Vikan - 03.10.1985, Síða 6
Dægurlagasöngvarinn Prince á sór greinilega aðdáanda í Kópavogi. Sá hefur komist
yfir hvita málningu og dýrkar goðið sitt þar sem heita „Drekagöng".
Sennilega er þetta mjög orðum aukið en krotarinn reynir að blekkja lesandann með
orðunum sönn ást. En kannski skrifuðu þau þetta sjálf. Nei, annars.
Er þetta myndlist?
Hér telja menn að vitnað sá til dægurlagatexta, þótt þeim sem þetta skrifar sé hann
ókunnur. Drekinn er hins vegar þarna á vegum bæjarstjórnarinnar í Kópavogi.
Reykjavíkur. Þá er það líka munur á
að Gauks saga hefur verið glötuö um
aldir en afar stutt er síðan krotiö var
hreinsað af veggjum salernanna á
Hressingarskálanum svo dæmi sé
tekið. Því er talsvert vitað um það
hvaö þar stóö, enn eru sannfróðir
menn á lífi sem frá því geta greint.
Hvað stóð í Gauks sögu Trandilssonar
veit hins vegar enginn. Gæti allt eins
veriö fílólógísk lygi að saga með þessu
nafni hafi nokkurn tíma verið skrifuð.
Veggjakrotið var hins vegar
áreiþanlega skrifaö. Og þrátt fyrir
málningu og ræstiduft er það þarna
enn. „Viö höfum allan korpusinn” eins
og Helgi Guðmundsson heföi orðaö
það. En höldum okkur við þaö sem enn
má sjá, þótt ekki springi þessi grein af
lærdómi.
HINN KNAPPI STÍLL
Eins og hefur veriö margtuggið er
ekkert vitað um efni og efnistök í
Gauks sögu Trandilssonar. Efnið í
veggjakrotinu verður hins vegar varla
talið til bókmennta. Þótt menn hafi rit-
að bækur erlendis um veggjakrot og
dásamað það mikið verður ekki með
sama móti sagt að nein ástæða sé til
þess aö dásama íslenskt krot. Það er
yfirleitt meiningarlaust og sóðalegt
krabb. Flest er það fremur fátæklegt
klór um útlendar hljómsveitir, eins og
„Duran Duran BEST” eða „Prince
Best”. Nokkurra flokkadrátta gætir í
þessum knöppu orösendingum því
sums staðar stendur til dæmis „Wham
vest” en þessi ritháttur á lýsingarorð-
inu verst er einráður í veggjakroti og
er trúlega af sama toga og böndin í
handritunum okkar: Til þess að spara
tíma og pláss. Veggplássið er kannski
álíka dýrmætt og kálfsskinnin á dögum
Snorra og Ara. Stíláhrif eru afar aug-
ljós í íslensku veggjakroti, ögun stíl-
skólans áberandi. Þannig eru ekki
notuö önnur lýsingarorð um hljóm-
sveitir en vest og best. Uppreisnar-
menn gegn þessum viðjum hins
knappa stíls finnast samt og mótmæl-
in beinast eiginlega gegn öllu saman.
Þetta kristallast á vegg á Laugavegi
en þar stendur „Allt saman lásí
grúbbur”. Raunar virðast „best” og
„vest” vera einu lýsingarorðin sem
notuð eru í íslensku kroti yfirleitt. Þau
eru líka notuö um útlend fótboltaliö á
veggjum í Breiðholtinu.
Þegar fjallað er um bókmenntir er
notkun orða og setninga, sem ekki
virðast hafa neinn sjálfstæðan tilgang í
verkinu, nema ef til vill að heilla les-
andann, kölluö ritklif, á grísku topos.
Sumir telja margar ættartölur í ís-
lendingasögum dæmi um þetta. Svo
langt hefur veriö gengið að telja hin
rómuðu formálsorð Ara fróða, sem
raunar munu ekki vera rétt eftir höfö,
„Hafa skal þaö og svo framvegis”,
vera meiningarlítið stílbragð. En rit-
klif einskorðast ekki við fagurbók-
menntir eða sagnfræðirit. I reykvísku
veggjakroti verður þeirra vart. Al-
gengasta dæmið er ritað með hætti
sem hefur keim af barnaskólareikn-
ingi: SIGGA + GUNNI = SÖNN ÁST.
Utkoman úr þessu ástardæmi er skóla-
bókardæmi um ritklifun. En þrátt fyrir
þetta má ekki draga þá ályktun að
reykvískir unglingar, sem brúka þetta
stílbragð, hafi lært það af bókum um
þrætubókarlist. Ekkert veröur ráðiö
um upprunann en trúlega er þetta líka
lært af þeim ensku.
Fyrir nokkru var grein í DV um
veggjakrot í Reykjavík. Þar var meðal
annars fjallað um verk krotara sem
merkir sér krot sitt með stjörnu og
hálfmána. Hann er óþekktur og raunar
hefur mest af verkum hans þegar verið
máð af. Orðanotkun þessa krotara er
frábrugöin öðru reykvísku krassi en
einhverra hluta vegna virðist hann
hafa lagt pennann á hiliuna. Kannski
má taka orðin sem rituð eru á vegg á
Laugavegi sem eins konar kveðjuorð
„Aðferðarfræði (svo ritað) varð mér
fjötur um fót”. „Stjaman og hálfmán-
inn” var ólíkur öðrum kroturum í því
að hann notaði íslensku þótt hún væri
reyndar einatt afar slangurkennd.
„FOKK" ERFARANDMINNI
Aðrir nota mikið einhvers konar
6 Vikan 40. tbl.