Vikan


Vikan - 26.02.1981, Síða 9

Vikan - 26.02.1981, Síða 9
VESTURSLÓÐ breytilega framboð matvæla úti i bæ og á sifrjóar hugmyndir matreiðslumanna. sem ekki vilja staðna. Vesturslóð er fyrst og fremst grillhús. sem býður upp á ellefu grillrétti, sex aðra kjötrétti, fimm fiskrétti, fjóra for- rétti. fjórar súpur og fimm eftirrétti, þar af tvo ostrétti. Flest var þetta á troðnum slóðum. Rómantiskt andrúmsloft úr franska vestrinu. Hrátt hangikjöt kom á óvart Hin ánægjulega undantekning var hrátt hangikjöt, sem boðið var upp á í forrétt. Það var fallega rautt, mjúkt og gott. en of salt að þessu sinni, svo sem veitingamaðurinn benti raunar á og varaði við, þegar pantaðvar. Hráa hangikjötið var borið fram með dósaspergli, hrárri eggjarauðu. gúrku. tómati. steinselju og salatblaði. Það var ekki nógu þunnt skorið og náði ekki þeim gæðum, sem ég hef prófað hjá Wessman á Sögu. Eigi að síður var þetta frambærilegur réttur og skemmtileg tilbreytni frá hvers- dagslífinu. Með réttri söltun, finum skurði og ferskri melónusneið í stað dósaspergils yrði þetta að hreinræktuð- um herramannsmat. Aðrir forréttir voru úr ríki hafsins. graflax, hörpuskelfiskur og humar. Ég prófaði hörpudiskinn. sem var sæmi- legur, frystur fremur en niðurlagður. Hann var borinn fram innan um allt of mikið meðlæti á stórum og fallegum hörpudiski. Humarinn olli mér vonbrigðum. einkar smávaxinn og bragðlaus. Hann var borinn fram i bökuðu snittubrauði með hvítlaukssmjöri. Verst var þó bragðsterk tartar-eggjasósan, sem hæfði cngan veginn fíngerðu humarbragði. hcldurdrap þaðalveg. Saltbakað snittubrauð Súpa dagsins reyndist vera sveppasúpa fastaseðilsins. vel heit og bragðgóð. Meiri aðdáun vakti þó saltbakað snittu- brauðið. volgt og gott, borið fram með smjöri. Það virtist ekki aðeins fylgja súpum, heldur einnig öðrum forréttum. Með öllum aðalréttum var borið fram gott hrásalat, sem einkum byggðist á hvítkáli, enda komið fram á hávetur. Gúrku- og tómatbitar sáust þó í bland. Ofan á var hæfilegt magn af mildri sinnepssósu. þeirrar ættar, sem kölluðer ..dressing". Fiskréttaskráin freistaði lítt, þótt þar mætti sjá skötusel, gellur, rauðsprettu og lúðu. Allt hlaut þetta að vera úr frysti. úr því að það var á fastaseðli. Og allt er 'þetta viðkvæmt fyrir frystingu. nema kannski skötuselurinn. Hann reyndist vera sæmilega góður. með réttu þragði. Hann var djúpsteiktur í hveitihjúp úr vel gerðu deigi, en allt of miklu magni af því. Honum fylgdu hrís- grjón, niðursoðnar mandarínur, banan- ar, dósa-ananas, bakaður tómatur og hnetur. Staðlað meðlæti og sósa Öllum kjötréttum Vesturslóðar fylgdi nokkurn veginn sama staðlaða meðlætið. sæmilega ásjálegt. en of mikið. Þar var álbökuð kartafla. bakaður tómatur. hvort tveggja ágætt. grænar belgbaunir. paprika og sveppir. allt úr dós og óþarft. Sýnishornið. sem valið var af grill- réttaskránni. olli vonbrigðum. Það var sæmilega rauð kálfalund. of söltuð og of seig, borin fram með hversdagslegri bearnaise-eggjasósu, þeirri sem raunar fylgdi öllum kjötréttunum. Kjúklingur leit vel út, þegar liann var borinn á borð. Hann var sæmilega bragðgóður, en i þurrara lagi. svo sem lenska er hér. þegar menn passa ekki klukkuna nógu vel. Bæði kokkaroggest ir hafa vanið sig á of langan eldunar tima. Nautalund Alfredo var réttur dagsins að þessu sinni. Beðið var um hana litið steikta. en hún kom miðlungi steikt, svo sem venja er i Ameríku, þakin óþarfri skinku. Þar fyrir utan var þetta hinn frambærilegasti matur, lítillega ofsaltaður. Kveðjukoss kúrekans Hápunktur prófunarinnar fólst i kryddlegnum lambalærissneiðum. mjög litið steiktum. meyrum og Ijúfum. ekki söltuðum um of. Hin undarlega skinka var enn á ferð. Hún kann að bæta matreiðsluna. en þarf ekki að fylgja með á borð. Svo vikið sé að áhugamálum barn- anna. þá voru franskar kartöflur góðar. ekta. ekki brenndar og án steikarolíu- bragðs. Kinversku pönnukökurnar voru þunnar og vel steiktar, með bragðsterku ntauki. Og karrísósan með hrisgrjónun- um var einnig góð. Eftirréttir voru lítt frumlegir en frambærilegir. ísar, pönnukökur. ostar og djúpsteiktur camembert. Pönnukökurnar voru næfurþunnar og finar, fylltar ís. Vanilluísinn var borinn fram með heitri og ágætri súkkulaði- sósu. Hressandi eftirdrykkur var Kveðju- koss kúrekans. hvitvín hússins blandað kirsuberjalikjör og kokkteilberi. Hvítvín hússins mun vera White Bordeaux. Iciðindavín. Og ekki eru skárri hvítvin þau. sem seld eru á flöskum. Rauðvínin eru mun betri. Húsviniðer sæmilegur Chianti frá Ruffino og hin eru Trakia og Geisweiler Grand Vin. Þá rná fá glas af ágætu sérríi, Dry Sack. fyrir mat og glas af enn betra púrtvini, Quinta do Noval, Late Bottled Vintage. eftir mat. Miðlungsverð og einkunn góð Réttur dagsins með súpu kostaði 85 krónur. Á faslaseðli var miðlungsverð á forréttum 36 krónur, súpum 14 krónur. fiskréttum 52 krónur, kjötréttum 89 krónur. sæturéttum 18 krónur og ostum 35 krónur. Þetta er birt með verðbólgu- fyrirvara. í verði telst mér til, að Vesturslóðsé i meðaltalsflokki veitingahúsa. það er að segja i þriðja hæsta verðflokki af fimm. Slíkt segir kannski meira en tölur um. að ' þriggja rétta veisla með hálfri flösku af víni á mann og kaffi kosti 159 krónur. Vesturslóð fær sex í einkunn fyrir mat. fjóra fyrir vín. átta fyrir þjónustu og sjö fyrir umhverfi. Ef matar- einkunnin er margfölduð með fimm. þjónustu- og umhverfiseinkunnin með tveimur. koma samtals út 64 af 100 mögulegum. Það þýðir. að Vesturslóð fær 6.5 í einkunn, sem má teljast nokkuð gott. Þar með er Vesturslóð í þriðja gæða flokki af fimm og eru gæðin i samræmi við verðið. Tilkoma matstofunnar er islcnskri veitingamennsku til bóta. Jónas Kristjánsson 9. tbl. Vikan 9

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.