Vikan


Vikan - 19.11.1981, Síða 33

Vikan - 19.11.1981, Síða 33
Þrek og lífsgleði — Útsýn leggur til beztu aðstöðuna og þjónustuna — fyrir lægsta verð. Vegna hagstæðra samninga nemur afsláttur þinn þúsundum króna — án aðildar. FEGURÐ FJALLANNA í: Noregi Austurríki ttalíu Geilo Þessi vinsæla skíðamiðstöð Norðmanna er um það bil miðja vegu milli Ósló og Bergen. Næstum 90 km af vel merktum skíðabrautum og brekkurnar eru yfir 20 talsins. GISTISTAÐIR: Geilo Mountain Lodge m/hálfu fæði Geilo Hotel m/fullu fæði BROTTFÖR: Föstudaga frá janúar til marzloka. Páskaferð 2. apríl. Verð frá 5.195,- FERÐATILHÖGUN: Flogið til Osló, en þaðan er lestarferð til Geilo ca 2 tímar Vikulegar ferðir frá 8. jan. til 19. marz. Kitzbuhel Kitzbiihel er lukt háum fjöllum, veðurfar er milt og stillt og sterkrar háfjallasólar nýtur þar nær undantekningalaust daglangt. Þarna eru einhver frægustu og beztu skíðalönd í heimi, svo sem Hahnenkamm-svæðið stórkostlega, þar sem frægasta brunkeppni heims fer fram árlega, „Hahnenkamm Renne”. Kitzbuhler Horn með Raintal, Bichlalm, Jochberg og síðast en ekki síst Pass Thurn-svæðið, sem lengst allra skíða- landa varðveitir góðan skíðasnjó. A Kitzbiihelsvæðinu eru yfir 40 skíðalyftur og á annað hundrað skíðabrautir. Þar finna allir braut við sitt hæfi. í Kitzbiihel eru 30 km af frábærum brautum fyrir skíðagöngu. Um 150 skíðakennarar eru á staðnum, sem veita tilsögn í öllum greinum skíðaíþróttarinnar. Sérstök áherzla er lögð á byrjendakennslu. GISTISTAÐIR: Hotel Zum Jágerwirt og Park Hotel Pension Licht og Gástehaus Porstendorff Hótelíbúðir Haus Horn Verð frá kr. 4.420. FERÐATILHÖGUN: Vikulegar ferðir frá 9. jan. til marzloka. Flogið til Innsbruck um Luxemborg. Akstur frá Innsbruck um hálf önnur klst. íslenskur fararstjóri. Lech Skíðasvæði Lech, Oberlech, Ziirs og Zug eru undralönd vetrarins, sem bjóða full- komin skilyrði, bæði fyrir byrjendur og þá sem lengst eru komnir í skíðaíþrótt- inni. Á þessu kjörsvæði „alpagreinanna” gleyma menn heldur ekki göngubraut- unum, sem eru yfir 15 km langar og vel við haldið. Notalegir, fjörugir skemmti- staðir, strax og skíðaævintýrum dagsins lýkur. Síðast en ekki sízt er það hin þekkta austurríska gestrisni, sem laðar gesti í faðm hinna tignarlegu Alpa. BROTTFÖR: 30. jan., 13. og 27. febr. — 2 vikur. FERÐATILHÖGUN: Flogið er til Zúrich um London með Flugleiðum og Svissair. Akstur frá Zúrich til Lech tekur ca 2 klst. Vinsælir gististaðir: Gasthof Stúlzis — m/ hálfu fæði kr. 8.750,00 Haus Mallaun — m/morgunverði kr. 6.400,00 Bergheim hótelíbúðir með 1 eða 2 svefnherbergjum: Verð frá kr. 5.580,00 Öll herbergi með einkabaði. íslenzkur fararstjóri. Selva ítölsku Alparnir eru rómaðir fyrir fegurð og öll skilyrði eru hin ákjósanlegustu til skíðaiðkana. GISTISTAÐIR: Hotel Sun Valley m/ hálfu fæði: Verð kr. 3.960,- Pension Elvis m/morgunverði: Verð frá kr. 4.115,- Aukaferð 27. des. — 9. jan. Gististaðir: Hotel Anterleghes m/hálfu fæði Pension Nives m/morgunverði. Verð frá 6.700,00 FERÐATILHÖGUN: Flogið til Innsbruck um Luxemborg Akstur til Selva ca 2 klst. Vikulegar ferðir frá 9. jan. til marzloka. 47. tbl. Víkan 33

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.