Vikan - 03.10.1985, Qupperneq 11
FORTlÐ
Hvað er þetta?
islendingar hreykja sér oft af því aö hafa góö tengsl við fortiö-
ina, skilja fornsögurnar og halda sig vita flest um það sem fylgdi
fornum þjóðháttum? En er það víst? Þekkja menn áhöld þau sem
haett er að nota? Hér er hlutur af Þjóðminjasafninu og vandinn er
að segja hvað þetta er og til hvers það var notað. Svarið er hér
annars staðar á síöunni.
George Harrison
fluttur á fjallstind
á Hawaii
Harrisonhjónin, George og Oli-
via, eru flutt á fjallstind i Suður-
höfum, nánar tiltekið á Hawaii.
Þau voru orðin fremur taugaveikl-
uð i Englandi vegna sifelldra hót-
ana um að syni þeirra, Dhaj, yrði
raent og fluttu því á tindinn og eru
nú geislandi af öryggi og
hamingju. Gera má ráð fyrir að
þau hafi fundið sér tind sem ekki
tilheyrir eldfjalli.
Stöðugar
hótanir
Farah Fawcett og Ryan O'Neal eignuðust
barn fyrr á árinu og eins og við var að búast
var gleðin mikil. Barnið var drengur og skírð-
ur Redmond James. Þó hefur borið nokkurn
skugga á gleðina vegna þess að hjónaleysun-
um Farah og Ryan berast stöðugt hótunar-
bréf frá óþekktum trúarofstækismanni sem
hótar að ræna barninu vegna þess að þau lifi i
synd. Lifvörðurinn við heimili þeirra i Los
Angeles hefur verið stórefldur, foreldrarnir
þora vart að víkja frá barninu og Farah hefur
hafnað öllum atvinnutilboðum til að geta
helgaðsig móðurhlutverkinu.
Jacklyn Smith hefur likt og Farah Fawcett
mátt þola hótanir frá geðbiluðum manni um
árabil. Sá hótar þó ekki að ræna syni Jacklyn
heldur henni sjálfri. Hann hefur sent henni
óteljandi hótunarbréf og í þeim öllum stend-
ur: ,,Ef ég fæ þig ekki þá fær enginn annar
þig heldur!" Hann hefur margoft reynt að
komast inn á heimili hennar en jafnan náðst
og verið settur inn. En um leið og hann slepp-
ur út er hann mættur aftur við hliðið. Geð-
læknar telja manninn hættulegan en þar til
hann gerir eitthvað alvarlegt af sér, svo sem
eins og að reyna að drepa Jacklyn, er ekki
hægt að halda honum inni. Já, frægðin hefur
vissulega sinar skuggahliðar.
aniSMva - lowanvaa