Vikan - 29.11.1984, Qupperneq 54
Framhaldssaga
r
Sjöundi hluti.
c%STIR ‘EMMU
byssunni eins og fingri er bent á
hlut. Þetta snýst eins og þú heyrir
um það að vera snjall að benda.
Hef ég á réttu að standa, herrar
mínir?”
„Hárrétt, herra,” sagði
O’Leary, sem skemmti sér yfir
glettinni hæðni yfirmanns síns.
„Ég hef aldrei heyrt þessa kenn-
ingu setta betur fram.”
„Þakka þér fyrir, hr.
O’Leary,” sagði Grant. „Og nú,
lafði Devizes, fáum við að sjá
hvernig þér ferst með fyrsta skot-
ið. Spenntu hamarinn alveg —
svona. Nú ertu reiðubúin til að
skjóta.” Hann sneri sér við og
kallaði til mannsins sem stóð á
lúkarnum. „Kastaðu!”
Græn flaska flaug framhjá
henni meö furðulegum hraða og
maðurinn hafði fleygt henni langt
af skipinu. Það virtist alveg óger-
legt fyrir hana að hitta svo lítið
mark sem veltandi flöskuhálsinn.
Hún minntist ráðlegginga elsk-
huga síns og ímyndaði sér að hún
væri að benda á flöskuna með
fingrinum — og tók í gikkinn. Það
varð blossi, örskots hlé, og vopniö
sendi kúluna frá sér með hnykk
sem kom hendi hennar til að
sveiflast upp.
„Drottinn minn dýri, beint í
mark!” hrópaði einn félaga henn-
ar. „Vel gert, frú!”
„Þetta var slembilukka,” sagði
Emma, var furðu ánægð. „Byrj-
endaheppni.”
„Reyndu aftur,” sagði Nathan
Grant. „Aðra hlaðna byssu handa
lafðinni.”
Flösku var fleygt. Aftur miðaði
hún í skyndi á skoppandi grænan
flekkinn sem þaut fram hjá. Tók í
gikkinn.
„Hitti aftur!”
„Það er fædd skytta á meðal
okkar!”
Þeir brostu allir til hennar, full-
ir ósvikinnar aðdáunar yfir afreki
hennar. Einhver stakk lymsku-
lega upp á því að þau skipstjórinn
færu í skotkeppni fyrir pyngju
með fimm dollurum, en hann
hristi höfuðið og sagðist aldrei
Janette Seymour
Hver er Emma? Hún er ung og falleg stúlka sem kemst
aö raun um aö lífið er enginn dans á rósum og allt krefst
nokkurra fórna. — Þegar sagan hefst munar minnstu að
hún verði fómarlamb siðlausra óþokka en í það skiptið
sleppur hún með skrekkinn. Hún neyðist til að ganga að
eiga mann sem er henni lítt að skapi sem eiginmaður, en
ævintýraferlinum er síður en svo lokið þótt hún sé gengin
í það heilaga — þá fyrst fer að færast fjör í leikinn. Ein-
hver leyndardómsfullur huldumaður gerir henni lífið
leitt, þar til að lokum að hún uppgötvar hver hann er — og
þá verða lesendumir væntanlega ekki síður undrandi en
hún sjálf....
Æsispennandi ævintýraróman — um lífsreynslu sem
ekki fyrirfinnst lengur, ástir og hrakninga — mannvíg
og mansal — látið ÁSTIR EMMU ekki fram hjá ykkur
fara!
myndu þola þá skömm að láta í
minni pokann fyrir konu á eigin
afturdekki.
Þessu lauk með góðlátlegum
hlátri og Emma hugsaöi fátt um
óvæntan árangur sinn þá stund-
ina. En hún átti eftir að minnast
þessa þegar frá leið.
ALLIR dagar sem þau áttu saman
voru dagar hrifsaðir frá lífinu,
stolnir sólarhringar sem þau
höfðu engan rétt á fyrir lögum
guðs og manna. Sem betur fer
miðaði Delaware hægt við
minnsta hugsanlegan byr. Raunar
leið einn dagur í blæjalogni, topp-
seglin bærðust naumast og veifan
hékk eins og blaut tuska frá
morgni til sólarlags. Líkt og verið
væri að hæðast að elskendunum
tveimur fyrir óstöðugleika alsælu
þeirra hvessti mikið þá nótt og
Delaware æddi yfir hafið á slíkri
ferð aö nægði til að bæta upp það
sem það hefði átt að fara í logninu
um daginn — og meira en það.
Þessa nótt lá Emma ein og beið
elskhuga síns en skipstjóri æðandi
freigátunnar varð að vera á þilj-
um á öllum vöktum til ráða um
hve mikil segl mætti hafa uppi. I
dögun, þegar aftur hafði lygnt,
voru stöðugar mannaferðir um
ganginn og stigann fyrir utan ká-
etuna hennar og hún vissi aö hann
myndi ekki hætta á aö svipta hana
mannorðinu með því að koma til
hennar. Þetta var fyrsta nóttin
sem hún hafði átt ástlaus og ófull-
nægð frá því að þau náðu saman —
og drungaleg forspá um árin tóm-
legu sem voru fram undan fyrir
hana.
Núna sáu þau skip á hverjum
degi. Öll reyndust þau vera undir
amerískum fána, kaupskip og
fiskiskútur. Öllum sagði Delaware
þær fréttir að sterk bresk flota-
deild væri í suðvestri og þau
þyrftu að haga stefnu sinni eftir
því. Þau komu ekki auga á neitt
hlutlaust skip og ekkert breskt á
leiö frá Kanada. Delaware sigldi
54 Vikan 42. tbl.