Vikan - 29.11.1984, Page 48
Börnin hugsa um dúkkurnar
eins og börnin sín og því er ekk-
ert of gott handa þeim, jafnvei
ekki ieðursófasett eins og þetta
sem Ásta Björnsdóttir handa-
vinnukennari hannaði fyrir VIK-
UNA. Eins og sést á skýringar-
myndunum er aðalefniviðurinn
mjóikurfernur. Ef við bætist
leðurlíkisbútur og örlítil þolin-
mæði er ekki mikiii vandi að
töfra fram dvergvaxið ieður-
sófasett íjóiapakkann.
Vinnulýsing:
I stað þess að sníða sófasettið, eins og hér
er sýnt, er hægt að hafa það á óteljandi vegu.
Þá er til dæinis bakið sniðið öðruvísi, haft
lægra, bogalínan höfð bein og svo framvegis.
Að sjálfsögðu er þá áklæðið sniðið eftir því.
Einnig má auðvitað búa til sófasett með
ullaráklæði, plussáklæði, filtáklæði, jafnvel
veggfóðursáklæði ef vill. Þá er hægt að líma
áklæðið beint á pappann í stað þess að bólstra
sófasettið með svampi eins og hér er gert.
öll sniðin eru án saumfara, nema snið af
svampi í baki og setu. Hæfilegt saumfar sem
bætist við snið er ca 1/2 cm.
Leðursófasett handa
Hönnun: Asta Björnsdóttir Ljósmyndir: Ragnar Th.
Stóll:
Efni: 2ja lítra mjólkurfema.
Áklæði: 25 X 70cm.
Svampur/vattefni: 25 X 60 cm.
Litlar glerperlur.
Föndurlím, nál, skæri, tvinni.
Leggið snið nr. 1 á femuna, eins og sýnt er
á mynd 1, og strikið eftir því beggja vegna.
Klippið „lokið” af femunni og síðan niður eft-
ir brotalínum framhliðar þar til 5 cm em eftir
niður á botn.
Klippið því næst út armalínumar.
Framhliðin er brotin inn og verður þannig
setan í stólnum (mynd 2).
Límið 2 cm svamprenning eftir armlín-
unni. Límið því næst svamp innan á armana
og utan á allan stólinn. Sníðið svamp framan
á sökkul stólsins sem nær 3 cm inn á undirset-
una.
Bakpúðinn er saumaöur eins og poki,
svampurinn settur inn í og bakið bólstrað með
sterkum tvinna: Stingið nálinni upp frá röng-
unni, þræðið perlu á nálina, stingið henni svo
aftur niður tÚ hliðar við þar sem þið komuð
upp. Herðið mátulega að og takið eitt kapp-
melluspor utan um þráðinn á bakinu. Stingið
upp um það bil í beinni línu frá síðustu perlu
og gerið alveg eins og áður. I næstu umferð
stingið þið nálinni upp mitt á milli perlanna í
umferðinni fyrir ofan. Hafið 2 cm á milli um-
ferða og saumið 8 perluumferðir í allt. Með
þessu móti myndast tígullaga mynstur í bak-
ið.
Sníðið áklæðið utan um stólinn, leggið bak-
púðann á miðju bakstykkisins, rétta á móti
réttu, og armstykkin þar á eftir. Saumið sam-
an í saumavél.
Að lokum er stóllinn klæddur: Límið niöur
armklæðninguna út í bakið að innanverðu og
að neðan. Framstykki stólsins að utanverðu
og neðan á stólnum er saumað viö hliðar-
stykkin frá réttunni: Brjótið inn efnið og legg-
ið niður við með litlum sporum (mynd 3).
48 Vikan 42. tbl.