Vikan


Vikan - 05.06.1980, Page 37

Vikan - 05.06.1980, Page 37
Folaldakjöt á ýmsa vegu Frönsk folaldastdk me^ djúpsteiktum kartöflum, krydd smjöri, gulrótum og ristuðum sveppum. Léttreyktur folaldakambur Steikin krydduð með salti, pipar og oregano. Steikt á pönnu i 2 mín. á hvorri hlið. Framreitt með kryddsmjöri, spergli. papriku, steiktum kartöflum og salati. Barátta kirkjunnar gegn hrossakjötsáti hér á árum áður er öllum kunn og ekki er laust við að fordóma gegn slíku mataræði sé enn að ftnna meðal nútíma íslendinga. En yfirvöld hafa alténd breytt um skoðun á öllu slíku og víst er að sælkerar eiga varla yfir höfði sér bannfæringu eða andstyggð grannanna, þótt sólgnir verði í folöld og hross. Upplýsingaþjónusta land- búnaðarins sendi okkur ýmsa fróðleiksmola um framleiðslu á íslensku hrossakjöti. Þar kemur meðal annars fram að í hrossa- fitu eru um 22% af lílólinsýru, en ekki nema 1 % í fitu af naut- gripum og sauðfé. Þeir sem vilja ekki borða mikið af mettuðum fitusýrum geta því óhikað neytt hrossakjöts. Að auki er svo vaxtarhraði folalda meiri en dilka. Það þarf um 6 lömb til að gefa sama fallþunga og folald eftirsumarbeit. Hér á eftir fara síðan nokkrar kynningaruppskriftir: Folalda-ragú Brúnað á pönnu með lauk og gulrótum. Siðan soðið í vatni með tómatmauki, heilum pipar, enskri sósu og lárviðar- laufi. Þegar kjötið er orðið meyrt er það fært upp úr. soðið sigtað og jafnað og látið sjóða góða stund og er þá bætt með sérríi og látið síðan yfir kjötið. Framreitt með kartöflumauki og súrsuðu grænmeti. Folalda T-bein steik Steikin er krydduð með salti, pipar og oregano, síðan steikt á pönnu eða í grilli i 10 min. við mikinn hita. Borið fram Soðinn i 1 klst. og síðan ofnsteiktur þar til hann er orðinn meyr (ca 20 rnin.l. Borinn fram með sykurbrúnuðum kartöflum, paprikusósu. mais og gulrótum. 23. tbl. Vikan 37

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.