Vikan - 05.06.1980, Qupperneq 5
Nicola MacMillan dansar fvrir gesti á Hótel Loftleiðum,
UPPSKRIFTIN
Frá Þórarni Guðlaugssyni, yfirmat-
reiðslumanni á Hótel Loftleiðum.
fengum viðeftirfarandi mataruppskriftir
frá bresku vikunni:
Kartöflu- og
blaðlaukssúpa
Fyrir 6-8 manns.
660gblaðlaukur
Ljósm.: Jim Smart
SekkjaplpuletKannn wiiue c.ocnrane.
50—60 g smjör
450 g kartöfluflisar
1 1/2 1 Ijóst kjötsoð
30 g hveiti
1/2 peli mjólk
salt. pipar og negull
má bæta kjötkrafti í eftir smekk
Lagið blaðlaukinn til. Kljúfið hann og
skerið í sneiðar. Skolið hann vel í köldu
vatni. Látið hann krauma i smjöri þar til
hann er Ijósbrúnn. Bætið soðinu út í,
síðan kartöflubitunum. Sjóðið í 15—20
minútur. Blandiðsaman mjólk og hveiti.
Setjið varlega út í soðið og látið malla
þar til súpan fer að þykkna. Bragðbætið
meðsalti. pipar, negul og kjötkrafti.
Y orkshirebúðingur
Fyrir 6—8 manns.
230 g hveiti
smávegis salt
3 egg
4 dl mjólk
matarolía til aðsteikja i
Ofnhiti 180° C.
Sáldrið saman hveitinu og saltinu, búið
til holu i miðjuna og brjótið eggin þar i.
Hellið þriðjungi af mjólkinni þar í líka.
Hrærið þar til þetta er orðið að mjúku
deigi, þeytið vandlega og bætið af-
gangnum af mjólkinni í smátt og smátt.
Látið standa í klukkustund áður en það
er bakað. Hitið matarolíuna vel í sér-
stöku formi fyrir Yorkshire-búðing, eða i
nokkrum litlum formum. Hellið deiginu
í og bakið þar til búðingurinn hefur lyft
sér vel og náð fallegum Ijósbrúnum lit.
Eplabaka — (eplapie)
Uppskrift fyrir 6—8 manns.
250 g hveiti
200 g smjör
5 msk. kalt vatn
4—5 stórepli
2 tsk. sítrónusafi
1 tsk. sitrónubörkur
1/2 tsk. kanill
Hveiti, smjör og vatn hnoðað saman.
Látið biða í 15 mín. Deiginu skipt i tvo
hluta og flatt út. Annar hlutinn er
settur í botninn á smurðu kringlóttu
formi. Eplin flysjuð og kjarninn tekinn
úr, skorin í sneiðar. Þetta er sett ofan á
deigið. Penslað með sítrónusafanum og
örlitlu af bræddu smjöri. Kanil og
sitrónuberki stráð yfir. Siðan er hinn
hluti deigsins settur ofan á, gengið frá
brúnunum og grunnar rákir skomar i.
Bakist i 200° C' heituni ofni i 40—50
mín
23. tbl. Vikan S