Vikan


Vikan - 26.02.1981, Síða 62

Vikan - 26.02.1981, Síða 62
Ljósmóðumóm o.fl. Mér finnst Vikan mjög góð en samt langar mig að kvarta yfir einu í 51. tbl. Þar er prjóna- uppskrift á blaðsíðu 40 og 41 en mér finnst prjónauppskriftin alls ekki nógu góð. Þar er til dæmis ekkert útskýrð úrtakan og þess vegna langar mig, Póstur góður, að biðja um betri uppskrift að þessari peysu því að hún er mjög falleg en það hætta örugglega margir við að prjóna hana bara vegna þess hve uppskriftin er ónákvæm. Svo eru hér nokkrar spurning- ar: 1. Hvað þarf maður að vera gamall til að fara í Ljósmæðra- skóla Islands? 2. Hvaða menntun þarf maður að hafa til að komast í hann? 3. Hvað er Ijósmóðurnámið langt? Með fyrirfram þökk. Halla. P.S. frá Kalla! Af hverju er Skuggi ekki í öllum Viku-blöðunum? Ljótt er ef satt er að uppskriftirnar okkar séu ekki nógu ítarlegar. Athugasemd þinni hefur verið komið á fram- færi og Pósturinn þykist sannfærður um að hún verði tekin til greina. Hvað spurningar þinar um Ljósmæðraskólann snertir er ekki hægt að svara þeim til hlítar að þessu sinni. Svo stendur á, að lögin um ljós- mæðranám eru komin fast aðj fimmtugu — þau voru sett 1933 og ekki breytt síðan — og þjóð- félagið allt er orðið talsvert öðruvísi en þegar þau litu fyrst dagsins ljós. Því er aðeins hægt að segja þér hvernig ljósmæðra- námi hefur verið háttað en ef þú hugsar þér til dæmis að reyna að komast að næsta haust skaltu fylgjast vel með því sem þingmennirnir eru að gera, því fyrir liggur að setja ný lög um ljósmæðranám. En eins og lögin segja fyrir um í dag verða þeir sem ætla að hefja ljósmæðranám að vera orðnir 20 ára og mega ekki verða orðnir eldri en 30 ára. Aldrei hefur verið vikið frá lágmarkinu en undantekningar hafa verið gerðar frá hámarks- reglunni og eru þá umsóknir metnar hverju sinni. í öðru lagi segja þessi gömlu lög að umsækjandi verði að hafa lokið gagnfræðaprófi eða sambærilegri menntun og að þeir umsækjendur, sem meiri hafi menntunina, gangi fyrir að öðru jöfnu. í framkvæmd hefur þetta hin síðari ár verið þannig að um helmingur nema hverju sinni hefur verið með stúdents- próf en hinn helmingurinn með annað nám sem meta má svipað stúdentsprófi þótt það heiti annað. Búast má við að í nýju lögunum verði gerð krafa um að umsækjendur hafi lokið almennu hjúkrunarprófi áður en þeir hefja ljósmæðranám. En það er ljóst að samkeppnin er hörð: Aðeins 12 nemar eru tekn- ir inn á ári. Námið tekur tvö ár og er ekki búist við að það verði lengt með nýjum lögum. Og svo er það hann Kalli: Af tæknilegum ástæðum verður stöku sinnum að farga einni og einni myndasögu. Ef þú fylgist með þeim öllum muntu komast að raun um að það er ekki bara Skuggi sem fær frí endrum og eins. Pennaiinfar Anna Regina Björnsdóttir, Hraunbæ 54, 110 Reykjavik, óskar eftir að fá penna- vini á aldrinum 12-16 ára, bæði stráka og stelpur. Svarar öllum bréfum. Kristin Frimannsdóttir, Breiðavaöi, 541 Blönduósi, A-Hún., óskar eftir penna- vinum á aldrinum 11-12 ára. Sjálf verður hún 12 ára í sumar. Áhugamál hennar eru allt milli himins og jarðar. Svarar öllum bréfum, verið dugleg að skrifa. Svava Huld Þóröardóttir, Dalbraut 15, 300 Akranesi, óskar að skrifast á við stelpur og stráka á aldrinum 10-12 ára. Ýmisáhugamál. Andrea Pittracher, Reithmannstr. 20, A- 6020 Innsbruch, Österreich, 18 ára austurrískur laganemi, dvaldi tvær vikur á lslandi síðasta sumar og það vakti með honum mikinn áhuga á landi og þjóð. Aðaláhugamál hans eru bókmenntir, tungumál, tónlist, kvikmyndir og ljósmyndun. Skrifið á ensku, frönsku eða þýsku. Eyrún Sigurbjörnsdóttir, Ásbyrgi, 565 Hofsósi, óskar að komast í bréfa- samband við krakka á aldrinum 14-16 ára. Áhugamál margvisleg. Jónina Lovísa Kristjánsdóttir, Kirkju- braut 20, 780 Höfn, Hornafirði, 9 ára, óskar eftir pennavinum á aldrinum 9-11 ára. Áhugamál margvísleg. Mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt er. Pálina Harðardóttir, Bogabraut 10, 545 Skagaströnd, óskar eftir að skrifast á við stelpur og stráka á aldrinum 12-13 ára. Elin Árnadóttir, Hólabraut 3a, 630 Hrlsey, 9 ára, óskar eftir að eignast pennavini á aldrinum 8-10 ára. Áhugamál: dýr, dansar og góðar plötur. Svarar öllum bréfum, bæði frá strákum og stelpum. Engilbert Imsland, Kriuhólum 2, 109 Reykjavik, óskar eftir pennavinum, bæði stelpum og strákum á aldrinum 13- 16 ára, er sjálfur 14 ára. Áhugamál eru margvisleg, t.d. tónlist, dans, skiði. Svarar öllum bréfum. Karólina Inga Guðlaugsdóttir, Knarr- arbergi 5, 815 Þorlákshöfn og Jenný B. Jensdóttir, Klébergi 12, 815 Þorlákshöfn, óskar eftir að skrifast á við stráka á aldrinum 13-15 ára. Áhugamál margvisleg. Ágústa Bárðardóttir, Reykjabraut 17, 815 Þorlákshöfn og Árný Erla Bjarna- dóttir, Heinabergi 10, 815 Þorlákshöfn, eru báðar 13 ára og óska eftir penna- vinum, stelpum og strákum á aldrinum 13-14 ára. Áhugamál margvísleg. Mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt er. Hóbnfrfður Þórisdóttir, Miðvangi 10, 220 Hafnarfirði, 14 ára, og Anna Marfa Hjaltadóttir, Breiðvangi 30, 220 Hafnarfirði, óska eftir pennavinum, strákum og stelpum 14 ára og eldri. Áhugamál: skátar, útilegur, bréfaskipti, sund, badminton, körfubolti og margt fleira. Mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt er. Svara öllum bréfum. Sesselja Anna Ólafsdóttir, Urðarvegi 15, 400 tsafirði, 14 ára, og Kolbrún Matthiasdóttir, Sundstræti 29, 400 tsa- firði, 14 ára, óska eftir pennavinum á aldrinum 13-16 ára. Áhugamál margvís- leg. Sfgildar spurningar og tvœr til Kæri Póstur! Mig langar að spyrja þig nokkurra spurninga. Hvernig eiga vog og vog saman, stein- geit, stelpa, og vog, strákur, fiskur, stelpa, og bogmaður, strákur. Getur þú gefið mér upp heimilisföng hjá einhverjum pennavinaklúbbi? Hvenær halda múhameðs- trúarmenn jól eða halda þeir einhver jól? Hvaða ár er í Nígeríu. Er það ekki 1500 og eitthvað? Forvitin EE í 6, tbl. Vikunnar í ár birtist skema yfir stjörnumerkin og hvemig fólk á að passa saman eftir þeim. Hér með vísar Pósturinn öllum þeim sem kunna að vera að velta þessu fyrir sér á þetta blað. í 5. tbl. birti Pósturinn og heimilisföng tveggja alþjóðlegra penna- vinaklúbba. Múhameðstrúarmenn halda ekki jól. Þeir eru ekki kristnir en eins og þú kannski veist eru jólin haldin í minningu fæðingar Jesú Krists. Hins vegar halda múhameðstrúarmenn aðrar hátíðir. Níundi mánuður- inn í ári múhameðstrúar- manna nefnist Ramadan. Þá 62 Vikan 9. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.