífi þínu: Maí og fram í miðjan júlí. Sérstaklega hvað snertir heilsu og ástamál. Jómfrúr eru heldur lítið fyrir hjónaskilnaði. Þær kjósa helst að komast í gegnum lífið án mikilla átaka og án þess að leggja of mikið í sölurnar. Og það tekst þeim með miklum ágætum á þessu ári. IZ.tbl. Vikan39

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.