Vikan


Vikan - 29.11.1984, Page 19

Vikan - 29.11.1984, Page 19
Ég leit á hann og hann roðnaði og vissi hvað ég var að hugsa. „Ég gerði það ekki,” flýtti hann sér að segja. „Ég gæti aldrei myrt mann.” Auðvitað létti mér. Hann var ekki morðingjagerðin. En ég hef lært það þau þrjátíu og þrjú ár sem ég hef verið lögreglustjóri að menn eru ekki alltaf eins og þeir sýnast, sérstaklega ekki rólegir menn eins og George. Ég verð aö viðurkenna að ég var orðinn forvitinn svo að ég fór inn í eldhús og sótti eplavín í krukkur til að liðka á honum málbeinið. Þetta gerðist fyrir ellefu árum þegar hann var að eltast við Betty. Hann haföi þekkt hana frá því að þau voru í gagnfræðaskóla. Hann tilbað hana en var of feim- inn til að eitthvað yrði úr því. Einu sinni tók hann í sig kjark og bauð henni út en hún neitaði. Eftir það hélt hann sig í f jarlægð. En þetta sumar var hann orðinn tuttugu og tveggja ára gamall og hafði tekiö endurskoðunarpróf. Hann gat fengið góða stöðu í Boston um haustið og skrapp því til Spruce Beach en þar áttu for- eldrar hans sumarbústað. Þegar heitt er í veðri er nóg að gera í Spruce Beach en bærinn er mannlaus þegar kólnar. Það er svona míluvegur meðfram strönd- inni og inni í bænum er eins konar skemmtigarður með hringekjum og svoleiðis. Nú svo er þar dans- staður og lítilhöfn. George er orðinn hundleiður þegar hann rekst á Betty. Það kemur honum á óvart að hún tek- ur á móti honum eins og góðvini sínum. Hún býr hjá móður sinni á Panther Inn og þekkir engan í bænum. Sennilega hefur henni fundist George hreinasta guðs- gjöf. George vissi allt frá byrjun að Betty var stúlkan hans. En aldrei gat hann borið upp spurninguna. Það sama var með kossana. Hon- um tókst að kyssa hana á kinnina eða svo því að Betty sneri alltaf höfðinu undan. George biður hennar stirðbusa- lega og horfir niður í sandinn á meðan hann bíður svars hennar. Betty hafnar honum reglulega fallega. Hún segir: „Ég kann vel við þig, George. En ég vil ekki hugsa um hjónabandið. Ekki strax.” George langar að henda sér fyr- ir fætur hennar og grátbæna hana, en hann er ekki svoleiðis. Svo hann tautar bara eitthvað óskiljanlegt og reynir ekki einu sinni að kyssa hana þegar þau skilja. Svo fer veörið að versna. Fólkið hættir að koma frá Boston og sumargestirnir fara heim. Flest- um stöðum er lokað og ströndin verður einmanaleg. Betty er alveg sama. Hún elskar vindinn og brimið við steinana hjá Hurricane Point. Hún vill fara út hvernig sem veðrið er. Og George er sama ef hann fær að vera hjá henni. Það koma fréttir í útvarp- inu um rán og ofbeldi í Spruce Beach. Loksins er komið að síðustu nóttinni áður en George þarf að fara til Boston. Þá er svo dimmt og hvasst að þau Betty rata varla niður að Hurricane Point. En um leið og þau koma þangað hættir að rigna og tunglið kemur fram úr skýjunum. Brimið brotnar enn á klettunum en öldurnar eru fagrar og silfurgljáandi. Þau breiða jakkann hennar Betty á steinana og setjast niður. George er ákveðinn í að gera síð- ustu tilraun. En hann getur ekki byrjað frekar en fyrri daginn. Þá sér hann þennan unga mann koma flautandi eftir ströndinni. Hann er með derhúfu með brotnu deri og í leðurjakka. Hann er góður með sig en það er eitthvað við hann sem George er ekki um. Hann gengur fram hjá þeim en fótatak hans heyrist ekki í votum sandinum. Hann sér ekki George og Betty fyrir steinunum en George sér hann vel. Hann er ekki meira en nítján, tuttugu ára. George horfir á hann hverfa. Svo lítur hann á Betty. Hún hefur dregið undir sig fæturna og tekið um ökklana með fingrunum. Hún horfir út á sjóinn og hefur ekkert séð. George tekur um hönd hennar en fær engin viðbrögð. Hörund hennar er svalt og hún heldur áfram að horfa út á sjóinn. Aftur lítur George yfir til drengsins. Hann hefur numið skyndilega staöar. Hann stendur fyrst grafkyrr en skýst svo eins og elding að gömlum árabát sem hafði verið dreginn langt upp á land. Þar hverfur hann eins og hann sé að fela sig. Það var þá sem George sá annan mann á ströndinni. Hann var að koma úr bænum og greinilega drukkinn. Hann skjögraði til og frá og hrasaði stundum. George reynir að sjá unglinginn við bátinn en sér hann hvergi. Það eru runnar fyrir aftan hann og mjór stígur. George kemst að þeirri niðurstöðu að drengurinn þekki manninn og vilji ekki hitta hann svo að hann hafi bara falið sig. Maðurinn höktir áfram. George finnst hann vera að syngja en hann heyrir ekkert hljóð. Brim- hljóðið yfirgnæfir allt. George kemur auga á drenginn við bátinn. Hann krýpur þarna við skutinn eins og villidýr sem ætlar að ráð- ast á fórnarlambið og George sér eitthvað annað, einhvern smáhlut, í hendi hans, hníf eða byssu. George vissi að hann átti að hrópa en hann dró það of lengi. Drengurinn hendist frá bátnum og ræöst á manninn. Svo fellur maðurinn til jarðar. George tekur þéttingsfast um úlnlið Betty. Hún stynur og opnar munninn. Hún hafði snúið baki við þessu öllu og ekkert séð. Nú veit George hvað hann verður að gera. Betty er ekki gætin eins og hann. Hún myndi strax hlaupa og hjálpa fómarlambinu. George er dauðhræddur. Drengurinn hefur myrt einu sinni og hikar ekki við að myrða oftar. George skelfur allur. Einhvern veginn verður hann að þagga niður í Betty. Líf þeirra beggja er undir því komið. „Hvað gengur á, George?” segir hún. Það er ekki mikill tími til umhugsunar. George tekur hana í faðminn og ýtir henni niður á ströndina. Hann leggur varir sínar við hennar svo aö ekki heyrist í henni og hendir sér beint ofan á hana. Betty brýst um en hann sleppir henni ekki. Hann heldur bara fastar um hana. Hún bítur hann í varirnar og hann finnur blóðbragöið. Hún lemur og klórar og svo setur hún báða lófa á bringu hans til að ýta honum frá en George heldur bara fastar og er alveg að kæfa hana. Þá hættir hún að berjast um og liggur skjálfandi í faðmi hans. Hún tekur utan um hann og varir hennar verða mjúkar og sætar. Tíminn skiptir engu máli lengur fyrir George. Kannski liggja þau svona í mínútu, kannski í tíu. Hann veit það ekki. Hann sér drenginn hvergi þegar hann lítur eftir ströndinni en það er svört hrúga við árabátinn. George rís upp á annað hné. Og þá sér hann drenginn hættulega nálægt og tunglið skín beint framan í hann. George sér hann aðeins í svip en hann veit að hann gleymir honum ekki á meðan hann lifir. Drengurinn minnir á ref, með rautt hár, gulleit augu, smágerða andlitsdrætti og upp- stæð eyru. Hann heldur enn á byssunni. „George?” Honum finnst drengurinn hljóta að heyra hvíslið þó að brimgnýr- inn yfirgnæfi allt. Aftur hendir hann sér á hana en nú er hún viðbúin og veltir sér frá. Þau veltast um blauta ströndina þangað til hún slítur sig lausa. Hún rekur honum rokna kinnhest og áður en hann kemst á fætur er hún hlaupin á brott. George kemur sér á fætur en sér drenginn hvergi. Betty hins vegar hleypur viö sjávarmál. Hann eltir hana en hann er enginn hlaupari og innan skamms er hann farinn að mása og orðinn máttlaus í hnjánum. Hann nær henni ekki en hún bíður hans á tröppunum á Panther Inn. Hann er svo móður að hann kemur varla upp orði. „Ég verð að skýra þetta, Betty.” Hún rekur nefið út í loftið og segir: „Þaðer ástæðulaust.” „Ég ætlaði ekki að meiða þig.” Hún þegir svo að hann reynir aftur. „Þú veist ekki hvað gerðist þarna, elskan. Það var hræði- legt.” Og þá hlær hún og hendir sér í faðmhans. „Ég vissi ekki að þú gætir verið svona ástríðuþrunginn, George,” segir hún. „Mér fannst þú alltaf svo kaldur. 0, ég elska þig, George. Allar stúlkur vilja fá mann sem sleppir sér stundum. Nú veit ég að ég elska þig.” Svo fer hún inn og skellir á eftir sér. George stendur þarna eins og í leiðslu og þorir varla aö trúa þessu. En loksins áttar hann sig og skilur að hann getur ekki skilið manninn á ströndinni eftir í blóði sínu. Hann verður að hafa samband við lögregluna. En það er ekki sími í sumar- bústaðnum og kránni var verið að loka. Svo að hann leggur af stað inn í bæinn. Hann veit ekki hvar lögreglustöðin er en heldur að hann finni hana. Á meðan hann er að hugsa um næsta leik kemur lögreglubíll á miklum hraða úr hliðargötu. Hann reynir að gefa honum merki en lögregluþjónarnir sjá hann ekki. Það er ekki erfitt að geta sér til um framhaldið. Annaðhvort hafði einhver fundið lík mannsins eða hann ekki verið svo illa særður að hann gæti sótt hjálp. George gengur á eftir bílnum. Hann er dauðþreyttur en samt í sjöunda himni vegna Betty. Hann þurrkar sér í framan og fær blóð á hendurnar þar sem Betty klóraði hann. Það er ekki fyrr en nú sem hann skilur hvað kom fyrir hann. 4Z. tbl. ViKan 19

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.